Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2008, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2008, Blaðsíða 6
„Einhverjir kjarasamningar frá ár- inu sem nú er að líða eru ófrágengn- ir. Hins vegar er ljóst að í janúar og febrúar hefst mikil samningahrina því á fyrri hluta árs eru allir kjara- samningar meira eða minna laus- ir. Fyrstu mánuðir ársins einkennast mjög af umræðu um kjaramál og þá fléttast inn í það fjármál ríkis og sveit- arfélaga. Þá kemur til endurskoðunar og endurnýjunar samninga og margt stefnir í það að verkalýðshreyfingin komi sameinuð að borði,“ segir Ög- mundur Jónasson, formaður BSRB. Samstaða í verki „Ég finn mjög fyrir því innan BSRB og þar sem ég þekki innan verka- lýðshreyfingarinnar almennt að fólk vill standa saman og sýna samstöðu í þeim erfiðleikum sem við stöndum frammi fyrir sem þjóð. Ég heyri það í röðum launafólks að það er eindreg- inn ásetningur að þétta raðirnar. Í stað þess að menn horfi núna til auk- inna kjarabóta verður slagurinn um það að draga sem kostur er úr skaða kreppunnar og jafna kjörin í land- inu,“ segir Ögmundur. Of snemmt að spá Ögmundur telur of snemmt að spá hvernig ástandið verði í byrjun árs í þessari miklu samningahrinu. Sig- urður Bessason, formaður Efling- ar, og Gylfi Arnbjörnsson, forseti Al- þýðusambands Íslands, vilja einnig lítið spá í spilin að svo stöddu. „Í byrjun árs verður farið í það að skoða kjarasamninga á almenna vinnumarkaðinum og heildarsamn- inga fyrir vinnumarkaðinn. Í þeirri vinnu munu koma saman heildar- samtökin á vinnumarkaðinum og at- vinnurekendamegin hjá ríki, sveitar- félögum og Samtökum atvinnulífsins. Þar verður verkefnið að finna hvernig hægt verður að fara inn í næsta ár í ljósi ástandsins í þjóðfélaginu. Það er alltof snemmt að spá því þessi vinna er öll eftir en einn fundur verður tek- inn fyrir áramót,“ segir Sigurður sem vonar að sjálfsögðu að eitthvað skýr- ist á þessum eina fundi í lok árs. Stjórnvöld efna ekki loforð „Það eru engir kjarasamningar inn- an okkar raða lausir. Nú erum við að endurskoða kjarasamninga og þeirri vinnu á að ljúka fyrir 15. febrúar. Það hefur verið deila milli okkar og stjórnvalda meðal annars vegna fjármálafrumvarpsins og það er óvissa hvernig framhaldið verð- ur um það. Það er ekkert hægt að spá á þessari stundu en það er ljóst að flestallir kjarasamn- ingar á opinbera sviðinu, sem snýr að ríkinu, eru lausir í mars. Á almenna markaðinum losna samningar 1. mars ef ekki tekst að framlengja þá þannig að það er æðimargt undir,“ segir Gylfi Arnbjörnsson hjá ASÍ. „Við vonum að það gerist eitt- hvað áður en samningar losna. Mað- ur tryggir ekki eftir á. Stjórnvöld eru ekki að efna loforð sem gerð voru við gerð kjarasamn- inga í febrúar þannig að það er fátt sem hjálp- ar okkur í þessu,“ segir Gylfi. þriðjudagur 30. desember 20086 Fréttir Sandkorn n Þá munar ekki um það, verkalýðsforkólfana á Húsavík, að hafa stór orð um það þegar þeir eru ánægðir með störf ráðherranna. Rétt eins og kröf- ur þeirra hafa stundum verið háværar þegar þeir hafa verið ósáttir við framgöngu stjórnvalda. Þannig má lesa frétt á vef stéttar- félaganna í Þingeyjarsýslum um það að hækkun atvinnuleysisbóta hafi verið flýtt. Ekki fer á milli mála að skrifari, hvort sem það er Aðalsteinn Baldursson eða einhver samstarfsmaður hans, er hæstánægður með þessa ákvörðun. Enda er fyrirsögnin einfaldlega: „Jóhanna er bara frábær ráðherra!