Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2008, Page 16
þriðjudagur 25. nóvember 200816 Ættfræði
70 ára í dag
30 ára
n Monika Katarzyna Malkowska Hringbraut 61,
Reykjanesbær
n Michal Toczynski Álfaskeiði 10, Hafnarfjörður
n Göksel Dagdevir Hamraborg 38, Kópavogur
n Aleksandra Julia Wegrzyniak Vitastíg 17,
Reykjavík
n Konrad Kaminski Torfufelli 46, Reykjavík
n Gunnar Sigurjónsson Efstasundi 35, Reykjavík
n Kristmundur Þór Guðjónsson Flétturima 14,
Reykjavík
n Jón Steindór Þorsteinsson Fannahvarfi 3,
Kópavogur
n Gísli Finnur Aðalsteinsson Burknavöllum 15,
Hafnarfjörður
n Guðlaugur Viðar Viðarsson Heiðarhrauni 1,
Grindavík
40 ára
n Nenita Refrea Magusara Öldugötu 11, Dalvík
n Andrzej Kozlowski Hamraborg 7, Kópavogur
n Rannveig Jóna Jónasdóttir Hófgerði 17,
Kópavogur
n Einar Þór Hauksson Vesturfold 38, Reykjavík
n Sigurður Jónsson Miðtúni 10, Tálknafjörður
n Björk Valdimarsdóttir Erluási 2, Hafnarfjörður
n Magnús Þór Friðriksson Hraunbæ 2, Hveragerði
n Bryndís Magnea Dardi Hafnarbraut 11,
Kópavogur
n Jón Ingi Dardi Baugakór 5, Kópavogur
50 ára
n Haraldur Hreinsson Digranesheiði 4, Kópavogur
n Valgerður Bjarnadóttir Sólheimum 10,
Reykjavík
n Agnar Hannesson Johnson Aflagranda 34,
Reykjavík
n Jónína Sigurðardóttir Ljósuvík 24, Reykjavík
n Ingveldur Thorarensen Klausturhvammi 9,
Hafnarfjörður
n Þröstur Harðarson Neðri-Brunná, Búðardalur
n Pétur Andrésson Heiðarlundi 20, Garðabær
n Svanhildur Jensdóttir Lækjargötu 32,
Hafnarfjörður
n Anna Rósa Jóhannsdóttir Steinahlíð 7b,
Akureyri
n Þórhildur Ragna Geirsdóttir Marklandi 16,
Reykjavík
n Sigríður Jónsdóttir Lyngbrekku 5, Húsavík
n Bjargey Magnúsdóttir Jaðarsbraut 39, Akranes
60 ára
n Erla Harðardóttir Álakvísl 26, Reykjavík
n Nanna Teitsdóttirm Blásölum 24, Kópavogur
n Sigurður Ingólfsson Hlésey, Akranes
n Hjördís Guðmundsdóttir Flétturima 2,
Reykjavík
n Kristján Ragnarsson Svínaskálahlíð 7,
Eskifjörður
n Hilmar Jónsson Hömrum 14, Djúpivogur
70 ára
n Sveindís Helgadóttir Vesturbergi 128, Reykjavík
n Tómas Tómasson Gyðufelli 12, Reykjavík
n Björg Helgadóttir Miðleiti 12, Reykjavík
n Aðalheiður Ragnarsdóttir Vitabraut 11,
Hólmavík
n Lilja Jóhannsdóttir Miðgarði 9, Neskaupstaður
75 ára
n Kristján Bjarnason Árgilsstöðum 2, Hvolsvöllur
n Sturla F Þorgeirsson Byggðarholti 15,
Mosfellsbær
n Rúnar Lárus Ólafsson Hraunbraut 18,
Kópavogur
n Hermann Sigurðsson Garðarsbraut 79, Húsavík
80 ára
n Elín H Guðmannsdóttir Þorragötu 5, Reykjavík
n Eirný Sæmundsdóttir Arahólum 4, Reykjavík
n Dagbjört Guðlaugsdóttir Blómsturvöllum 3,
Grindavík
n Karl Finnbogason Einivöllum 5, Hafnarfjörður
n Björn Jóhannesson Leynisbraut 34, Akranes
n Elísa M Kwaszenko Boðagerði 1, Kópasker
n Hjörtur Guðmundsson Litlu-Gröf, Borgarnes
n Haukur Bjarmi Óskarsson Eyjabakka 28,
Reykjavík
85 ára
n Kristjana Eggertsdóttir Boðagranda 2,
Reykjavík
n Elín Sumarliðadóttir Skarðshlíð 12c, Akureyri
n Guðrún Þorvaldsdóttir Logasölum 5, Kópavogur
Ásmundur Ólafsson
fyrrv. framkvæmdastjóri dvalarheimilisins höfða á akranesi
Ásmundur fæddist á Akranesi og
ólst þar upp. Hann útskrifaðist úr
Verslunarskóla Íslands og verslun-
arskóla í London.
