Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2008, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2008, Page 20
þriðjudagur 25. nóvember 200820 Fókus á þ r i ð j u d e g i Bond heldur toppsætinu bond-myndin Quantum of Solace heldur toppsætinu á aðsóknarlista kvikmynda- húsanna fyrir nýliðna helgi. þetta er þriðja vika myndarinnar í fyrsta sætinu og hafa nú rúmlega 50 þúsund manns séð njósnara hennar hátingar bjarga heiminum enn eina ferðina. Body of lieS kemur ný inn á lista og fer beint í annað sætið. Reykjavík-RotteRdam hækkar sig um eitt sæti, fer úr því fimmta í fjórða, en tæplega 26 þúsund manns hafa nú séð myndina. Steinar Sigurjónsson er eitt hinna gleymdu skálda sögunnar. Bók- menntastofnunin ýtti honum til hlið- ar, inn í skugga stórvelda á borð við Laxness, Guðberg og Thor, og sjálfur átti hann ugglaust sinn þátt í því að svo fór. Hann varð utangarðsmaður sem lítt var hampað síðari árin sem hann lifði. Samt hætti hann aldrei að skrifa. Í mjög áhugaverðri stúdíu, sem út kom fyrr á þessu ári, dregur Eirík- ur Guðmundsson, bókmenntafræð- ingur og útvarpsmaður, upp áleitna mynd af stórbrotnum og frumleg- um listamanni, beittum rýnanda samfélags, mannlífs og menning- ar, heimspekingi og andlegum leit- anda, margbrotnum og mótsagnar- kenndum. Ef slík bók dugar ekki til að koma skáldi á kortið, þá veit ég ekki hvað gæti gert það. En seinlát og treg Stofnunin, með Akademíuna að baki sér, er að vísu andstæðingur sem enginn skyldi vanmeta. Sjálfur kynntist ég Steinari lítil- lega nokkrum árum áður en hann dó. Langvarandi útislark hafði sett mark á manninn, umtalaður fríð- leiki og glæstur þokki fyrri ára var að mestu strokinn burt. Mér fannst hann dálítið hrokafullur, en það var vafalaust hans vörn gagnvart harð- neskju heimsins. Hann sagði mér að hann væri á leið til leikhússins og sýndi mér leiktexta eftir sig. Ég gat nú ekki séð að mikið myndi verða úr þeim í munni og höndum leik- enda; kannski missást mér í því; þó er ég ekki viss. Gyðjur leiklistarinnar tóku skáldið aldrei upp á arma sína, þrátt fyrir heitar ástarjátningar, ekki fremur en þær vildu líta við Halldóri Laxness sem þráði einnig að verða alvöruleikskáld, öðlast frægð og við- urkenningu í útlöndum fyrir snjall- ar sviðsbókmenntir. Það áttu þeir þó sameiginlegt: útigangsmaðurinn og sigurvegarinn mikli sem lagði heim- inn að fótum sér, þó að hann ynni ekki allar orrusturnar. Nú hefur Steinn loks tyllt fæti á leiksviðið. Á sviði Hafnarfjarðarleik- hússins gerir Rúnar Guðbrandsson tilraun til að blása lífi í „skáldheim“ hans. Rúnar hefur einnig verið utan- veltu í hinum örsmáa og ofurþrönga leikhúsheimi Íslands, en hann er hæfileika- og kunnáttumaður þrátt fyrir það og gleðilegt að hann skuli hafa fundið sér verðugt verkefni og komist þetta langt með það. Þó að setja megi spurningarmerki við sitt- hvað í leikgerð og sýningu, einstak- ar lausnir og úrvinnslu, er þetta lofs- verð tilraun, djörf og metnaðarfull. Hér er sannarlega ekki verið að fara auðveldu leiðina í leiksviðsvæðingu epískra texta: söguþræðinum ekki kippt upp í heilu líki, samtölin skrif- uð beint upp með smástyttingum, eins og tíðkast hefur í hérlendu leik- gerðastarfi, að heita má frá upphafi. Um það eru leikrit þau sem búin hafa verið til upp úr skáldsögum Laxness, skýrt dæmi. Flest, langflest. Nei, Rúnar fer frjálsri hendi um sögur Steinars, tekur eitt héðan, ann- að þaðan, blandar saman, lagar til í persónugalleríinu, allt með það fyrir augum að búa til kraftmikla leiklist. Sjálfsagt nýtur hann þess að skáld- ið er ekki lengur meðal vor og eng- in hætta á að það fari að þvælast fyrir – sem ég er hræddur um að Halldór Laxness hafi