Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2008, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2008, Page 15
þriðjudagur 25. nóvember 2008 15Umræða Hver er maðurinn? „Halldór Hákonarson heiti ég. Fyrrverandi verkamaður og sjómaður.“ Hvað drífur þig áfram? „Sjálfsagt fjölskyldan sem ég á, en ég á þrjú börn og þrjú barnabörn.“ Hvar ólst þú upp? „Ég ólst upp á Húsavík. Flutti í bæinn 1997.“ Hvar er best að vera? „það er alls staðar gott að vera ef manni líður vel.“ Hver ber ábyrgð á efnahags- kreppunni, að þínu mati? „Ég raunverulega veit það ekki.það eru margir aðilar sem bera ábyrgð, eftir því sem maður heyrir, en enginn vill kannast við það. “ Hverja ætti að draga til ábyrgð- ar? „ef ég mætti ráða myndi ég byrja á Seðlabankanum, skipta um bankastjóra og stjórnendur þar. einn- ig myndi ég skipta út fólki hjá Fjármálaeftirlitinu og æðstu menn bankanna, sem enn eru við störf þar. Ég er enginn hagfræðingur en hverjir eiga virkjanir, stóriðjur og útgerðir á Íslandi? eru það ekki erlendir aðilar? er Ísland ekki bara gjaldþrota? það þorir enginn að segja það.“ Hvernig viðbrögð hefur þú fengið við tilkynningunni í Fréttablaðinu? „það hringdi einn maður í mig sama morgun og tilkynningin birtist. við töluðum saman í rúma tvo tíma.“ Hvaða áhrif hefur efnahags- kreppan á líf þitt? „Ég finn fyrir henni þó að ég hafi ekki tapað neinu.“ Hvernig sérðu Ísland fyrir þér á næsta ári? „Ég kvíði næsta ári. Ég er ansi hræddur um að lífeyrisgreiðslur mínar eigi eftir að lækka. Skattar eigi eftir að hækka sem og allt vöruverð. er öryrki, hef bara þessar greiðslur frá Tryggingastofnun og lífeyris- sjóðnum.“ Hverjir eru draumar þínir? „Ég á mér marga drauma. vona að heilsa mín verði betri á næsta ári en á þessu.“ Á að boða til kosninga næsta vor? „já, bara vegna þess að það er allt að fara til fjandans hérna núna.“ ElÍn Guðmundsdóttir 30 ára STarFSmaður á HeildSölu „já mér finnst það, vegna þess að þessi ríkisstjórn er ekki starfhæf.“ ÁsGEir Guðmundsson 23 ára nemi „nei, það er bara alveg útilokað, það er svo mikil vitleysa.“ BErGsvEinn JóHannEsson 71 árS ellilÍFeyriSþegi „já, við þurfum nýja stjórn og annað, við þurfum að ræða málin.“ rúnar KÁrason 39 ára STarFSmaður Hjá n1 Dómstóll götunnar Halldór HÁKonarson öryrki birti tilkynningu í Fréttablað- inu fyrir helgi þar sem hann axlar ábyrgð á efnahagskreppunni. Hann segir marga menn bera ábyrgð en all- ir bendi þeir hver á annan. Myndi stokka upp í seðlabankanuM „veistu, ég bara veit það ekki, mér er eiginlega alveg sama, skiptir mig engu máli.“ lÁra rÁn svErrisdóttir 19 ára nemi maður Dagsins Aðförin gegn lýðræðinu Í dag veit enginn – fyrir utan einn mann sem reyndar neitar að deila vitneskju sinni með þjóðinni – af hverju breska ríkisstjórnin beitti Ís- lendinga hryðjuverkalögum. Þetta er fráleit staða. Fyrirfram hefði mað- ur talið eðlilegt að það lægi skýrt fyr- ir af hverju ein þjóð grípur til slíkra örþrifaráða gagnvart annarri – sem í þessu tilviki hafa lengst af átt í vin- samlegum samskiptum. Það er af- leitt að við skulum enn ekki hafa fengið að vita af hverju Bretar gripu til svo róttækra aðgerða gegn okkur sem hafði jafnalvarlegar afleiðngar og raun ber vitni. umræðan í breska þinginu Meðan þetta liggur ekki fyrir er eðli- legt að reynt sé að geta í eyðurn- ar. Í þeim efnum hefur margt verið sagt. Í