Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2008, Síða 33
Mikil eftirvænting var fyrir leik At-
letico og Liverpool í D-riðli, þar sem
týndi sonurinn Torres var væntan-
legur á sinn gamla heimavöll. Hann
var aftur á móti ekki leikfær og end-
urkoma dýrlingsins varð því ekki
raunin. Heimaleikjaréttur Spán-
verjanna var í uppnámi og Benitez
að heimsækja sinn ástkæra heimbæ.
Tveir fyrrverandi leikmenn Liver-
pool eru auk þess í liði Atletico sem
og forn fjandvinur þeirra rauðu, Di-
ego Forlan, sem lofaði að skora fyrir
gömlu félagana í United.
Keane stígur upp
Í byrjun var ekki annað að sjá en
Liverpool væri á heimavelli. Fjar-
vera Torres virtist ekki halda aftur
af gestunum og sóttu þeir látlaust
frá fyrstu mínútu. Á þeirri fjórtándu
skoraði svo Robbie Keane eftir
sendingu frá Gerrard. Eftir markið
róaðist leikurinn aðeins og lítið um
opin færi.
Hæpnar rangstöður í kippum
Atletico byrjaði með argent-
íska framherjann Aguero inn á í
seinni hálfleik en gestirnir byrj-
uðu af sama krafti og í þeim fyrri og
Benayun skoraði löglegt mark á 48.
mínútu sem var ranglega dæmt af
vegna rangstöðu. Kuyt kom inn fyrir
markaskorarann Keane sem búinn
var að skila sínu. Heimamenn hres-
stust svo til muna þegar leið á seinni
hálfleik og ef ekki væri fyrir ónýtan
danskan aðstoðardómara leiksins
hefðu heimamenn jafnað og jafnvel
komist yfir. Tveir rangir rangstæðu-
dómar björguðu Liverpool.
Simao setur hann
Atletico skoraði loks verðskuld-
að mark á 84. mínútu. Simao skor-
aði þá með laglegu skoti eftir góð-
an undirbúning Diegos Forlan.
Heimamenn trylltust og yfirgnæfðu
loksins háværa Púllara á pöllunum.
Litlu munaði að Liverpool nappaði
enn einum sigrinum í blálokin þeg-
ar varamaðurinn Ryan Babel skall-
aði framhjá í upplögðu færi. Nið-
urstaðan 1-1 jafntefli og heilt yfir
sanngjörn úrslit.
Eftir bókinni á Brúnni
Í A-riðli tók Chelsea á móti
Roma í hinu ósigrandi vígi Stanford
Bridge. Chelsea hefur verið gríðar-
lega sterkt undanfarið og er verð-
skuldað á toppi ensku úrvalsdeild-
arinnar. Roma er aftur á móti í tómu
tjóni heima fyrir, í 14. sæti Serie A
og veganesti þeirra í leikinn var 0-4
tap á heimavelli fyrir Inter Milano.
Veðbankarnir voru á einni skoðun
um líklegustu úrslit leiksins.
Svæfandi fyrri hálfleikur
Helstu tíðindin í fyrri hálfleik
voru tíðindaleysið. Chelsea aðeins
meira með boltann en Rómverj-
ar áttu fleiri skot á markið. Óvænt
staða og heimamenn varla vakn-
aðir. Í upphafi var aðeins meira lífs-
mark með þeim bláu en Roma varð-
ist vel, dyggilega stutt af háværum
stuðningsmönnum sem yfirgnæfðu
geispandi heimamenn á Brúnni.
Terry klárar dæmið
Þegar leið á hálfleikinn sótti
Chelsea í sig veðrið og þegar 13
mínútur voru eftir og Roma farið að
eygja stig dúkkaði upp fyrirliðinn
sjálfur, John Terry, sem skoraði með
skalla úr hornspyrnu og tryggði
Chelsea enn einn sigurinn á Stam-
ford Bridge.
