Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2008, Síða 3
fimmtudagur 23. október 2008 3Fréttir
Geir Haarde forsætisráðherra mætti í Kastljósið í gær til Sig-
mars Guðmundssonar, þar sem sá síðarnefndi þjarmaði á
köflum að forsætisráðherra með krefjandi spurningum um
ástandið í efnahagslífinu. Sigmar þráspurði Geir um ábyrgð
hans og Sjálfstæðisflokksins á því ástandi sem Ísland glímir
nú við. DV birtir hér nokkur brot úr viðtalinu.
GERÐIST
BARA ÓVART
Sigmar: Þú berð áyrgð á þessu. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur í mörg ár
predikað að það sé stöðugleiki
þegar hann stjórnar, nú er landið
nærri þjóðargjaldþroti.
Geir: Nei, það er ekki rétt.
Sigmar: Landið er að minnsta kosti
svo illa statt að við höfum aldrei séð
það svartara núna í áratugi, þú
hlýtur að bera ábyrgð, þinn flokkur,
af hverju ættuð þið að leiða okkur út
úr þeim vanda sem þið hafið komið
okkur í?
Geir: Við berum ekki ábyrgð á
heimskreppunni, við berum ekki
ábyrgð á stöðunni á erlendum
fjármálamörkuðum. Við berum ekki
ábyrgð á að bankarnir gátu ekki
fengið endurfjármögnun á lánum.
Sigmar: Nefndu mér eitt land í
Evrópu sem fer jafn illa út úr þessari
kreppu og Ísland.
Geir: Það land er vandfundið vegna
þess að...
Sigmar: Já, einmitt! Vegna þess að
vandinn er að huta til heimatilbúinn.
Geir: Bankakerfið var orðið alltof
stórt miðað við þjóðarbúskap.
Sigmar: Af hverju fara aðrar þjóðir
ekki svona illa [út úr kreppunni] ?
Geir: Við erum með miklu minna
þjóðfélag
og
bankarnir urðu ofvaxnir.
Sigmar: Af hverju var þá þeim leyft
að vaxa svona mikið, Geir?
Geir: Já, það gerðist bara, þú veist.
Sigmar: Óvart?
Geir: Já, það má kannski segja það.
Það er alveg rétt eftir á að hyggja að
það hefði átt að reyna að tempra
það, þetta gekk mjög vel þegar
bankarnir voru að skila tugum
milljarða í ríkissjóð og mjög háum
launum til mikils fjölda fólks.
Sigmar: Málsmetandi hagfræðingar
hafa bent á þetta í mörg ár, erlendir
sérfræðingar hafa bent á þetta í
mörg ár, Þorvaldur Gylfason hefur
talað um þetta fyrir daufum eyrum
ákaflega lengi. Davíð Oddsson segist
hafa labbað inn á fund ríkisstjórnar-
innar og varað við þessu mjög lengi.
Af hverju gerðuð þið ekki neitt til að
stoppa þetta?
Geir: Bankarnir nýttu sér það frelsi
sem þeim var gefið með alþjóðleg-
um reglum. Það má kannski segja
sem svo að við hefðum átt að ganga
lengra í að herða reglurnar en aðrar
þjóðir. Ég býst við að þá hefðu
heyrst hljóð úr einhverjum hornum.
Þeir fóru auðvitað ógætilega, það
má segja það eftir á, en aðalástæðan
er auðvitað sú að þeir fengu ekki
endurfjármögnun úti í heimi.
Sigmar: Þetta er líka vegna
þess að staða þeirra staða er
orðin þrengri en hún í raun
og veru getur verið og
baklandið er ekki nógu
mikið, það er talað um að
Seðlabankinn hafi...
Geir: Ertu að spyrja mig eða
fullyrða þetta?
Sigmar: Ég er að fullyrða
þetta út frá þeirri umræðu
sem hefur verið.
Geir: Já, það er nefnilega það.
Sigmar: Já, og ég ætla alveg að leyfa
mér það í þessu viðtali vegna þess
að það er ögurstund í þessu
þjóðfélagi og það hlýtur að mega
spyrja soldið krítískt, ykkur
valdhafana, sem berið ábyrgð.
Geir: Þú verður þá að hleypa mér að
til þess að svara.
Sigmar: Seðlabankinn ber ábyrgð
að margra mati, af hverju situr
bankastjórinn þar ennþá?
Geir: Það kemur ekki til greina að
persónugera þann vanda sem nú er
við að fást við þá þrjá menn sem
sitja í bankastjórn Seðlabankans.
Það er ekki hægt að kenna þeim um
þetta sem einstaklingum.
Sigmar: Stefna bankans hefur beðið
skipbrot og hún nýtur ekki trausts
innanlands né erlendis. Er ekki fyrsta
verk að fá nýja menn, í nýrri stjórn,
með nýja stefnu til að endurvekja
traustið?
Geir: Ég fellst ekki á þessar
forsendur sem þú gefur þér og þess
vegna er svarið alveg augljóst, ég tel
að þeir eigi ekki að víkja.
Sigmar: Munu þeir víkja á næst-
unni?
Geir: Ekki af mínum völdum.
Geir H. Haarde Átti
í vök að verjast í
kastljósi í gær.
Sigmar Guðmundsson
Þjarmaði að forsætisráðherra
og þráspurði um ábyrgð
Sjálfstæðisflokksins.
ÁSkRIfEnduR AÐ lAunum
þúsund krónum. Ef þær sætu í
ekki í nefnd fengju þær aðeins
89.923 krónur. Það er einmitt
sú upphæð sem Margrét
fengi fyrir setu sína í um-
hverfis- og samgöngu-
ráði ef hún væri ekki
líka varaborgarfulltrúi.
Marsibil situr í velferð-
arráði borgarinnar og
hverfisráði Árbæjar
og fengi greitt fyr-
ir það 123.644 krón-
ur ef hún væri ekki
borgarfulltrúi. Hagur
Margrétar af því að
vera borgarfulltrúi
er því 112.404 krón-
ur á mánuði en hag-
ur Marsibilar 78.683
krónur.
„Ég sé ekki
alveg hvern-
ig maður get-
ur sinnt störfum
sem borgarfulltrúi og
vera búsettur erlendis
og auk þess á föstum
launum.“
Finnst launin sanngjörn
margrét Sverrisdóttir er sátt við
þau laun sem hún fær en yrði ekki
fúl ef þau yrðu lækkuð.