mínum huga er athyglisvert að skoða ummæli sem fallið hafa á breska þinginu um málið. Lávarð- urinn Campbell Savours segir t.a.m. þetta í umræðu í lávarðardeildinni 28. október síðastliðinn: „... að ummæli Davíðs Oddsson- ar um að vafi leiki á um innstæðu- tryggingar stjórnvalda, þar sem sagt var að erlendar skuldir yrðu ekki greiddar, settu ríkisstjórn Bretlands í ómögulega stöðu. Þessi yfirlýsing, auk grunsemda um tilraunir til þess að færa íslenskar eignir frá Bret- landi, þýddu það að ef ríkisstjórnin hefði ekki brugðist við eins og hún gerði hefði hún verið ásökuð um getuleysi. Það gátum við ekki látið gerast.“ Þetta eru athyglisverð ummæli lávarðarins vegna þess að látið hef- ur verið að því liggja að ummæli seðlabankastjóra, sem þarna er vís- að til, hafi haft lítil sem engin áhrif á afstöðu ráðamanna í Bretlandi. En þessi ummæli Savours benda augljóslega til annars. Enginn get- ur haldið því fram að þau hafi ekki komið til umræðu í Bretlandi eða þá að þau hafi ekki verið þekkt þar. Og hafi menn kannast við þau, ætti öllum að vera ljóst að þau hjálpuðu alls ekki málstað Íslendinga eða ís- lenskra fyrirtækja á erlendri grund í aðdraganada bankahrunsins. Fylgjast Brown og darling með Kastljósi? Þótt breskir ráðamenn fylgist sennilega ekki náið með ís- lenskum umræðu- og frétta- skýringaþáttum er ljóst að umræðan hefur borist þeim til eyrna – a.m.k. um þau mál sem snerta þá. Ummæli þess eðlis að íslensk stjórnvöld ætl- uðu ekki að standa við skuld- ir „óreiðumanna“ í útlöndum hafa vafalaust vakið athygli bresku utanríkisþjónust- unnar á Íslandi – sendi- ráðs Breta á Íslandi. Orð hafa vængi og þessi virðast hafa flogið inn í umræð- una í breska þinginu. Íslendingar eiga heimtingu á að vita hvað það var sem réð afstöðu Breta. Utanríkiráð- herra hefur sagt að rannsókn ráðuneytis- ins hafi ekki dregið fram nægar skýr- ingar. Ekki nægir að einn maður búi yfir þeim upplýsingum. Þess vegna er kallað eft- ir því að þetta verði upp- lýst. Þjóðin þarf á því að halda. Hvers vegna beittu Bretar hryðjuverkalöggjöf? kjallari svona er íslanD 1 ómar er margdæmdur níðingur ómar ragnarsson, fimmtugur íslenskur maður var dæmdur í noregi fyrir tilraun til að nauðga ungri stúlku. Hann hefur á bakinu dóm á Íslandi fyrir sambærilegt brot. 2 Falbýður sig á gamla genginu brasilísk vændiskona falbýður sig. Hún hefur þó ákveðið að hækka ekki verðskrána heldur miðar við gengisskráningu frá því fyrir hrun. 3 lögregla auglýsir eftir kjaftaskúmum lögreglan í albuquerque í bandaríkjun- um leitar sér hjálpar í rannsókn á glæpum í sínu umdæmi. 4 samstarf með samfylkingu spennandi kostur Steingrímur j. Sigfússon biðlar til Samfylkingarinnar daginn sem hann reynir að fella ríkisstjórnina. 5 Kynþokkafull Bond-stúlka – myndir Olga Kurylenko skýst upp á stjörnuhim- ininn eftir leik í james bond-mynd. 6 Þriggja ára með strípur Sonur Katie Price vekur athygli þar sem hann kemur vel til hafður fram með móð- ur sinni. 7 velur Charlize fram yfir angelinu Pierce brosnan hefði valið aðra mótleikkonu í næstu mynd sína. mest lesið á dv.is lúðvÍK BErGvinsson alþingismaður skrifar „Ummæli þess eðlis að íslensk stjórnvöld ætluðu ekki að standa við skuldir „óreiðu- manna“ í útlöndum hafa vafalaust vakið athygli bresku utan- ríkisþjónustunnar á Íslandi.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.