Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2008, Síða 14
svarthöfði
Á sínum yngri árum var Svart-höfði byltingarsinnaður kommúnisti, trúði á hug-sjónir og var tilbúinn til þess
að berjast fyrir betri heimi. Og jafnvel
týna lífi í þeim átökum. Eldmóðurinn
er fyrir löngu runninn af Svarthöfða
sem notar laugardagana nú til þess
að dytta að ýmsu smálegu á blúnd-
umskreyttu og bróderuðu heimili
sínu. Í huganum fylgir Svarthöfði samt
mótmælendum á Austurvelli að mál-
um og er sérstaklega ánægður með
vasklega framkomu unga fólksins. Í
huga Svarthöfða er það unga fólk sem
fer mikinn í mótmælunum íslenskri
æsku til mikils sóma. Í raun hlýtur
eitthvað að vera að unglingum sem
fyllast ekki eldmóði þessa dagana og
láta í sér heyra í baráttunni fyrir fram-
tíð sinni.
S varthöfði hefur fylgst með hinum vaska Hauki Hilmars-syni af aðdáun og þótt mikið til um framlag þessa drengs í
baráttunni. Svarthöfði fékk gæsahúð
þegar hann frétti af því merkingar-
hlaðna uppátæki drengsins að draga
gunnfána bleika Bónusgríssins að
húni á hinu tigna Alþingi. En eins og
væntingarnar til hinnar ungu bylting-
arhetju voru miklar eru vonbrigðin
þeim mun sárari.
B lessaður drengurinn ætlaði að nota tíma sinn bak við lás og slá í borgaralegt dútl eins og að skrifa uppkast að
ritgerð sinni í Háskólanum. Gott og
vel. Menntun er göfug og ekki veitir
af að hafa kúrista í flokki uppreisnar-
fólks. Í ljósi orða og gjörða mótmæl-
andans unga undanfarið er Svarthöfði
hins vegar farinn að hallast að því að
stráksi ætti frekar að lesa byltingar-
rit og sögu mótmæla í gegnum tíðina
fremur en heimspeki. Hann er nefni-
lega pikkfastur í orðræðu valdsins og
er innvígður og innmúraður í völund-
arhús þess kerfis sem hann telur sig
í barnalegu ungæði vera að berjast
gegn. Mótmælandinn ungi er nefni-
lega með málflutningi sínum í hróp-
andi mótsögn við sjálfan sig og það
sem hann telur sig standa fyrir.
Ekki ætlar Svarthöfði að halda því gegn honum að hann hafi brotið odd af oflæti sínu með því að leyfa embættis-
manni að greiða sekt sína svo hann
mætti fá frelsi. Þarna var hann ekki
að hugsa um eigin hag heldur líf og
limi þeirra sem mættu til þess að sýna
honum stuðning við lögreglustöð-
ina. Um leið varð hann þó leiksopp-
ur valdsins sé það rétt að kerfiskarl
hafi fengið hann lausan. Með því að
neita að segja til velgjörðarmannsins
gerir hann sig hins vegar sekan um
nákvæmlega þá sömu hegðun og þeir
stjórnmálamenn sem mótmælin á
Austurvelli hafa beinst gegn. Fjöldinn
vill binda enda á allt leynimakk og
pukur. Fá sannleikann upp á borðið.
Ráðherrarnir fela sig bak við leyndina
og það gerir Haukur líka.
Þá finnst Svarthöfða rök Hauks fyrir því að vilja ekki sýna sitt rétta andlit ekki halda vatni. Hann geng-
ur þar beint í inni orðræðu Geirs H.
Haarde forsætisráðherra sem leggur
blátt bann við því að efnahagshrun-
ið sé persónugert í Davíð Oddssyni.
Mótmælandinn ungi segist ekki vilja
persónugera mótmælin í sjálfum sér
með því að kasta grímunni. Taki þessi
ungi maður ekki hressan þroskakipp
verður hann orðinn eins og Svarthöfði
eftir nokkur ár og mun spóka sig með
bindi í silkislopp á smáborgaralegu
heimili sínu.
Sú mynd sem hann hefur af sjálfum sér og mótmælunum lýsir í versta falli hroka van-þroska unglings sem ofmetur
stöðu sína í lífinu. Í versta falli mun
þetta þróast út í þann sama hroka
og Geir og Davíð hafa sýnt og hefur
steypt okkur í glötun. Eða heldur
þessi ungi maður virkilega að per-
sóna hans hafi eitthvað með það að
gera að fólk komi þúsundum saman
á Austurvelli vikulega? Byltingin er
ekki hafin og samt er hún byrjuð að
éta börnin sín.