Ásmundur vann við bókhald í
Reykjavík og síðan við Bæjarútgerð
Akraness. Hann var lengi starfs-
maður Síldar- og fiskimjölsverk-
smiðju Akraness hf. og Sements-
verksmiðjunnar. Ásmundur varð
framkvæmdastjóri Dvalarheimilis-
ins Höfða á Akranesi 1981 og sinnti
því starfi til 2005 er hann hætti fyrir
aldurs sakir.
Ásmundur sat í stjórn Knatt-
spyrnufélags Akraness, sjálfstæðis-
félaginu Þór og kiwanisklúbbnum
Þyrli. Þá hefur hann setið í stjórn
SÁÁ um langt árabil.
Fjölskylda
Ásmundur kvæntist 16.7. 1966, Jón-
ínu Ingólfsdóttur, f. 10.4. 1941, yfir-
ljósmóður. Foreldrar Jónínu: Ingólf-
ur Jónsson og k.h., Mikkalína M.
Alexandersdóttir.
Börn Ásmundar og Jónínu eru
Þórður, f. 28.4. 1968, kaupmað-
ur í Reykjavík en kona hans er Elín
Gunnlaug Alfreðsdóttir og eiga þau
tvö börn; Stefán Orri, f. 18.3. 1971, d.
13.5. 1977.
Fóstursonur Ásmundar og son-
ur Jónínu er Ingólfur Geir Gissurar-
son, f. 4.12. 1962, fasteignasali, fyrrv.
íþróttakennari og margfaldur Ís-
landsmeistari í sundi og maraþon-
hlaupi, kvæntur Margréti Svavars-
dóttur og eiga þau þrjár dætgur.
Syskini Ásmundar eru Þórður, f.
11.10. 1931, d. 8.11. 1936, Sigurður, f.
21.9. 1933, fyrrv. framkvæmdastjóri;
Ragnheiður, f. 6.1. 1935, húsmóðir
og fyrrv. skrifstofumaður; Þórður
Helgi, f. 5.1. 1937, fyrrv. rannsókn-
armaður, Gunnar, f. 26.11. 1945, að-
albókari; Ólafur Grétar, f. 16.1. 1948,
umboðsmaður Sjóvár á Akranesi.
Foreldrar Ásmundar eru Ólafur
Frímann Sigurðsson, f. 23.3. 1903,
d. 28.3. 1991, fyrrv. forstjóri á Akra-
nesi, og k.h., Ólína Ása Þórðardótt-
ir, f. 30.11. 1907, d. 14.5. 2006, hús-
móðir.
Ætt
Ólafur er sonur Sigurðar, formanns
á Sýruparti á Akranesi Jóhannes-
sonar og Guðrúnar Þórðardóttur,
sjómanns á Akranesi Halldórsson-
ar.