Sýning hjá Barcelona
Barcelona gerði góða ferð til Sviss
og fór langt með að afgreiða heima-
liðið Basel á fyrsta fjórðungi leiks-
ins með mörkum frá Messi, Busqu-
ets og Bojan Krkic. Yfirburðirnir hjá
Barcelona voru algerir strax í byrjun
og staðan orðin 0-3 um miðjan fyrri
hálfleik. Bojan Krkic jók á raunir
heimamanna með sínu öðru marki
í upphafi seinni hálfleiks og vörn
Basel götótt sem þarlendur ostur.
Basel tók svo miðju, missti boltann,
Xavi bætti við fimmta markinu og
niðurlæging Svisslendinganna al-
ger. Úrslitin 0-5 og árangur Basel í C-
riðli því orðinn svipaður og Seðla-
bankans á Arnarhóli.
fimmtudagur 23. október 2008 33Sport
Sport TvEir HauKar SEndir úr HrEiðrinuÍslandsmeistarar Hauka hafa slitið samstarfi, eins og það var orðað í fréttatilkynningu frá þeim í gær, við þá tryggva Haraldsson og Haf-stein ingason. báðir komu heim úr atvinnumennsku frá danmörku fyrir tímabilið en Haukum finnst þeir ekki hafa staðið undir vænting-um. Hvorugur var í leikmannahóp Hauka þegar liðið lagði fotex Veszprém í meistaradeildinni á sunnudag. Þeim er báðum frjálst að finna sér nýtt lið en félagaskiptaglugg-inn lokast 1. nóvember.
Meistaradeildin: Ef ekki væri fyrir flugeldasýningu Barcelona hefðu leikir gærkvölds-
ins flokkast sem ágætis svefnlyf. Leikir ensku liðanna stóðu ekki undir væntingum.
Liverpool gerði jafntefli á spænskum heimaslóðum og Chelsea marði lánlausa Rómverja
í London.
Rangstaða
RéttuR dagsins
„Þetta er miklu skemmtilegra
svona,“ sagði Jón Halldór Eðvalds-
son, þjálfari Keflavíkur, við DV eftir
sigur liðsins á KR, 72-60, í Iceland
Express-deild kvenna í körfubolta.
Keflavík tapaði fyrsta leiknum í ár á
heimavelli gegn Haukum en hefur
nú unnið tvo leiki í röð. Gamla kon-
an, eins og hún er stöndum kölluð,
Birna Valgarðsdóttir fór á kostum í
gær og var langstigahæst með 29 stig,
sárkvalin.
„Birna veit hvers ég ætlast til af
henni og hún stóð undir því í leikn-
um og gott betur. Það sem fólk veit
samt ekki er að hún er með nýrna-
steina og lék sárkvalin. Liðið allt var
samt að leika mjög vel og hún hefði
ekki skorað svona mikið ef hinar
stelpurnar væru ekki að finna hana
svona oft,“ sagði Jón Halldór sem er
einnig ánægður með varnarjaxlinn
Pálínu Gunnlaugsdóttur sem hefur
tekið við leikstjórnandahlutverki af
TeKeshu Watson. „Leikstjórnandi
í efstu deild er náttúrulega mikið í
boltanum og hún hefur aldrei leik-
ið þessa stöðu áður. Mér finnst hún
samt hafa verið að leysa þetta mjög
vel,“ sagði Jón Halldór.
Valskonur sem unnu fyrstu tvo
leiki sína þurftu að lúta í gras fyrir
Grindavík í litlum skorleik, 46-44, í
Röstinni í gærkvöldi. Ólöf Pálsdótt-
ir og Ingibjörg Jakobsdóttir skor-
uðu báðar tólf stig fyrir heimakonur
en Kristjana Magnúsdóttir skoraði
fimmtán stig fyrir gestina. Haukar
unnu einnig sinn leik, 80-63, gegn
Snæfelli og eru Keflavík, Grindavík,
Haukar og Valur öll með fjögur stig,
tveimur stigum á eftir toppliði Ham-
ars. Hamars-konur úr Hveragerði
unnu sinn þriðja leik í röð í gær-
kvöldi þegar þær rúlluðu yfir Fjölni,
95-34, á heimavelli. Þær leiða deild-
ina eftir þrjár umferðir með sex stig.
tomas@dv.is
Keflavík lagði KR í Iceland Express-deild kvenna í gærkvöldi. Fjögur lið hafa fjögur stig:
Sárkvalin Birna með stórleik
ÚRSLIT
MeiStaradeildin
A RIÐILL
Chelsea - Roma 1–0
1-0 John Terry (77.)
