Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2008, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2008, Blaðsíða 10
þriðjudagur 25. nóvember 200810 Neytendur Dísilolía el d sn ey t i Gullinbrú verð á lítra 154,5 kr. verð á lítra 182,4 kr. Skeifunni verð á lítra 148,2 kr. verð á lítra 175,9 kr. Skógarhlíð verð á lítra 149,5 kr. verð á lítra 179,6 kr. bensín Dalvegi verð á lítra 145,9 kr. verð á lítra 173,6 kr. Fjarðarkaupum verð á lítra 142,5 kr. verð á lítra 170,3 kr. Fellsmúla verð á lítra 153,2 kr. verð á lítra 181,9 kr. Skógarseli verð á lítra 153,2 kr. verð á lítra 180,9 kr. umsjón: baldur guðmundsson, baldur@dv.is / neytendur@dv.is Kostnaður við jarðarfarir nemur að lágmarki um 400 þúsund krónum en íburðarmikl- ar blómaskreytingar og tónlistaratriði geta hæglega aukið þann kostnað upp í hálfa milljón. Útfararstjórinn Rúnar Geirmundsson segir aðstandendur látinna oftar biðja um greiðsludreifingu nú en áður. Stórum erfidrykkjum fer fækkandi. Kreppan Kemur við syrgjendur „Já við finnum fyrir kreppunni. Fólk biður frekar um greiðsludreifingu nú en áður auk þess sem aðstandendur leitast í auknum mæli við að draga úr kostnaði vegna tónlistar í útförinni,“ segir Rúnar Geirmundsson, formaður Félags íslenskra útfararstjóra, spurður hvort áhrifa efnahagsástandsins verði vart á þeirra starfsvettvangi. Rúnar segir augljóst að þrengra sé um budduna en áður. „Fólk er farið að biðja um kvartett í stað kórs eða jafn- vel bara einsöngvara. Það er ódýrara en að hafa kór. Þá er fólk einnig farið að átta sig á því að hefðbundin erfi- drykkja getur verið mjög kostnaðar- söm,“ segir hann. Kórinn dýrastur Kostnaður vegna útfarar hleypur á hundruð þúsundum króna. Sam- kvæmt heimasíðu Útfararstofu Kirkju- garðanna nemur kostnaðurinn rétt liðlega 400 þúsund krónum. Stærstu kostnaðarliðirnir eru sjálf kistan, sem kostar að lágmarki um 120 þúsund krónur, útfararþjónusta, um 80 þúsund auk þess sem sex manna kór kostar um 60 þúsund. Þess utan þarf að greiða kostnað vegna kistu- skreytingar, líkklæða, sængur, kodda og blæju, sálmaskrár, kross á leiði, skiltis á kross, organista, umsjónar- gjalds, Stefgjalds og blómaskreytinga. Presturinn fær ákveðna upphæð fyrir þjónustuna en aðstandendur borga hana ekki. Rúnar segir helsta óvissuþáttinn vera kostnað við tónlist í athöfninni. „Hver söngvari fær um tíu þúsund fyrir sönginn en algeng stærð af kór er tíu manns. Einleikarar og söngvarar taka um 35 þúsund krónur auk þess sem taxtinn hjá organistanum hækk- ar ef um slíkt er að ræða. Þá skiptir einnig máli hvort organistinn spili við kistulagningu,“ segir hann. n Par hafði samband og vildi lasta santa maria á laugarvegi. þau pöntuðu sér meðal annars tortillur með kjúklingi. þau sögðu að kjúklingurinn hafi verið bæði slepjulegur og bragðvondur auk þess að vera eins og mauk. verðið var vissulega mjög lágt, undir 1000 krónum á rétt, en maturinn olli þeim vonbrigðum. n ungur maður hringdi og lýsti yfir ánægju sinni með þjónustuna á Hróa hetti. Hann pantaði og sótti 12 tommu pitsu. þegar hann mætti á svæðið fékk hann hins vegar stóra pitsu í hendurnar og var sagt að þetta væri bara svona þennan dag. afgreiðslu- maðurinn brosti sínu blíðasta og það gerði ungi maðurinn líka. Mikill Sykur í MorGunkorni Neytendablaðið birtir í nýjasta hefti sínu niðurstöður rannsókna á sykurinnihaldi í morgunkorni. Í 100 grömmum af Lucky Charms eru 40,7 g af sykri. Litlu minna af sykri er í Cocoa Puffs en í hverj- um 100 g eru 40,5 g. Í Guldkorn eru 35 g, í Coco Pops eru 34 g, Honey Nut Cheerios 33,9 g og í Weetos eru 23,5 grömm. Í All- Bran og Special K eru 17 grömm af sykri í hverjum 100 g. Solgryn hefur aðeins 1g, Weetabix 4,4, og Cheerios 4,5, svo eitthvað sé nefnt. SpariSjóðir lækka vexti Í gær var sagt frá því að Lands- bankinn hefði lægstu vextina fyrir námsmenn en sparisjóðirnir hæstu. Á föstudaginn gáfu flestir bankar út nýjar vaxtatöflur. Þar lækkuðu sparisjóðirnir, Spron og Byr, vexti