Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2008, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2008, Blaðsíða 3
þriðjudagur 25. nóvember 2008 3Fréttir stoðarmaður Bjarna Harðarsonar, fyrrverandi þingmanns Framsókn- arflokksins. Ármann fær greiddan þriggja mánaða uppsagnarfrest og er á laun um til 1. mars. Núna eru 19 þingmenn með að- stoðarmenn sem Alþingi greiðir laun. Þar til viðbótar koma laun Ár- manns Inga. Tveir formenn stjórn- málaflokka stjórnarandstöðunnar hafa aðstoðarmenn en einnig fær fyrrverandi aðstoðarmaður Guðna Ágústssonar greidd laun. Þrír aðstoðarmenn formanna stjórnmálaflokka fá því mánaðarlega samtals greiddar 1.686.060 krónur frá Alþingi. Tuttugu aðstoðarmenn þingmanna fá samtals 2.810.100 krónur greidd- ar mán- aðarlega. Alls greiðir Al- þingi laun að upphæð 4.496.160 krónur á mánuði til aðstoðarmanna samkvæmt því frumvarpi sem sam- þykkt var í mars. Yfir árið eru þetta tæpar 54 millj- ónir í launakostnað. Þegar bætt er við rekstrarkostnaði að upphæð 420 þúsund yfir árið og fimm þúsund króna styrk vegna far- símanotkunar fyrir tuttugu og einn aðstoðarmann sem er starfandi, eru þetta alls tæpar 63 milljónir yfir árið. Þurfa ekki starfslýsingu Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri Akra- nessbæjar, var þingmaður Vestur- landskjördæmis árin 1993 til 2003. „Mér finnst full ástæða til að þingmenn í stóru kjördæm- unum hafi að- stoðarmenn í hlutastarfi.,“ segir hann. Gísli er þó ekki jafnhlynnt- ur gildandi launakjör- um aðstoð- armanna og þá sér í lagi launum aðstoðarmanna flokksformanna. „Ég hef ákveðnar efasemdir um þann þátt. Mér finnst vel í lagt að vera með aðstoðarmann á fullu þingfararkaupi,“ segir hann. DV hafði samband við alla starf- andi aðstoðarmenn þingmanna. Tólf þeirra svöruðu spurningum DV sem þýðir að tæpur helmingur þeirra sá sér ekki fært að svara spurningum blaðamanns um starfið sem þeir sinna á launum frá skattgreiðendum. Aðstoðarmennirnir voru spurðir í hverju starfið felist. Lýsingar flestra eru áþekkar. Þeir segjast skipuleggja fundi, afla upplýsinga fyrir þing- manninn, ferðast um kjördæmið, eiga samskipti við fólk í kjördæminu. Engum þeirra fannst skorta á starfs- lýsingu vegna þess hversu margþætt og síbreytilegt starfið er. Gert er ráð fyrir að aðstoðarmenn þingmanna sinni starfinu að jafnaði í þrettán klukkustundir vikulega en margir segjast vinna mun meira en það. Aðstoðarmenn flokksformanna eru í fullu starfi. DV lagði fram fyrirspurn á skrif- stofu Alþingis um heildarkostnað við aðstoðarmenn þingmanna en fékk þau svör að kostnaðurinn hefði ekki verið tekinn saman. Laun Og HLunnindi aðSTOðarmanna Laun aðstoðarmanns formanns þingflokks, fullt þingfararkaup: 562.020 krónur Laun aðstoðarmanns þingmanns, 25 prósent af þingfararkaupi: 140.505 krónur auk fastra launa fá aðstoðarmenn: – Styrk vegna farsímakostnaðar. 60 þúsund krónur á ári sem jafngildir 5 þúsund krónum mánaðarlega. – greiðslu fyrir útlögðum rekstrarkostnaði: Hámark 420 þúsund krónur á ári sem jafngildir 35 þúsund krónum mánaðarlega. – greiðslu fyrir ferðakostnaði, að hámarki sem samsvarar 6 þúsund kílómetrum á ári samkvæmt akstursbók. endurgreiðsluna má nýta að hluta til flug- eða ferjuferða. aðstoðarmaður fær endurgreiddan kostnað við kaup á farsíma þegar hann hefur störf: Hámark 25.000 krónur aðstoðarmaður fær fartölvu að láni frá alþingi ef hann óskar. aðstoðarmaður formanns velur hvort hann hefur borðtölvu eða fartölvu á skrifstofu sinni. Hundruð leita aðstoðar Í dag leita 250 manns hjálpar á hverjum miðvikudegi. viðbúið er að þeim eigi eftir að fjölga. Mynd Gunnar Gunnarsson aðstoðarmaður Þingmaður svöruðu anna blöndal Kristján þór júlíusson x Árni rúnar þorvaldsson Lúðvík bergvinsson x einar þór bárðarson Kjartan ólafsson eydís aðalbjörnsdóttir Herdís þórðardóttir x Finnur ulf dellsén Steingrímur j. Sigfússon x guðrún vala elísdóttir guðbjartur Hannesson guðrún maría óskarsdóttir grétar mar jónsson x gunnar ragnar jónsson arnbjörg Sveinsdóttir x gunnar bragi Sveinsson magnús Stefánsson Halldór Leví björnsson björk guðjónsdóttir Hallveig björk Höskuldsdóttir valgerður Sverrisdóttir Hlédís Sveinsdóttir Karl v. matthíasson x Huginn Freyr þorsteinsson þuríður backman Kristín Ágústsdóttir ólöf nordal x magnús þór Hafsteinsson guðjón a. Kristjánsson x mínerva björg Sverrisdóttir Höskuldur þórhallsson ragnheiður eiríksdóttir atli gíslason Sigríður Finsen Sturla böðvarsson x Stefán bogi Sveinsson birkir j. jónsson x Telma magnúsdóttir jón bjarnason Örlygur Hnefill Örlygsson einar már Sigurðarson x ÞINGMENN FÁ MEIRI AÐSTOÐ EN HUNGRAÐIR Aðstoðarmenn þingmanna fá 63 milljónir, aðrir þurfa minna: Þetta kostar að bjarga þeim Á móti jón magnússon var eini þingmaðurinn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpi um aðstoðarmenn þingmanna. þingflokkur vinstri-grænna sat hjá auk marðar Árnasonar. Þurfa aðstoð gísli S. einarsson er fyrrverandi þingmaður og telur þörf á aðstoðarmönnum í stærri kjördæmum. Honum finnst laun aðstoðarmanna þingflokksformanna þó heldur há. Fleiri leita aðstoðar Ásgerður jóna Flosadóttir óttast að fleiri eigi eftir að þurfa á aðstoð að halda vegna efnahagskreppunnar. 7 milljónir Ella dís ragna erlendsdóttir, móðir tveggja ára veikrar stúlku, þurfti að berjast fyrir 7 milljónum króna til að borga tilraun til lífsbjargar dóttur hennar. 21 milljón Verndaður vinnustaður reka mætti þrjá verndaða vinnustaði fyrir öryrkja, eins og þann sem Öryrkja- bandalagið rekur. 15 milljónir Þjónusta við geðfatlaða aðstoðarmenn kosta fjórfalt meira en framlög ríkisins eru til Klúbbsins geysis, sem sinnir þjónustu við geðfatlaða. 57 milljónir Eftirlaun fyrir aldraða ríkið borgar minna í eftirlauna- sjóð aldraðra en aðstoðarmenn þingmanna fá í laun. 66 milljónir Heilsugæsla Halda mætti óskertri þjónustu hjá Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja í fjóra mánuði, en nú á að skera niður þar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.