Bordeux - CFR Cluj 1–0
1-0 Cadu (54, sjálfsmark.).
STaðan
Lið L u J T M St
1. Chelsea 3 2 1 0 5:0 7
2. Cfr 3 1 1 1 2:2 4
3. roma 3 1 0 2 4:4 3
4. borduex 3 1 0 2 2:7 3
B RIÐILL
Inter - Anorthosis 1–0
1-0 Adriano (43.).
Panathinaikos - Werder B remen 2–2
0-1 Per Mertesacker (29.), 1-1 Vagelis Mantzios
(36.), 2-1 Vagelis Mantzios (76.), 2-2 Hugo Al-
meida (83.).
STaðan
Lið L u J T M St
1. inter 3 2 1 0 4:1 7
2. anorths. 3 1 1 1 3:2 4
3. W. bremen 3 0 3 0 3:3 3
4. Paok 3 0 1 2 3:7 1
C RIÐILL
Basel - Barcelona 0–5
0-1 Lionel Messi (4.), 0-2 Sergi Busquets (15.), 0-3
Bojan Krkic (22.), 0-4 Bojan Krkic (46.), 0-5 Xavi
(48.).
Shakhtar - Sporting 0–1
0-1 Liedson (76.).
STaðan
Lið L u J T M St
1. barcelona 3 3 0 0 10:2 9
2. Sporting 3 2 0 1 4:3 6
3. Shakhtar 3 1 0 2 3:4 3
4. basel 3 0 0 3 1:9 0
D RIÐILL
PSV - Marseille 2–0
1-0 Danny Koevermans (71.), 2-0 Danny Koev-
ermans (85.).
Atletico Madrid - Liverpool 1–1
0-1 Robbie Keane (14.), 1-1 Simao (83.).
STaðan
Lið L u J T M St
1. a. madrid 3 2 1 0 6:2 7
2. Liverpool 3 2 1 0 6:3 7
3. PSV 3 1 0 2 3:6 3
4. marseille 3 0 0 3 2:6 0
n1 deild karla
Keflavík - KR 72–60
Haukar - Snæfell 80–63
Grindavík - Valur 46–44
Hamar - Fjölnir 95–34
STaðan
Lið L u J T M St
1. Hamar 3 3 0 0 254:158 6
2. keflavík 3 2 0 1 222:182 4
3. Valur 3 2 0 1 181:156 4
4. grindavík 3 2 0 1 201:177 4
5. Haukar 3 2 0 1 209:188 4
6. kr 3 1 0 2 198:211 2
7. Snæfell 3 0 0 3 179:253 0
8. fjölnir 3 0 0 3 140:259 0
ÍrlandSfararnir
markverðir:
maría björg Ágústsdóttir, kr.
Sandra Sigurðardóttir, Stjarnan.
aðrir leikmenn:
katrín Jónsdóttir, Valur.
edda garðarsdóttir, kr.
guðrún Sóley gunnarsdóttir, kr.
margrét Lára Viðarsdóttir, Valur.
dóra maría Lárusdóttir, Valur.
Hólmfríður magnúsdóttir, kr.
erla Steina arnardóttir, kristianstad.
Ásta Árnadóttir, Valur.
ólína guðbjörg Viðarsdóttir, kr.
katrín ómarsdóttir, kr.
Sara björk gunnarsdóttir, breiðablik.
embla Sigríður grétarsdóttir, kr.
Harpa Þorsteinsdóttir, breiðablik.
rakel Hönnudóttir, Þór/ka.
Í nýrri stöðu Pálína
gunnlaugsdóttir finnur sig
betur og betur sem
leikstjórnandi hjá keflavík.
SvEinn WaagE
blaðamaður skrifar: swaage@dv.is
Sjaldséð sjón
robbie keane kemur
Liverpool yfir í madrid.