gert á sínum dögum. Rúnar veit að leiksviðið kallar á sam- þjöppun, hnitmiðun, skýrleik. Hér verður að finna einhverja færa leið; hér dugar ekki að gera bara eitthvað út í bláinn. Sú leið, sem Rúnar vel- ur sér, er hliðstæð aðferð Kjartans Ragnarssonar í frægri leikgerð hans á Ofvitanum, ef einhver man eftir henni (kannski Sjónvarpið endur- sýni upptöku hennar við tækifæri, nú þegar leikarar eru búnir að semja). Rúnar leiðir sem sé skáldið sjálft inn á sviðið og tvískiptir því, eins og Kjartan gerði við Þórberg: þarna er Steinar gamli og Steinar ungi. Stein- ar gamli heitir Sjóni (eitt af mörgum skáldnefnum hans), sá ungi Bugði (líka eitt af skáldnefnunum). Hjálm- ar Hjálmarsson leikur Sjóna, Tómas Lemarquis Bugða. Þeir tveir eru mik- ið að baða sig í sýningunni og hafa til þess tvö baðkör sem á örugglega að skilja symbólskt. Sýningin hefst á því að Bugði ungi stígur allsber upp úr lauginni, en sá eldri fækkar ekki föt- um þegar hann dembir sér ofan í, og þarf svo að vafra lengi um votur inn að skinni. Ég vona að hitakerfi húss- ins sé í lagi og að það eigi ekki eftir að slá að Hjálmari. Hið góða við þessa tvískiptingu er að hún fellur svo vel að Steinari sjálf- um, endurspeglar svo vel klofning- inn sem kannski gerði hvort tveggja í senn: eyðilagði hann sem borgara og hélt sköpunargáfunni við. Bugði ungi er sléttgreiddur og fínlegur, með yfirvaraskegg eins og Clark Gable; Sjóni gamli lífsreyndur, þó ekki óhóflega markaður af hrjónóttu lífs- hlaupi, skáldlega upphafinn svo að jaðrar við tilgerð; samt alls engin fíg- úra. Öllu nettilega skilað af Hjálmari. Sjóni svífur yfir þorpinu eins og andi, laus við það og þó bundinn því, en Bugði vill komast sem fyrst á braut, flýja þá martröð sem frumstætt og klúrt líf þess hlýtur að vera draum- lyndum fagurkera. Tómas Lemarquis er ungur leikari sem hefur vakið at- hygli fyrir góðan kvikmyndaleik, en minna sést á sviði; það merkist vissu- lega að hann er ekki eins vanur því, en hann á augljóslega skilið að fá þar fleiri tækifæri. Samband skáldsins við þennan uppruna sinn, botnlausan sóðaskap hans, tilgangslaust ofbeldi, enda- lausa drykkju, kynferðislega áþján og allsherjar formyrkvun sálarinn- ar, er blanda af ást og hatri. Því býð- ur við honum, en það losnar ekki við hann, af því að það sér í ljótleika hans svo mikla fegurð, fegurð sem það veit að lokum að muni standast allan samanburð við klassískar feg- urðarmyndir hinnar öldnu Evrópu. Sem víðar börðust heimsborgarinn og þjóðernissinninn um sál lista- mannsins; Steinar var ekki einn um það. Ætli það sé ekki helsta afrek leik- stjórans og þeirra ágætu listamanna, sem með honum starfa, hversu makalausar myndir þeim tekst að særa fram af þessum dýrðlega ljót- leika? Sjáið bara þau Árna Pétur Guðjónsson og Hörpu Arnardótt- ur í hlutverkum hjónanna, Kidda og Láru. Hvílíkur leikur – og hvílík leik- gervi! Þetta íslenska almúgafólk líkist engu venjulegu fólki, heldur miklu fremur vættum eða hálftröllum, fólki úr hraungrjóti, hafseltu og mosa, ófreskjum sem þó er hægt að brosa að og finna jafnvel til með. Þetta eru steinar í djúpi, ef til vill þó skyldastir verum þeim sem Kjarval sá í landinu og dró fram með sínum töfraskúfi. Það var mýstískur strengur í Steinari líka, strengur sem kemur betur fram í skáldverkinu Djúpinu en Skagasög- unum svokölluðu sem eru eldri og hér aðallega stuðst við. Ég veit ekki hvort er ástæða til að lýsa hér þeim efasemdum sem ég hef um úrvinnslu Rúnars í leikritun og sviðsetningu; eiginlega kallar það á analýsu og greinargerð sem myndi bera einn lítinn leikdóm ofurliði; þá þyrfti ég einnig að sjá sýninguna oft- ar, lesa mér betur til í textunum. Hið hversdagslega