Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2008, Blaðsíða 36
fimmtudagur 23. október 200836 Fókus
Turninn, nýr diskur Nýdanskrar,
er sá stærsti á rúmlega tuttugu ára
ferli hljómsveitarinnar. Eftir mikla
hlustun hef ég aðeins eitt orð yfir
þessa frábæru plötu: Loksins.
Það var kominn tími til að Nýd-
önsk færi að gefa frá sér almenni-
legt efni. Þó svo að Freistingar og
Pólfararnir hafi verið fínar plötur,
þá er Turninn það allra besta frá
hljómsveitinni í mörg ár.
Lögin eru ýmist í hressari kant-
inum eða á rólegri nótunum og
er platan mjög þægileg í hlustun.
Lögin eru yfirhöfuð mjög vel sam-
in og bera þess merki að mikið hef-
ur verið lagt í lagasmíð og útsetn-
ingar því vinnslan er greinilega í
höndum fagmanna. Nýdanskrar-
stíllinn er enn til staðar og hefur
tekið miklum framförum frá fyrri
plötum, sem er frábært þar sem
hljómsveitir sem hafa náð svipað
háum aldri og Nýdönsk eiga það til
að festast í sama hjólfarinu.
Platan byrjar á ofursvalan hátt
þar sem óskabarn þjóðarinnar,
Daníel Ágúst, opnar diskinn á lagi
sem heitir Leiðinlegasta lag í heimi
en er eitt svalasta lagið á plötunni.
Lagið Biðin, þar sem Björn Jörund-
ur fer í raun á kostum, finnst mér
vera besta lag plötunnar. Þar sann-
ar Björn enn og aftur að hann er
einn flottasti söngvari Íslands. Að
mínu mati er lagið fullkomin upp-
skrift að góðu popplagi, hvernig
Björn syngur það er fáránlega vel
gert og kaflinn eftir sólóið hlýtur
að vera einn svalasti kafli í sögu ís-
lenskra laga.
Alla tíð er bæði flott og fallegt
á sama tíma. Daníel Ágúst syng-
ur þar frá hjartanu og gerir af-
bragðs vel. Lagið Náttúran sann-
ar að Nýdönsk hefur engu gleymt,
þar fara Björn og Daníel á kostum,
og syngur Björn af þvílíkri innlifun
að ég hefði í raun aldrei trúað því
að maður á fimmtugsaldri ætti svo
mikið af tilfiningum eftir í sálinni.
Platan er á heildina litið frábær og
eru margir slagarar sem eiga eftir
að fá að hljóma í kassagítarsútgáf-
um á komandi árum. Það er góð
tilfinning að heyra að Nýdönsk er
komin aftur á rétta braut.
Turninn gefur hljómsveit-
inni ástæðu til að halda aðra tón-
leika með Sinfóníunni því á þess-
ari plötu er svo mikið af gæðaefni
að aðdáendur Nýdanskrar munu
ekki verða fyrir vonbrigðum við
að hlusta á plötuna. Nýjasti turn
hennar er kraftmikill og stendur
án efa hæst af þeim húsum sem
þeir hafa byggt á löngum ferli.
Gargandi snilld! Boði Logason
á f i m m t u d e g i
Hvað heitir lagið?
„... og blöðin vilja vita hverra
skyrtum þú klæðist ...“
upplestrar
Hefjast
Upplestraröð Forlagsins hefst í kvöld
klukkan 20. Upplestrar fara fram á
Te & kaffi á annarri hæð bókabúð-
ar Máls og menningar við Laugaveg
(áður Súfistinn) hvert fimmtudags-
kvöld fram í miðjan desember. Alls
munu fjörutíu höfundar og þýðend-
ur lesa kafla úr verkum sínum, fjórir
til fimm í hvert sinn. Fyrsta kvöld-
ið les Guðrún Eva Mínervudóttir
upp úr glænýrri skáldsögu sinni,
Skaparanum, Gunnar Hersveinn úr
umræðubókinni Orðspor – Gildin í
samfélaginu, Ármann Jakobsson les
úr skáldsögunni Vonarstræti, Ing-
unn Ásdísardóttir úr barnabókinni
Örlög guðanna og Ólöf Eldjárn les
úr þýðingu sinni á bókinni Dóttur
myndasmiðsins eftir Kim Edwards.
sækadelik
og póst-rokk
Hvað er betra til að lífga upp á
þungan hversdagsleikann en að
skunda á tónleika á köldu fimmtu-
dagskvöldi? Fimmtudagsforleikur
hjá hljómsveitunum Swive, Hug-
hrif og The Custom fer fram í Hinu
húsinu við Austurstræti í kvöld.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20 og
er ókeypis inn en aldurstakmark
er sextán ára. Sækadelik, prog og
póst-rokk aðdáendur eru sérstak-
lega hvattir til að láta sjá sig.
