Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2008, Qupperneq 8
þriðjudagur 25. nóvember 20088 Fréttir
Nýr kostur í DV eru
þjónustuauglýsingar.
Það borgar sig að
auglýsa í DV!
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR
Hringdu í síma 515 5550
og byrjaðu strax í dag!
Vísa þurfti hundruðum manna frá
Háskólabíói í gærkvöldi þar sem
hvert sæti var setið á fjölmennum
borgarafundi sem ráðherrar, þing-
menn og formaður bankastjórnar
Seðlabankans voru boðaðir á. Átta
af tólf ráðherrum og nokkur fjöldi
þingmanna mættu á fundinn. Þar
var Davíð Oddsson seðlabanka-
stjóra hins vegar hvergi að sjá.
Mikill hiti var í fundarmönn-
um og ljóst að margir eru búnir að
fá sig fullsadda af efnahagsástand-
inu. Reiðin beindist að ríkisstjórn,
auðmönnum og Davíð. Ráðherr-
arnir voru krafðir svara og þó seðla-
bankastjórinn Davíð hefði ekki
mætt var mikið fjallað um hann. „Er
ekki tími til kominn að hreinsa út
úr Seðlabankanum?“ spurði Mar-
grét Pétursdóttir verkakona Geir H.
Haarde forsætisráðherra og upp-
skar mikið klapp.
Má ekki kjósa
Það fer allt í vaskinn ef kosið verður
núna, sagði Geir. Hann vísaði þar til
samningsins við Alþjóðagjaldeyris-
sjóðinn og þá aðgerðaáætlun sem
unnið er eftir.
Skýrt kom fram í orðum bæði hans
og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
utanríkisráðherra að ekki komi til
greina að kjósa núna. Kona ein sem
kynnti sig sem Þóru spurði hvað
þyrfti að gerast til að ráðamenn
sæju að þau vildu þá burt núna.
Ingibjörg svaraði því til að hún sæi
að Þóra og flestir í salnum vildu þau
burt en það væri ekki víst að þjóðin
væri sama sinnis. Var þá baulað á
hana.
Bankastjórnin víki
Þorvaldur Gylfason, prófessor í hag-
fræði, flutti fyrstu ræðuna og var
honum vel fagnað. Hann sagði rík-
isstjórn landsins hafa brugðist:
„Hún tók sjálfa sig fram fyrir fólkið í
landinu.“ Hann sagði að einkavæð-
ing bankanna hefði brugðist því
þeir hafi verið afhentir mönnum
sem kunnu ekkert á bankarekstur.
Þá hefðu Seðlabanki og Fjármála-
eftirlitið ekkert aðhafst. Þá hefði
þrákelkni stjórnvalda vegna krón-
unnar teflt fjárhagslegu sjálfstæði
landsins í tvísýnu.Þorvaldur sagði
bankastjórn Seðlabanka líklega til
að gera misheppnaða tilraun til að
hysja upp krónuna. „Bankastjórnin
verður að víkja án frekari tafar,“
sagði Þorvaldur og uppskar mikið
klapp fundarmanna sem troðfylltu
Háskólabíó. Klappað var í sætunum
úti í sal og nokkrir þingmenn klöpp-
uðu líka.
Spilling á spillingu ofan
Þorvaldur kvartaði sáran undan
spillingu hjá íslenskum stjórnvöld-
um. Hann sagði rangláta ákvörð-
un um upptöku kvótakerfisins hafa
skekkt svo siðferðisvitund stjórn-
málamanna að þeir hafi gert sig
seka um spillingu aftur og aftur.
Finnur Ingólfsson hafi auðgast svo á
einkavæðingu Búnaðarbankans að
hann keypti sjálft þjóðargullið, en
ekki fyrr en eftir að hann hefði látið
gera sig að seðlabankastjóra í stutt-
an tíma. Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins,
hefði líka auðgast á einkavæðingu
en enginn spurt því fjölmiðlarn-
ir hefðu verið komnir í eigu bank-
anna. Loks hefði Davíð Oddsson
látið skipa sig seðlabankastjóra og
ekki beðið boðanna með að láta
bankaráð hækka laun sín svo þau
væru hærri en laun forseta. Þetta
hefði hann þó ekki gert fyrr en eftir
að hann skaffaði sér há eftirlaun.
Taka til eftir sig
Stjórnmálafræðingurinn Silja
Bára Ómarsdóttir sagði að víða í
útlöndum tíðkaðist að ríkisstjórn-
ir færu frá áður en kjörtímabilið
væri búið. Hér sæti ríkisstjórnin
þótt hún væri rúin trausti. „Ráð-
herrar úti um allan heim segja af
sér vegna afglapa í starfi. Kona
keypti Toblerone á kostnað rík-
isins og sagði af sér. Í Danmörku
sagði kona af sér vegna þess að
maðurinn hennar borgaði ekki
reikninga.“ Hér sæti ríkisstjórnin
hins vegar sem fastast.
Margrét Pétursdóttir verkakona
rifjaði upp orð Geirs H. Haarde frá
því fyrr um daginn þegar ríkisstjórn-
in varðist vantrauststillögu stjórnar-
andstöðunnar. Þá hefði Geir sagt að
ríkisstjórnir sætu í fjögur ár nema
eitthvað sérstakt gerðist. „Nei, það
hefur ekkert sérstakt gerst í samfé-
laginu síðustu vikur og mánuði, er
það, Geir?“ spurði Margrét og upp-
skar klapp og hlátur.
Hún bað fólk síðan um að standa
upp. Það gerði fólk úti í sal og
skömmu síðar þeir þingmenn sem
voru mættir og ráðherrarnir líka.
Þegar allir voru staðnir upp sagði
Margrét: „Svona auðvelt er það fyrir
karl að standa upp úr valdastóli og
láta í hendur konu.“
Brynjólfur Þór GuðMundSSon
fréttastjóri skrifar: brynjolfur@dv.is
FULLT HÚS EN
ENGINN DAVÍÐ
Vísa þurfti fólki frá í Háskólabíói í gær. Stóri salurinn var troðfullur og krafðist fólk svara og aðgerða.
Mjög var sótt að davíð oddssyni seðlabankastjóra þótt hann hafi ekki látið sjá sig. Átta af tólf ráðherrum
og fjöldi þingmanna mættu. Þrákelkni stjórnvalda og spilling í íslenska stjórnkerfinu hefur reynst íslensku
þjóðinni dýrkeypt sagði Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor.
„Nei, það hefur ekkert
sérstakt gerst í sam-
félaginu síðustu vikur
og mánuði, er það,
Geir?“
Auður stóll davíð mætti ekki.
Mynd: róBErT rEynISSon
Skammir og áheit Fólk krafðist aðgerða
og upplýsinga. Mynd róBErT rEynISSon
Troðfullt þúsund manns
voru í salnum og margir í
anddyrinu. Mynd róBErT rEynISSon