hlutverk leikdóm- arans er nú einu sinni að gefa ein- kunnir, segja hvað honum þótti gott og hvað miður gott, og það er víst líka það sem flestir vilja heyra (nema auðvitað þeir þjónar listarinnar sem þurfa enga gagnrýni). Ég hef þeg- ar sagt hvaða leikarar mér fundust skara fram úr. Hinir eru svolítið mis- jafnir. Ólafur Darri Ólafsson og Erling Jóhannesson skiluðu vel umkomu- leysi sjómannanna, gervi Erlings af- bragðsgott, heillandi ógeðslegt. Björn Ingi Hilmarsson er ekki leikari sem ég myndi láta leika rudda, en ég sé á Facebook, sem nú er orðin aðalheim- ild okkar um Hafnarfjarðarleikhúsið, að hann kom seint inn í vinnuna í stað annars leikara sem forfallaðist. Karl Guðmundsson skilaði vel því litla sem hann var látinn gera. Stein- unn Knútsdóttir er í góðu lagi á með- an hún segir ekki neitt, en þegar hún lauk upp munni sínum var hún ekki eins góð. Birna Hafstein hefur einn- ig ágætt útlit í Ónu, þokkadísina sem verður fórnarlamb þorpsvarganna og birtist síðast sem afturganga; þar á hún mikla og magnaða ræðu sem Birnu tókst ekki að gæða viðeigandi óhugnaði. Leikmynd, ljós, tónlist og hljóðeffektar; allt til fyrirmyndar, út- hugsað, smekklegt og faglega unnið. Það er helst að ég myndi gera at- hugasemd við stóra senu undir lok- in þar sem leikstjórinn lætur suma leikarana afklæðast. Rúnar leikstjóri Atómstöðin í útrás Hljómsveitin Atómstöðin gerði nýlega samning við bandaríska út- gáfufyrirtækið 272 records um út- gáfu á laginu Think No á safnplötu sinni Riot on Sunset vol. 14. Lagið er fyrsta smáskífa plötunnar Exile Republic, sem Atómstöðin sendi frá sér fyrr á árinu, og jafnframt fyrsta smáskífa safnplötunnar og fékk lagið þó nokkra spilun á íslenskum út- varpsstöðvum síðastliðið sumar og í haust. Lagið hefur nú þegar fengið spilun á nokkrum útvarpsstöðvum vestanhafs. 272 records sérhæfir sig í að þefa uppi áhugaverða tónlist- armenn sem enn eru ósamnings- bundnir í Bandaríkjunum og hefur á undanförnum árum gefið út tugi safnplatna. hrAðAri niðursveiflA leigumyndA Niðursveifla á leigumarkaði bíó- mynda hér á landi hélt áfram á síðasta ári. Raunar hélt sveifl- an ekki aðeins áfram heldur jók hún hraðann. Þetta kemur fram í grein í nýjasta tölublaði kvik- myndatímaritsins Lands og sona. Árið 2006 nam samdrátturinn sex prósentum en á síðasta ári dróst markaðurinn saman um nítján prósent. Aðsókn í kvikmyndahús hefur einnig skroppið saman, þó ekki jafnhratt, og hefur áhorf- ið færst yfir á sölumyndbönd og VOD-þjónustur. Fróðlegt verður að sjá hvort þessi þróun haldi áfram nú þegar kreppir að í efna- hagsmálum landsmanna. verðlAunAregnið heldur áfrAm Íslenskar kvikmyndir halda áfram að vinna til alþjóðlegra verðlauna og um þessar mundir eru það Spán- verjar sem verðlauna. Logs.is greinir frá því að á dögunum hafi Astrópía unnið til tvennra verðlauna á Fant- astic Film Festival of the University of Málaga, annars vegar áhorfenda- verðlaunin sem besta myndin og hins vegar sérstaka viðurkenningu frá alþjóðlegri dómnefnd. Þá hlaut Skrapp út svokölluð Golden Gir- aldillo-verðlaun á Seville Europ- ean Film Festival um þarsíðustu helgi. Um er að ræða aðalverðlaun hátíðarinnar sem tryggja myndinni dreifingu á Spáni. Loks hlaut stutt- myndin Skröltormar fyrstu verðlaun á alþjóðlegu stuttmyndahátíðinni Alcine í Madrid um þarsíðustu helgi. leiklist Lab Loki í HafnarfjarðarLeikHúsinu: Steinar í djúpinu Höfundur leikgerðar og leikstjóri: rúnar guðbrandsson Leikmynd: móeiður Helgadóttir Lýsing: garðar borgþórsson Búningar: myrra Leifsdóttir Gervi: Ásta Hafþórsdóttir Tónlist: guðni franzson „ljótt er fAgurt – fAgurt ljótt ...“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.