“ n Annars er af Aðalsteini Bald- urssyni, formanni Framsýnar- stéttarfélags, að frétta að hann fer í kirkju á gamlárs- dag þegar aftansöng- ur verður í Húsavík- urkirkju. Slíkt væri kannski ekki í frá- sögur færandi en núna lætur hann sér ekki nægja að hlýða á messu heldur flytur hann hugvekju í tilefni dagsins. Svo er bara að sjá hverju verka- lýðsforkólfurinn skeleggi spáir um atburði næsta árs eftir það gjörningaveður sem lands- menn hafa gengið í gegnum síðustu mánuði. Alla vega má telja víst að hann megi hafa sig allan við að halda utan um sitt fólk á ári sem hefur verið spáð að verði eitt hið versta um ára- tugaskeið. n Rannveig Rist, forstjóri Al- can á Íslandi, hefur ástæðu til að brosa þessa dagana. Hún var valin maður ársins í íslensku at- vinnulífi af dómnefnd tímaritsins Frjálsrar verslun- ar. Að mati dómnefnd- arinn- ar hefur Rannveig sýnt mikla leiðtoga- hæfileika og hæfni við rekstur álversins í Straumsvík auk þess að eiga farsælan feril að baki, hafa verið frumkvöðull á sviði menntunar í stóriðju og verið í forystu í málefnum kvenna í atvinnulífinu um langt skeið. Lýðræðið er í hættu Endalok Ameríku Frí heimsending http://www.eshop.is/bendill Pöntunarsímar: 567-9818 / 897-9818 Allir kjarasamningar í landinu eru meira eða minna lausir á fyrstu mánuðum árs- ins. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, finnur fyrir því að launafólk vilji þétta raðirnar og sýna samstöðu í þessum miklu erfiðleikum sem þjóðin gengur í gegnum. Stjórnvöld efna ekki loforð sem gerð voru við gerð kjarasamninga í febrúar sem gerir verkalýðsfélögunum erfitt um vik. Allt í lAusu lofti Mikil óvissa Flestallir kjarasamningar sem heyra undir ríkið eru lausir í mars og vilja verkalýðsforkólfarnir ekkert spá um hvernig fer í þeim málum. LJóSMyndari: Sigtryggur ari JóhannSSOn LiLJa Katrín gunnarSdóttir blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is óánægður með stjórnvöld gylfi arnbjörnsson er ósáttur við stjórnvöld sem hafa ekki staðið við loforð sín. Kjörin jöfnuð Ögmundur jónasson finnur fyrir mikilli samstöðu í landinu og telur það helsta baráttumálið á nýju ári að jafna kjörin í landinu. Þrálátur orðrómur hefur verið uppi um veikindi ingibjargar Sólrúnar: Heilsu ingibjargar ekki hrakað Skúli Helgason, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, segir að heilsu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, ut- anríkisráðherra og formanns Sam- fylkingarinnar, hafi ekki hrakað upp á síðkastið og að henni heilsist vel. „Heilsa Ingibjargar er góð,“ segir Skúli. Þrálátur orðrómur hefur verið uppi síðustu daga um að heilsu Ingi- bjargar Sólrúnar hafi hrakað töluvert en hún gekkst undir tvær aðgerðir í september og október í haust eftir að hún hafði greinst með góðkynja mein í höfði. Ingibjörg veiktist á Alls- herjarþingi Sameinuðu þjóðanna í lok september og þurfti að hætta þátttöku á þinginu. Í kjölfarið fannst meinið við læknisrannsókn á sjúkra- húsi í New York. „Það hefur ekki komið neitt bak- slag í bata Ingibjargar og við höfum ekki fengið neinar neikvæðar frétt- ir af heilsufari hennar eftir að hún gekkst undir aðgerðirnar í haust. Hún gat auðvitað ekki beitt sér að fullu strax eftir þær en þetta er allt að þokast í rétta átt hjá henni,“ seg- ir Skúli og bætir því við að orðróm- urinn um hrakandi heilsu Ingibjarg- ar hafi oftsinnis borist sér til eyrna á síðustu dögum en að hann viti ekki hvaðan hann spretti og að hann sé ekki á rökum reistur. Skúli segir Ingibjörgu vera eins og aðra landsmenn og að hún mæti til vinnu á morgnana og sinni sín- um störfum. Hann segir að þrátt fyrir veikindin hafi Ingibjörg unnið rúmlega fullan vinnudag frá því hún gekkst undir aðgerðirnar tvær en að veikindin hafi vissulega haft áhrif á hana. Skúli segir að auðvitað hefði verið betra fyrir Ingibjörgu að geta tekið sér frí frá vinnu eftir aðgerð- irnar tvær en ástandið í þjóðfélaginu hafi ekki boðið upp á það. ingi@dv.is ingibjörg Sólrún gísla- dóttir Framkvæmdastjóri samfylkingarinnar segir orðróminn um að heilsu utanríkisráðherrans hafi hrakað ekki á rökum reistan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.