Ólína er dóttir Þórðar, útgerð-
armanns á Akranesi Ásmundsson-
ar, útvegsbónda á Háteigi á Akra-
nesi Þórðarsonar, b. í Elínarhöfða
á Akranesi Gíslasonar. Móðir Ás-
mundar var Elín Ásmundsdóttir,
b. í Elínarhöfða Jörgenssonar, b. í
Elínarhöfða Hanssonar Klingen-
bergs, b. á Krossi á Akranesi, ættföð-
ur Klingenbergsættar. Móðir Þórðar
var Ólína Bjarnadóttir, b. á Kjarans-
stöðum Brynjólfssonar, b. á Ytra-
hólmi, bróður Þuríðar, langömmu
Halldóru, ömmu Sigurdórs Sig-
urdórssonar, blaðamanns, Skaga-
manns og bekkjarbróður Ólafs, sem
varð sjötugur í gær. Brynjólfur var
einnig bróðir Arndísar, langömmu
Finnboga, föður Vigdísar, fyrrv. for-
seta. Þá var Arndís langamma Har-
alds, afa Halldórs Blöndal, fyrrv.
ráðherra. Brynjólfur var sonur
Teits, vefara í Reykjavík og ættföð-
ur Vefaraættar Sveinssonar. Móð-
ir Ólínu var Helga Ólafsdóttir Step-
hensen, b. og stúdents í Galtarholti
Björnssonar Stephensen, dóms-
málaritara á Esjubergi Ólafsson-
ar, stiftamtmanns í Viðey Stefáns-
sonar, ættföður Stephensenættar.
Móðir Ólafs Stephensen var Mar-
grét Jónsdóttir, systir Jóns Espól-
ín, sýslumanns á Frostastöðum.
Móðir Helgu var Anna Stefánsdótt-
ir Scheving, umboðsmanns á Leirá
Vigfússonar Scheving, sýslumanns
á Víðivöllum Hanssonar Scheving,
klausturhaldara á Möðruvöllum
Lauritzsonar Scheving, sýslumanns
á Möðruvöllum, ættföður Scheving-
ættar.
Móðir Ólínu var Emelía Þor-
steinsdóttir, útvegsbónda á Grund
á Akranesi Jónssonar, b. á Ölvalds-
stöðum Runólfssonar. Móðir Þor-
steins var Ragnheiður Jóhannsdóttir,
pr. á Hesti Tómassonar, stúdents og
skálds á stóru Ásgeirsá Tómassonar.
Móðir Ragnheiðar var Oddný Jóns-
dóttir, b. og umboðsmanns á Melum
Ketilssonar, bróður Magnúsar, sýslu-
manns á Skarði. Móðir Jóns var Guð-
rún Magnúsdóttir, systir Skúla land-
fógeta. Móðir Emelíu var Ragnheiður
Þorgrímsdóttir Thorgrímssonar, pr.
á Saurbæ á Hvalfjarðarströnd Guð-
mundssonar, pr. á Lambastöðum
Þorgrímssonar. Móðir Þorgríms var
Sigríður Halldórsdóttir, pr. í Hítardal
Finnssonar, biskups í Skálholti Jóns-
sonar. Móðir Ragnheiðar var Ingi-
björg Guðmundsdóttir, systir Helga
Thordersen biskups.
Ásmundur verður að heiman á
afmælisdaginn.
Til
hamingju
með
afmælið!
Einar fæddist í Vestmannaeyjum
og ólst þar upp. Hann lauk hinu
minna vélstjóraprófi 1958, sveins-
prófi í múrverki í Reykjavík 1969 og
öðlaðist síðar meistararéttindi.
Einar hefur síðan starfað við
múrverk í Reykjavík og gerir það
enn.
Einar sat í stjórn Hvítasunnu-
kirkjunnar í Vesmannaeyjum
1963-67, og Hvítsunnukirkjunn-
ar Fíladelfíu í Reykjavík 1983-90,
var fulltrúi í trúboðanefnd Hvíta-
sunnukirkjunnar á Íslandi, gjald-
keri kristniboðsjóðs Hvítasunnu-
kirkjunnar í Vestmannaeyjum
1949-63, er félagi í Gideonfélag-
inu frá 1991, kapellán frá 1993 og
tengiliður í landssambandsstjórn
frá 1998, félagi í Hinu íslenska
Biblíufélagi, elsta starfandi fé-
lagi landsins, frá 1991, söng í Kór
Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu
1969-89, var gjaldkeri Kristniboðs-
sjóðs hvítasunnumanna 1978-83,
sat í stjórn barnaheimilisnefndar
Kotmúla í Fljótshlíð 1972-73 og sat
í stjórn blaða- og bókaútgáfunnar
1983-89.
