Hagskýrslur um iðnað - 01.01.1963, Side 29
Iðnaðarskýrslur 1960
27*
II. Yfirlit um niðurstöður.
Summary of main results.
í töfluhluta þessa heftis eru niðurstöður iðnaðarrannsóknar ársins 1960, og
fylgja þeim almennar skýringar í kafla I, 1—3 hér fyrir framan. Til yfirlits eru
höfuðniðurstöðurnar birtar hér í nokkrum samandregnum töflum með örstuttum
skýringum, en jafnframt verður að hafa í huga viðeigandi skýringar í kafla I, 1—3.
1. yfirlit sýnir fjölda tryggðra vinnuvikna verkafólks, annars en afgreiðslu-
fólks, árin 1947, 1951, 1955 og 1959, hlutfallslega aukningu á hverju hinna þriggja
fjögurra ára tímabila og lilutfallslega skiptingu vinnuviknanna á aðalgreinar hvert
árið. Tafla I sýnir vinnuvikufjöldann hvert einstakt ár 1947—59 eftir undirgrein-
um. Við skiptinguna á greinar eru aðilar með slysatryggt vinnuafl, en ekki fyrir-
tækin, lögð til grundvallar (sbr. bls. 15* í þessum inngangi).
Yfirlitið sýnir, að slysatryggt vinnuafl í iðnaði hefur aukizt injög á þessum
árum, og er aukningin hlutfallslega helmingi meiri á tímabilinu 1955—59 en 1947—
51, en þar gætir samt nokkuð áhrifa frá verkfallinu sumarið 1955, enda eru slysa-
tryggðar vinnuvikur 1955 3,6% færri cn 1954. Hins vegar eru mjög miklar sveiflur
í einstökum greinum iðnaðarins.
Fiskiðnaðurinn (undirgreinar 204 og 312) hefur vaxið muu meira en annar
iðnaður í hcild, en þó einkum á tímabilinu 1951—55. Slysatryggðar vinnuvikur
í fiskiðnaði voru 97 408 árið 1947, 140 152 árið 1951, 212 756 árið 1955 og 253 058
árið 1959, en í öðrum iðnaði alls 301 172 árið 1947, 316 454 árið 1951, 333 897
árið 1955 og 447 250 árið 1959.
Hlutfallsleg aukning Hlutfalisleg skipting
vinnuvikna vinnuvikna
1947—51 1951—55 1955—59 1947 1951 1955 1959
Fiskiðnaður % ................... 43,9 51,8 18,9 24,4 30,7 38,9 36,1
Annar iðnaður °/0 ................ 5,1 5,5 33,9 75,6 69,3 61,1 63,9
Iðnaður alls % 14,6 19,7 28,1 100,0 100,0 100,0 100,0
Á tímabilinu 1947—59 hefur slysatryggt vinnuafl í fiskiðnaði aukizt um 159,8%,
en í öðrum iðnaði um 48,5% og í iðnaði alls um 75,7%. Á sama tíma hefur fólkinu
í landinu fjölgað um 27,9%.
2. yfirlit sýnir skiptingu slysatryggðra vinnuvikna í aðalgreinum iðnaðarins
milli Reykjavíkur og annarra landshluta árið 1959. Tafla I sýnir þessa skiptingu
hvert einstakt ár 1947—59 eftir undirgreinum. Við skiptinguna á greinar eru, eins
og í 1. yfirliti, aðilar með slysatryggt vinnuafl lagðir til grundvallar, en ekki fyrir-
tækin (sbr. bls. 15* í þessum inngangi).
Hlutdeild Reykjavíkur hefur verið sem hér segir í slysatryggðum vinnuvikum
verkafólks í iðnaði, annars en afgreiðslufólks, eiustök ár:
Hlutdcild Hlutdcild Hlutdciid
Ár í íiskiðnaði, % í öðrum iðnaði, % í iðnaði alls, %
1947 ..................................... 13,2 65,4 52,5
1948 ..................................... 16,3 67,4 55,7
1949 ..................................... 15,0 67,2 55,8
1950 ..................................... 17,2 66,3 53,6
1951 ..................................... 16,9 68,4 52,6
1952 ..................................... 20,1 65,7 50,6
1953 ..................................... 21,0 66,6 50,2