Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2008, Page 6
fimmtudagur 23. október 20086 Fréttir
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
„Það er alvarlegur klofningur í
Framsóknarflokknum um Evr-
ópumálin. Útspil formannsins,
Guðna Ágústssonar, um að boða
beri til þjóðaratkvæðagreiðslu um
það hvort sækja eigi um aðild að
sambandinu hefur augljóslega
ekki lægt öldurnar í flokknum.
Líklega hefur þetta útspil einkum
verið sett út til að lægja öldurnar
vegna mikils ágreinings um Evr-
ópumál en það hefur ekki gerst og
flokkurinn er klofinn í herðar nið-
ur í þessu máli,“ segir Baldur Þór-
hallsson, prófessor í stjórnmála-
fræði við Háskóla Íslands.
Lykilspurning sem
þarf að svara
Baldur segir Evrópumálin erf-
ið Framsóknarflokknum. „Þetta er
að vísu ekki nýtt ágreiningsefni en
það gerir hann ekki trúverðugan í
augum kjósenda því Evrópusam-
bands- að-
ild er ein af lykilspurningunum í
íslensku stjórnmálalífi um þessar
mundir.
Einar Mar Þórðarson stjórn-
málafræðingur við Háskóla Ís-
lands tekur undir þetta. „Í raun-
inni er Framsóknarflokkurinn
svolítið hjákátlegur um þessar
mundir. Guðni segir á Alþingi að
Samfylkingin hræri i blóði Sjálf-
stæðisflokksins af því að Samfylk-
ingin minnist á Evrópusamband-
ið, á meðan hans eigin flokksmenn
tala um það sama,“ segir hann og
vísar til ræðu Guðna á Alþingi í
síðustu viku.
Loftárásir á viðskiptalíf
Guðni segir alla flokka á Íslandi
klofna vegna Evrópumálsins. „Það
eru skiptar skoðanir í Framsókn-
arflokknum um Evrópumálin eins
og öllum hinum flokkunum,“ seg-
ir hann og telur það ekki áhyggju-
efni og að öllu máli skipti núna
„að við Íslendingar stöndum
nú saman sem þjóð, að útlend-
ingarnir greini það ekki ofan
í allt saman að hér sé að verða
stjórnarkreppa og gríðarleg átök
um hvort við eigum að fara í Evr-
ópusambandið eða ekki.“
Honum finnst að á þessum
ögurtímum í sögu Íslands séu
önnur mál brýnni og aðild að
Evrópusambandinu sé hægt
að ræða þegar um fer að hægj-
ast.
Andstæð öfl
Baldur segir augljóst að
Guðni og Bjarni Harðarson,
þingmaður Framsóknarflokksins,
séu harðir andstæðingar aðild-
ar að Evrópusambandinu. Hann
nefnir síðan til sögunnar þau
Valgerði Sverrisdóttur, vara-
formann flokksins, og þing-
manninn Birki Jón Jónsson,
sem séu fylgjandi Evrópusam-
bandsaðild.
Birkir Jón lagði fram á Alþingi 9.
október þingsályktunartillögu um
tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu
um mögulega aðild Íslands að
Evrópusambandinu. Þar er lagt til
að atkvæðagreiðslan fari fram ekki
síðar en í maí 2009. Tillagan bygg-
ir á tillögu Guðna frá síðasta mið-
stjórnarfundi flokksins. Aðspurð-
ur hvort hann sé sammála Guðna
í því að Evrópumálin séu ekki
verkefni dagsins segir Birkir: „Að
sjálfsögðu þurfum við að horfa
til framtíðar. Annars hefði ég ekki
lagt þessa þingsályktunartillögu
fram. Ég lít á þetta sem langtíma-
verkefni, ekki sem skammtíma-
verkefni.“
Engin sundrung
Valgerður segir erfitt að svara
til um það hvort möguleg Evrópu-
sambandsaðild sé verkefni dags-
ins. „Mér finnst erfitt að skilja
þarna á milli. Þó það sé rétt sem
hann [Guðni] segir um að við
þurfum fyrst og fremst að
horfa á hvernig við komum
út úr þeim erfiðleik-
um sem við eigum í
núna er ekki hægt
að mínu mati að
við þurfum líka
að hafa í huga
langtíma-
sjónarmið.
Og þá erum
við kom-
in að þeirri
áleitnu
spurningu
hver
stefna
okkar sé
í Evrópu-
málum.“
Hún seg-
ir Framsókn-
arflokkinn
ekki sundrað-
an vegna þeirra
mála heldur séu
þar einfaldlega
skiptar skoðanir
líkt og í öðrum
flokkum.
„Í rauninni er Fram-
sóknarflokkurinn svo-
lítið hjákátlegur um
þessar mundir.“
ALVARLEGUR
KLOFNINGUR
Guðni Ágústsson segir Framsóknarflokkinn klofinn í Evrópumál-
um líkt og alla aðra íslenska stjórnmálaflokka. Klofningurinn
rýrir trúverðugleika flokksins í augum kjósenda.