Fjölskylda
Einar kvæntist 26.8. 1961 Hall-
dóru Traustadóttir, f. 28.6. 1939,
ljósmóður. Hún er dóttir Trausta
Guðjónssonar trésmíðameistara
og Ragnheiðar Jónsdóttur sauma-
kona. Þau bjuggu lengst af í Vest-
mannaeyjum.
Synir Einars Guðna og Halldóru
eru Trausti Ragnar, 25.5. 1962, bif-
vélavirkjameistari og múrarameist-
ari í Reykjavík, kvæntur Susanne
Anderson og eiga þau eina dóttur,
Tinnu Lindu; Gunnar Jónas, 2.5.
1966, matreiðslumeistari í Reykja-
vík, kvæntur Þóru Arnardóttur og
er sonur þeirra Arnar Ingi auk þess
sem Gunnar á son af fyrra hjóna-
bandi Elí Þór; Fjalar Freyr, f. 4.7.
1971, kennari við Lundarskóla á
Akureyri, kvæntur Dögg Harð-
ardóttur og eru synir þeirra Ein-
ar Aron og Jóel; Sindri Reyr, f. 8.1.
1980, öryggisvörður hjá IKEA.
Systkini Einars eru Jóhanna, f.
15.7. 1931, d. 2.10. 1938; Jóhann
Hilmar, f. 14.4. 1934, fyrrv. bif-
reiðastjóri í Vestmannaeyjum;
Sigurbjörg, f. 7.2. 1942, húsmóð-
ir í Vestmannaeyjum; Jóhann, f.
5.5. 1940, fyrrv. bæjarstarfsmaður
í Vestmannaeyjum; Magnús Þór, f.
4.5. 1947. forstjóri við elliheimilið
Hraun í Vestmannaeyjum.
Foreldrar Einars voru Jónas
Guðmundsson, f. 1886, d. 1979,
verkamaður í Vestmannaeyjum, og
Guðrún Magnúsdóttir, f. 1906, d.
1987, húsmóðir.
Einar Guðni Jónasson
múrarameistari í reykjavík
„Nei, ég stefni nú bara á að vera í
vinnunni í dag,“ segir íþróttakenn-
arinn Jón Steindór Þorsteinsson
sem fagnar þrítugsafmælinu sínu
í dag spurður um plön dagins.
„Ég hélt upp á daginn síðastlið-
inn laugardag í góðum hópi vina
og ættingja.“ Jón Steindór segist
hafa verið löngu búinn að ákveða
að halda veglega upp á tímamótin
og bauð því sjötíu nánustu vinum
og ættingjum til veislu. Veislan var
haldin í sal og var boðið upp á veg-
legar veitingar að sögn Jóns Stein-
dórs. „Markmiðið með veislunni
var að ná allri fjölskyldunni sam-
an, mig var búið að langa það
lengi.“
Jón Steindór segist lítið hafa
spáð í gjafir þetta árið né ósk-
að eftir neinu sérstöku. „Reyndar
langaði mig í ipod og hann fékk
ég, annars skipti það mig mestu
málið að sjá og hitta fólkið mitt,
ekki gjafirnar.“
Aðspurður hvort hann telji sig
mikið afmælisbarn segir hann það
nú ekki vera. „Ég held almenni-
lega upp á daginn á fimm ára
fresti, þess á milli held ég í mesta
lagi smá teiti.“
Að lokum segir Jón Steindór
aldurinn ekki snerta sig að nokkru
leyti. „Það truflar mig ekkert að
vera orðinn þrítugur,“ segir af-
mælisbarnið hresst að lokum.
kolbrun@dv.is
Jón Steindór Þorsteinsson er þrítugur í dag.
MarkMiðið að ná fjölskyldunni saMan
jÓN STEINDÓR ÞORSTEINSSON
ætlar bara að vera í vinnunni í dag en
hélt heljarinnar afmælisveislu
síðastliðinn laugardag.
70 ára í gær