þriðjudagur 25. nóvember 200814 Umræða
Orðræða valdsins
spurningin
„Spurningar
dagsins,“ svarar
smiðurinn
Brynjar
Óðinsson, sem
bar sigur úr
býtum í
spurningakeppni
morgunþáttarins
Í bítið á
bylgjunni, en
hann virðist vera sannkallað
gáfnaljós.
að Hverju ætla ég
að spyrja þig að?
sandkorn
n Klúðrið vegna handtöku Hauks
Hilmarssonar mótmælanda,
sem leiddi til
þess að mót-
mælendur
gerðu árás
á lögreglu-
stöðina við
Hverfisgötu,
hefur nú
verið skrifað
á reikning
starfsmanns
sýslumannsins á Blönduósi sem
kallar inn fanga til afplánunar.
Hermt er að lögreglumenn sem
handtóku Hauk hafi ekki látið yf-
irmenn sína vita fyrr en síðdegis
á föstudag og hafi mönnum þá
brugðið í brún en aðgerðin verið
talin óafturkræf.
n Ein vinsælasta lögga allra tíma
á Íslandi er væntanlega Sæ-
mundur Pálsson eða Sæmi Rokk
eins og hann er yfirleitt kallaður.
Ævisaga hans kom út á dögun-
um en hún
er skráð af
Ingólfi Mar-
geirssyni rit-
höfundi. Þar
lýsir Sæmi
því hvern-
ig hann fór
óhefðbundn-
ar leiðir við
löggæslu. Þannig tókst honum
eitt sinn að koma ró á afmælis-
veislu sem bókstaflega logaði í
átökum. Aðferð lögreglumanns-
ins var einfaldlega sú að taka til
við að rokka í fullum skrúða og
allt datt í dúnalogn.
n Davíð Oddsson seðlabanka-
stjóri hefur haft í nógu að snúast
undanfarið við að verja vígi sitt
í Seðlabankanum. Innan bank-
ans fylgir honum nokkur hirð að
málum er þar er nefnd til sögu
Lilja Alfreðsdóttir Þorsteins-
sonar sem er í senn innmúruð
og trölltrygg forsætisráðherran-
um fyrrverandi. Lilja var einmitt
áheyrandi að því þegar Davíð
var sagður hóta að rústa Kaup-
þingi en neitar að tjá sig. Meðal
þeirra sem sjást á sveimi í kring-
um Davíð í Seðlabankanum er
Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi
ritstjóri Morgunblaðsins. Hermt
er að hann sé nú aðalspuna-
meistari bankastjórans.
n Fullkomin óvissa ríkir um
framhald á ráðherradómi Björg-
vins G. Sigurðssonar banka-
málaráðherra. Eftir að Björg-
vin tók undir með almenningi
og vildi kosningar í vetur eða
vor hafa þær raddir verið uppi
í Sjálfstæðisflokknum að hann
segði af sér vegna þeirrar þreytu
hans sem gerði hann vanhæfan
til að takast
á við efna-
hagsvand-
ann. Úr hópi
samherja
ráðherrans
hefur einnig
heyrst að
réttast væri
hjá honum
að stíga til hliðar og axla ábyrgð.
Þannig gæti hann snúið tvíefld-
ur til baka í kosningum en Geir
Haarde og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir yrðu undir enn stífari
kröfu um að svara til ábyrgðar.
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnúmer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010,
áskriftarsÍmi: 512 7080, auglýsingar: 515 70 50.
Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Það er samt
mjög sérstakt
að vera kallað-
ur gáfnaljós.“
n Brynjar Óðinsson smiður sem sigraði
spurningakeppnina Gáfnaljósið á Bylgjunni. – DV
„Hann sannfærði mig um
að taka því vegna þess að
fólk væri í hættu
þarna úti.“
n Haukur Hilmarsson
mótmælandi sem var
handtekinn í mótmælunum um
helgina. Hann segir nafnlausan
mann hafa greitt sekt hans sem varð til þess að
honum var sleppt. – DV
„Mér fannst þetta
ódrengilegt af
lögreglunni.“
n Jóhanna Þórey sem lenti illa í
piparúða lögreglunar í mótmælunum
við lögreglustöðina um helgina. – DV
„Geir er mjög sterkur
þristur.“
n Talnasérfræðingurinn
Benedikt Lafleur um
forsætisráðherra Íslands, Geir
H. Haarde. – Fréttablaðið
„Okkur finnst
óskiljanlegt að
líkamsræktar-
salir séu ekki
fyrsta val tónlist-
armanna.“
n Óttarr Proppé, söngvari Dr. Spock, en sveitin
ætlar að halda útgáfutónleika í Sporthúsinu. –
Fréttablaðið
Aðförin gegn lýðræðinu
Leiðari
jón trausti reynissOn ritstjóri skrifar. Við megum aldrei hlusta á áróður ráðamanna um að lýðræðið sé hættulegt.
bókstafLega
Íslenskur almenningur var fyrst blekkt-ur og svo svikinn. Það kom á daginn eft-ir að hulunni var svipt af umfangsmestu blekkingu Íslandssögunnar, þegar
bankakerfið og krónan hrundu á nokkrum
dögum. Ástæðan er að stórum hluta mistök
fólksins sem var kosið til valda á fölskum for-
sendum.
Við kusum Sjálfstæðisflokkinn, því hann
lofaði ítrekað efnahagslegum stöðug-
leika. Það val okkar stýrðist af gegnd-
arlausri blekkingu, sem var viðhaldið
þar til efnahagskerfið kollvarpaðist
vegna hennar. Og hún heldur áfram.
Við kusum Samfylkinguna fyrir
siðvæðingu og velferð. Hún kynnti
sig fyrir þjóðinni sem helsta lýðræð-
is- og umbótaafl íslenskra stjórnmála.
Á loforðalistanum voru margvíslegar
aðgerðir til stuðnings lýðræðinu. En nú
hefur formaðurinn afskrifað lýðræð-
ið í verki, nema í formlegri birting-
armynd þess á fjögurra ára fresti.
Hvert einasta dæmi um sundr-
ungu innan Samfylkingarinnar
er dæmi um eftirstandandi heil-
brigði hennar. Annað er dæmi
um blekkingar hennar og svik.
Atburðir síðustu tveggja mán-
aða gera alþingiskosningarnar 2007 ógild-
ar. Ekki aðeins vegna þess að þeir sem voru
í framboði gerðu afdrifarík mistök, heldur
vegna þess að val okkar var byggt á blekkingu
sem var síðan viðhaldið með andlegu ofbeldi
gegn gagnrýnendum. Það er komið í ljós að
engin innistæða var fyrir góðærinu síðustu
ár, heldur þurfum við að gjalda margfalt fyrir
það. Því það var skuld.
Krafan um kosningar er skilyrð-
islaus. Ísland er lýð-
veldi og engin
rök duga gegn
lýðræðinu,
því það er for-
senda þjóð-
félagsins eins
og við viljum
öll hafa það.
Kosn-
ingar eru það sem gerir Ísland að því sem
það er. Og við megum aldrei láta það verða
öðruvísi. Við megum aldrei hlusta á áróð-
ur ráðamanna um að lýðræðið sé hættulegt
landsstjórninni, því það er aðför að grund-
vallargildum þjóðskipulagsins. Við getum
ekki sætt okkur við að aldrei megi kjósa þeg-
ar mikið liggur við. Því fer þveröfugt.
Þeir sem kjósa að treysta núverandi
stjórnvöldum fá tækifæri til að sýna það í
verki. Ef þau hafa staðið sig illa fá þau tæki-
færi til að sýna fram á ágæti sitt fram að
kosningadegi. Það getur aldrei talist órétt-
látt. Skaðinn af kosningum er enginn og
verður aldrei, nema fyrir þá einstaklinga
sem munu teljast hafa svikið þjóðina.
Skaðinn af því að hindra réttmætar
kosningar gæti hins vegar orðið óhugn-
anlegur. Einu hugsanlegu hagsmunirnir af
tímabundnu afnámi lýðræðishefðarinnar
er atvinnuöryggi þeirra sem fylgdust með
efnahag þjóðarinnar hrynja og byrgðu okk-
ur sýn.
Ef þjóðin fær ekki að kjósa sem fyrst
gæti öryggi almennings komist í upp-
nám. Fólk mun framfylgja réttmætri
kröfu sinni um að endurheimta lýð-
ræðið. Því fólkið er ríkið, ekki þau.