Brennuvargur
á seyðisfirði
Vargurinn, ný glæpasaga eftir Jón
Hall Stefánsson, er komin út. Í upp-
hafi bókar kviknar í íbúðarhúsi á
Seyðisfirði. Valdimar Erlingsson
rannsóknarlögreglumaður er sendur
á vettvang. Skömmu síðar taka fleiri
eldar að loga og verður mönnum þá
ljóst að mikil ógn steðjar að bænum.
Bókin hefur þegar verið þýdd á þýsku
og er væntanleg í búðir í Þýskalandi
á næstunni. Jón Hallur sendi frá sér
sakamálasöguna Krosstré árið 2005
og hlaut hún frábærar viðtökur, bæði
hér heima og í þeim löndum sem
hún hefur komið út í sem eru Þýska-
land, Danmörk, Noregur, Frakkland,
Holland auk þess sem hún er vænt-
anleg á Spáni.
Misheppnaður leikari sinnir
leiklistarkennslu við menntaskóla
í algjöru lúðagreni í Arizona. Hann
er ekki að gera neina hluti af viti,
það er tekið eftir því og ákveðið að
leggja niður áfangann sem hann
sinnir. Til að bjarga leiklistarstarfi
menntaskólans ákveður hann að
skrifa sitt eigið leikrit. Hann ætl-
ar að setja það upp, sanna sig og
safna peningum til að halda áfram
leiklistarvinnu meðal nemenda.
Hann skrifar umdeilt leikrit sem á
að vera framhald af Hamlet-leikriti
Shakespeare. Í samræmi við Holly-
wood-áráttu hans lifa allir af og lifa
farsællega það sem eftir er ólíkt
upprunalegu sögunni. Við sjáum
hann berjast við eigið vantraust og
annarra í leit sinni að draumnum.
Ókei. Bara að heyra nafnið
á myndinni er frábært og boð-
ar gott. Í leikritinu Hamlet deyja
náttúrlega allir svo framhald af því
hlýtur að vera ansi óvænt. Þráður
myndarinnar hljómar líka alveg
meiriháttar. Það eru fínir leikarar í
aðalhlutverkum í mynd sem í upp-
hafi virkar frumleg og lítt klisju-
kennd. Handritshöfundar South
Park standa hér að baki og þeir eru
vissulega grínarar af háum kalíber.
Þetta hljómar eins og eitthvað frá-
bært í uppsiglingu. En hvað gerð-
ist? Menn virðast hafa gleymt að
setja brandara í handritið og þetta
er allt að því grínlaus grínmynd.
Fátt minnir á South Park snilld
nema ef til vill ein stelpan sem
svipað og Kenny í South Park þátt-
unum er tæplega talandi og verð-
ur fyrir öllum skakkaföllum sem
hægt er að lenda í. Seinnipartur-
inn dettur í klisjudrullu og mynd-
in er laus við hina geðveikislegu
og ýktu kímni sem þeir eru þekkt-
ir fyrir. Hún er engan veginn nógu
„politically incorrect“ og er langt
frá þeim væntingum sem mað-
ur hlýtur að hafa. Grínlaust, alger
vonbrigði. Erpur Eyvindarson
Án gríns?
Svar: Space oddity með david bowie
turn nÝdanskrar
tilfinningarÍkur
tónlist
Turninn
Flytjandi: Nýdönsk
Útgefandi: Skýmir
Í fáránlegu formi björn Jörundur og daníel
Ágúst syngja frá hjartanu á turninum.
kvikmyndir
HamleT 2
Leikstjóri: andrew fleming
aðalhlutverk: Steve coogan, catherine
keener, amy poehler, david arquette
vonbrigði Nafn myndarinnar boðar gott en myndin sjálf er vonbrigði.