Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2008, Blaðsíða 32
ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 200832 Völvuspá
Í fréttum er þetta helst
n Næsta ár verður ár upp-
ljóstrana um spillingu og
hagsmunatengsl sem hafa
sett mark sitt á íslenskt
þjóðlíf áratugum saman.
Í fyrsta sinn verður tal-
að opinberlega um mútu-
greiðslur í almennri umfjöll-
un.
n Sumt af því sem kemur upp þykir
almenningi ekki tiltökumál en annað
veldur mikilli reiði og æsingi í samfé-
laginu. Völvan sér nokkra þjóðþekkta
menn í fylgd lögreglu vegna mála af
þessu tagi. Má nefna Gunnar Birgis-
son, bæjarstjóra í Kópavogi, Tryggva
Jónsson, fyrrum endurskoðanda
Baugs, Sigurjón Árnason, fyrrum
bankastjóra, Frosta Bergsson at-
hafnamann, Þorstein Má Baldvins-
son og Óskar Magnússon, fyrrum
forstjóra TM, svo aðeins fáeinir séu
nefndir. Eins og stundum áður mun
almenningi þykja sem smáfiskarnir
náist en hákarlarnir sleppi.
n Fátt verður til lykta leitt af þess-
um málum á árinu heldur hefj-
ast langvinnar rannsóknir
sem seint sér fyrir endann á.
n Völvan sér eitthvert hneyksli
tengjast margboðaðri rann-
sóknarnefnd ríkisstjórnarinn-
ar sem skoða á aðdraganda banka-
hrunsins. Einhver þar innanborðs
segir af sér vegna þess og rannsókn
málsins tefst svo að engra niður-
staðna er að vænta á nýju ári.
n Völvan sér afsagnir nokk-
urra manna í tengslum
við eftirmála bankahruns
og kemur þar sumt á óvart
en meðal þeirra sem hverfa
af vettvangi eru Jónas Fr., yf-
irmaður Fjármálaeftirlitsins, og
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kaup-
hallarinnar. Völvan sér Árna Mathie-
sen fjármálaráðherra tengjast afsögn
Þórðar og þar kemur óhreinn þvottur
fram í dagsljósið sem vekur furðu.
n Mjög sérstætt morðmál kemur upp
á árinu og þótt það virðist í fyrstu
vera fremur einfalt liggja þræðir frá
því langt inn í íslenskt stjórnkerfi og
tengjast hruni bankanna. Málið kem-
ur upp seint á árinu og völvan sér ekki
endalok þess en óhætt er að spá því
að þjóðin standi á öndinni þegar líð-
ur á haustið.
n Mótmæli gegn ríkisstjórninni og
kreppunni blossa upp á ný eft-
ir áramótin en eftir að ljóst
verður að kosningar verða
í vor lognast þau út af. En
áður en það gerist mun
sverfa til stáls milli harð-
skeyttra mótmælenda
og lögreglu og völvan sér
afar hörð átök sem geta end-
að með því að einhver týnir lífi.
Einnig sér völvan mótmælatengdar
aðgerðir sem beinast gegn tilteknum
banka eða stofnun. Miklar skemmd-
ir verða af eldi eða sprengiefni en til-
ræðismennirnir finnast aldrei.
fjölmiðlar
n Fjölmiðlar verða
harðlega gagn-
rýndir á árinu fyr-
ir slaka umfjöll-
un í tengslum
við bankahrun-
ið. Upplýsingar um
það hvernig fjölmiðl-
um var misbeitt í þágu eigenda sinna
í góðærinu koma upp á yfirborðið og
valda reiði og hneykslun. Völvan sér
núverandi ritstjóra ónefnds tímarits
stíga fram í sviðsljósið og tala hjarta
sitt hreint um þessa hluti og hljóta lof
fyrir.
n Morgunblaðinu verður bjargað frá
gjaldþroti. Hluti af þeirri björgun-
araðgerð felst í því að leyfa samruna
Fréttablaðsins og Morgunblaðsins
þótt úrskurður Samkeppniseftirlitsins
gangi í raun gegn því.
n Skuldir verða
afskrifaðar og
nýir hluthafar
koma inn í rekst-
ur Morgunblaðs-
ins. Í framhaldinu
verða nokkrar breyt-
ingar á opinberri afstöðu blaðsins í
viðkvæmum deilumálum en nýir eig-
endur eru með sterkt bakland í sjáv-
arútvegi.
n Stöð 2 heldur áfram að berjast í
bökkum og í upphafi ársins verð-
ur gripið til niðurskurðar þar á bæ
og verða ýmsar þekktar fjölmiðla-
stjörnur atvinnulausar eftir það.