af yfirdráttarlánum vegna námsmanna sem fá lán hjá LÍN. Spron lækkaði vexti úr 19,25 í 17,50 prósent og Byr úr 18,90 í 17,40 prósent. Landsbankinn, Glitnir og Kaupþing hafa eftir sem áður óbreytta yfirdráttarvexti handa námsmönnum hjá LÍN. Landsbankinn býður enn lægst, 16,25 prósent. Líkkistuverðið hækkar Rúnar segir að vegna gengishruns krónunnar hafi líkkistur nærri tvö- faldast í innkaupsverði á hálfu ári. „Hér hefur verð á kistum verið í takt við önnur lönd í Evrópu. Þær kosta um 1000 evrur sem fyrir ári var um 90 þúsund krónur. Núna kostar hún nærri 170 þúsund krónur,“ segir Rúnar en bætir við að útfararþjón- usturnar hafi ekki hækkað verðið á kistunum sem því nemur. „Hjá okk- ur kostar kistan með öllu, það er sæng, kodda og blæju, um 140 þús- und krónur. Við höfum tekið á okk- ur hækkunina að mestu leyti,“ segir Rúnar sem starfar sem útfararstjóri við Útfararþjónustuna ehf. Rúnar segir að verð á líkkistum sé ekki jafnmismunandi og menn gætu haldið. Í 90 prósent tilvika verði hefðbundin hvít kista fyrir valinu. „Við getum ekki boðið upp á mikla breidd. Árið 2004 voru nýj- ar Evrópureglur um kistustaðla samþykktar. Það mega aðeins vera ákveðið margir naglar í kistunni, á henni mega ekki vera járnhank- ar, auk þess sem skraut úr plasti er ekki leyft. Það gildir einu hvort kist- an verður síðar grafin í jörðu eða brennd í líkbrennsluofni,“ segir hann og bætir því við að þegar um bálför er að ræða verði eldmatur að vera til staðar. Þess vegna verði kist- urnar að vera úr timbri. Lítið svigrúm til lækkana Rúnar segir verðsamkeppni ekki mikla í útfarargeiranum. Það sé vegna þess að flestir kostnaðarliðir séu að- keyptir og svigrúm til lækkana því lít- ið. Hann segir að Útfararstofa Kirkju- garðanna, sem annast útfarir um helmings þeirra sem falla frá á höf- uðborgarsvæðinu, hafi verið leiðandi hvað verð snertir. Hinar fjórar útfar- arstofurnar hafi yfirleitt heldur lægri verðskrá, þótt litlu muni. Rúnar segir litlu sem engu muna á verðinu eftir því hvort um hefð- bundna jarðarför sé að ræða, eða bálför, þar sem líkið er brennt. „Þetta er sama ferlið. Við flytjum hinn látna af dánarstað og í lík- hús þar sem honum er komið fyrir í kæli. Það er yfirleitt gert innan sex klukkutíma frá andláti. Því næst er haft samband við prest sem ákveð- ur hvenær kistulagning og jarðar- för fara fram,“ segir Rúnar en bætir því við að núorðið taki ferlið yfirleitt ekki nema viku. Áður hafi það tek- ið allt að tveimur vikum en vegna breytinga á þjóðfélaginu, til dæm- is dreifðari búsetu ættingja, hafi sá tími styst nokkuð. Útfararþjónustan sér svo um að koma hinum látna fyrir í kistunni, í líkklæðunum, en það er yfirleitt gert þremur til fimm dögum eftir andlát. „Síðan kemur að kistulagningunni þar sem presturinn kemur að, auk aðstandenda og stundum organista. Eftir það er kistunni lokað og jarðar- förin í kirkjunni fer eins fram, hvort sem um bálför eða hefðbundna greftrun er að ræða,“ segir hann. BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar baldur@dv.is Líkkistur hækka í verði vegna hruns krónunn- ar rúnar geirmundsson útfararstjóri segir fleiri biðja um greiðsludreif- ingu nú en áður. „Rúnar segir að vegna gengishruns krónunnar hafi líkkistur nærri tvöfaldast í innkaups- verði á hálfu ári.“ Blómaskreytingar geta verið dýrar Fjögur til fimm hundruð þúsund kostar að jarða hinn látna. verðSkrá ÚtFararStoFu kirkjuGarðanna Kista 117.418 Sæng koddi blæja 15.594 líkklæði 7.721 Útfararþjónusta 79.942 Sálmaskrá 150 stk. 34.022 Kross á leiði 9.450 Skilti á kross 6.468 Kistuskreyting 24.000 ** Blóm á altari 7.000 Kór við útför (6 manna) 60.598 *** Organisti við útför 13.852 **** Kirkjuvörður 3.000 Umsjónargjald 10.845 Stefgjald 3.722 SamtalS 393.632 * algengasta gerðin. ** Fer eFtir umFangi skreytinga. *** tíu þúsund á Hvern meðlim kórsins. meira Fyrir einsöngvara. **** kostar meira eF Hann sPilar við kistulagningu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.