ErLA HLynsdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Áleitin spurning Valgerður Sverrisdóttir
segir nauðsynlegt að svara þeirri áleitnu
spurningu hver sé stefnan í evrópumálum.
Mynd stEfÁn KArLsson
Minnkar trúverðugleikann baldur Þórhallsson segir
ágreining um evrópusambandsaðild minnka
trúverðugleika framsóknarflokksins í augum kjósenda.
Mynd GuðMundur ViGfússon
Allir flokkar klofnir guðni Ágústsson
segir alla íslenska stjórnmálaflokka
klofna í evrópumálum. Verkefni dagsins
séu önnur en möguleg aðild að
evrópusambandinu.
Mynd stEfÁn KArLsson
Frá vinnu
næstu vikur
Lögreglumaðurinn á Sauð-
árkróki sem missti næstum vísi-
fingur hægri handar um síðustu
helgi, þegar ölvaður árásarmað-
ur beit hann þéttingsfast, verður
frá vinnu næstu vikurnar sam-
kvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni á Sauðárkróki.
Lögreglan telur að maðurinn
hefði mögulega misst fingur-
inn ef hann hefði ekki verið í
þykkum hanska sem bjargaði
honum. Ekki er vitað hvort lög-
reglumaðurinn muni ná fullri
hreyfigetu í fingurinn.
Bíll valt
Ökumaður bifreiðar slasaðist
lítillega þegar bíll hans valt á
Suðurlandsvegi austan við Sel-
foss í gær. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni á Selfossi
var maðurinn einn í bílnum. Þá
urðu tveir minniháttar árekstr-
ar í umdæminu í gær, en engin
slys urðu á fólki. Aðstæður úti
á vegum voru ekki sérstaklega
góðar. Snjóþekja var á vegum og
nokkur hálka.
Funda
áfram í dag
Breskir og íslenskir embætt-
ismenn munu áfram funda um
ábyrgð íslenska ríkisins á Icesa-
ve-reikningum Landsbankans í
Bretlandi. Embættismennirnir
funduðu linnulaust til klukkan
til hálf sjö í gærkvöld í utanrík-
isráðuneytinu og verður áfram
fundað af krafti í dag.
Enn hefur engin niðurstaða
fengist, en fundarmönnum mun
hafa miðað ágætlega áfram við
að leysa deiluna.
„Efnahagsástandið hefur haft
áhrif á okkar starfsemi og allra í
þessum framkvæmdageira,“ seg-
ir Sigrún Þorgrímsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Hanza hópsins. Fyr-
irtækið vinnur að breytingum á
Þverholti 11 í Reykjavík en til stend-
ur að breyta húsnæðinu í skrifstofu-
húsnæði og íbúðir. Hanza hópur-
inn lét rífa efstu hæðina og byggði
tvær hæðir í viðbót ofan á húsið,
þar sem átta íbúðir munu rísa. Hús-
ið var á sínum tíma reist til að hýsa
starfsemi DV en þaðan flutti blaðið í
byrjun þessarar aldar.
„Húsið er í kringum fjögur þús-
und fermetrar, fjórar skrifstofu-
hæðir, bílakjallari og átta íbúðir. Við
vonumst til að skrifstofunni verði
lokið upp úr áramótum en þorum
voðalega lítið að segja í sambandi
við íbúðirnar. Það er búið að loka
íbúðunum og öll vinna er í pásu
tímabundið,“ segir Sigrún. Hanza
hópurinn er að gera upp alls konar
fasteignir víðs vegar um bæinn og
líka eina í Lundúnum.
Sigrún segir að hægst hafi gíf-
urlega á framkvæmdum vegna
ástandsins. „Það hefur hægt á öllum
framkvæmdum sem við erum í og
skrúfað hefur verið fyrir aðgengi að
lánsfé. Allir í okkar geira eru í tals-
verðum lausafjárkröggum og óvíst
hvað verður um það en við vonumst
til að þetta leysist á einhvern veg,“
segir Guðni Bergsson, fyrrverandi
atvinnumaður í fótbolta, sem er
stjórnarmaður í Hanza hópnum auk
þess að vera meðstjórnandi í stjórn
félagsins. Auk Guðna er handbolta-
hetjan úr Val, Brynjar Harðarson,
framkvæmdastjóri fjárfestingasviðs.
bodi@dv.is
Lúxusíbúðir í gamla DV-húsinu í bið vegna stöðu í efnahagsmálum:
Byggja hægar en byggja áfram
Þverholt 11 tölvuteikning
af húsinu sem Hanza
hópurinn endurbyggir.
20 % afmælisafsláttur
af öllum hefðbundnum
myndatökum og stækkunum
í október.
Nú er um að gera að panta stax
Mynd - ljósmyndastofa í 25 ár.
MYND
Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði
S: 565 4207 www.ljosmynd.is