Ríkisútvarpið verður áfram í mið-
punkti deilna starfsmanna við Pál
Magnússon og er hart deilt um starfs-
aðferðir hans og tök á rekstrinum. Páll
heldur sínu striki og deilurnar hljóðna
þegar RÚV tekur forystu í umfjöllun
um viðkvæmt hneykslismál sem Stöð
2 á erfitt með að sinna vegna tengsla
við þá sem fjallað er um.
n DV heldur áfram að koma út og al-
mennt séð styrkir það stöðu sína á
nýju ári, enda fer eftirspurnin eftir
hlífðarlausum fjölmiðlum vaxandi. Á
því sviði mætir það þó óvæntri sam-
keppni þegar nýtt
málgagn fer að
koma út vikulega.
Völvan sér Mika-
el Torfason og
læriföður hans,
Gunnar Smára
Egilsson, þar í for-
svari en óljóst þó.
n Útvarp Saga hættir starfsemi
snemma á árinu og útförin fer fram
í kyrrþey. Í framhaldinu sér völvan
Arnþrúði Karlsdóttur í afhjúpandi
viðtali eða sýna framkomu í fjölmiðl-
um sem verður henni ekki til mikils
sóma.
fræga fólkið
n Mikil umfjöllun verður á
nýju ári um þá sem verða
kallaðir vel klæddir öreigar
en það eru þeir sem áður
voru efnaðir en töpuðu
aleigunni á bankahrun-
inu og eiga nú ekkert nema
Range Roverinn og húsið og
hafa engar tekj-
ur. Þótt mörgum
þyki það ómak-
legt verður ít-
rekað skopast að
neyð þessa fólks
sem að lokum rís
til varnar.
n Björk Guðmundsdóttir heldur
áfram að taka þátt í umræðunni um
nýtt Ísland og uppbyggingu þess.
Völvan sér hana í ræðustól á al-
þjóðavettvangi að tala um Ís-
land og allir hlusta.
n Margir sem áður voru óþekkt-
ir eða lítt þekktir verða fræg-
ir á árinu einkum með þátttöku í
stjórnmálum, enda verður mikil end-
urnýjun í öllum stjórnmálaflokkum.
Meðal þeirra sem vekja athygli með
þátttöku sinni í framboði flokka eru:
Kolfinna Baldvinsdóttir, Bryndís
Schram, Sverrir Stormsker, Andri
Snær Magnason, Gylfi Magnússon,
Þorvaldur Gylfason, Hallgrímur
Helgason, Sturla Jónsson og Helga
Vala Helgadóttir. Völvan sér sumt
þetta fólk inni á þingi eftir kosningar.
n Ásdís Rán, fyrirsæta og fjöllista-
maður, verður áfram reglulega í sviðs-
ljósinu af margvíslegum ástæðum og
þykir sýna mikið hugmyndaflug til að
komast hjá því að falla í gleymsku.
n Árni Magnússon, fyrrverandi ráð-
herra og vonarstjarna Framsóknar-
flokksins, verður í sviðsljósi nýs árs
með afar neikvæðum hætti og tengist
það fjármálum hans og einkalífi.
n Völvan sér Geir Ólafsson söngv-
ara í sviðsljósinu snemma ársins fyrir
eitthvað annað en söng og verður það
honum til sóma.
n Björgvin Halldórsson verður einn-
ig í fréttum á árinu fyrir eitthvað annað
Sigurjón Árnason
Einn þeirra sem tengjast
munu leiðindamálum
sem koma upp.