Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2008, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2008, Side 22
fimmtudagur 23. október 200822 Norðurland Hársnyrtistofan FLIX hefur nú í nóvember verið opin í eitt ár og verður að því tilefni 10% afsláttur af öllum vörum og þjónustu í nóvember mánuði! Verið velkomin, Þórdís Erla Björnsdóttir – hársnyrtimeistari Húnabraut 6, Blönduós - sími: 452 4464 / 895 6021 Á Ólafsfirði er ótrúlega mikill fjöldi frumkvöðlafyrirtækja þar sem unnið er að framleiðslu sem enginn annar sinn- ir hér á landi. Eitt þeirra fyrirtækja sem haslað hafa sér völl við slík verkefni er Sigurjón Magnússon ehf sem smíð- ar meðal annars slökkvi- og sjúkrabíla fyrir landsmenn. Frumkvöðlastarf á Ólafsfirði „Ég byrjaði á þessu 1990 með föð- ur mínum og svo hefur þetta verið að þróast síðan. Nokkurt hlé varð reynd- ar á þessum smíðum en frá 1998 hef- ur þetta nánast verið óslitið og stöðug- ur stígandi í smíðinni,“ segir Sigurjón Magnússon eigandi fyrirtækisins. Hann hefur komið að smíði um það bil 20 slökkvibiðreiða þannig að bíla- smíði er orðinn snar þáttur í atvinnu- lífi á Ólafsfirði og veitir fjölda manns vinnu. „Það voru engir í smíð slökkvibíla hér á landi þegar ég byrjaði þannig að þetta er líkast til frumkvöðlastarf og hefur lukkast vonum framar. Auk þess- ara 20 bíla höfum við smíðað eina 40 sjúkrabíla frá 2002 þegar við byrjuðum á þeim. Sjúkrabílar voru smíðaðir hér á landi áður en við náðum þessu eftir útboð og það hefur tryggt okkur næg verkefni. Svo er nokkuð að gera við að yfirfara og laga sjúkrabílana, þegar þeim er skipt á milli staða er ávallt far- ið yfir þá til að tryggja að allt sé í sem bestu lagi og öryggi þeirra tryggt.“ Atvinnuskapandi á Ólafsfirði Alls eru níu starfsmenn í þessari framúrstefnulegu bílasmiðju en auk þess að smíða fyrir slökkvi- og sjúkralið hefur Sigurjón smíðað vinnubíla fyrir þá sem eru í sérhæfðum verkum, hús- bílar hafa komið við auk hjólhýsa og ýmissa gerða af bátum. Framleiðsla fyrirtækisins er í harðri samkeppni við innfluttar vörur, til dæmis er nú verið að bjóða út gerð fjögurra slökkvibíla sem útlendingar hafa hug á að selja hingað ekki síður en Sigurjón. „Við erum að berjast í Reykjavík núna með fjóra stóra slökkvibíla og þar er við innflutning að glíma, við erum nánast akkúrat á sama verði og útlend- ingarnir. Það skekkir aðeins samkeppn- ina að við þurfum að borga vörugjöld af öllu efni í okkar framleiðslu sem innflutningurinn losnar við. Það væri náttúrulega fyrir neðan allar hellur ef menn færu við þessar aðstæður að taka útlendum tilboðum fyrir einhverja fáa þúsundkalla, munurinn er innan við hálft prósent. Ég trúi ekki að menn sýni slíkt ábyrgðarleysi, það kemur ekki til. Þessir bílar myndu tryggja okkur burð- arverk í um tvö ár,“ segir Sigurjón, þessi frumkvöðull sem færði hátækniiðnað- inn heim í hérað. GS Sigurjón Magnússon rekur hátæknifyrir- tæki á ólafsfirði sem smíðar meðal annars sjúkra- og slökkvibíla fyrir landsmenn. Sigurjón Magnússon rekur hátæknifyrirtæki á Ólafsfirði. slökkvi- og sjúkrabíla- verksmiðja

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.