Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2008, Page 30
ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 200830 Völvuspá
n Árið 2009 verður eitt
hið þungbærasta sem
Íslendingar hafa lif-
að á lýðveldistíman-
um. Viðskiptalífið er
í rústum eftir hrun
bankanna og gjaldþrot,
samdráttur og fjöldaat-
vinnuleysi mun ríkja hvert
sem litið er.
n Gjaldþrot eða stórfelld vand-
ræði nær allra fyrirtækja sem
tengdust útrás eða hinum
svokölluðu útrásarvíking-
um munu einkenna allan
fréttaflutning af sviði við-
skipta. Það mun koma í ljós
að hvað höfðingjarnir haf-
ast að, hinir ætla sér leyfist það.
Smærri spámenn í við-
skiptum stunduðu
nefnilega loftbólu-
viðskipti og glæfra-
legar veðsetning-
ar skúffufyrirtækja
í jafnmiklum mæli
og þeir sem fremst fóru.
Þetta kemur í ljós á nýju ári þeg-
ar hundruð smárra og meðalstórra
fyrirtækja verða gerð upp og reyn-
ast vera eignalaus. Erlendir
bankar ná nær fullum yfir-
ráðum yfir íslensku bönk-
unum og í uppgjörum
þeirra kemur margt í ljós.
Kafveðsett útgerðarfyrir-
tæki lenda þannig í hönd-
um útlendinga sem veld-
ur miklum vandræðum vegna
eignarhalds í kvótanum og
deilur tengdar því standa
allt árið.
n Úti um allt land finnast
húseignir og jarðir sem
misjafnlega stórum spá-
mönnum hefur tekist að veð-
setja langt fram úr raun-
verulegu verðmæti
og mun marga
reka í rogastans
við þá orma-
gryfju sem þar
opnast.
n Segja má að
orðalagið „þetta er verra
en við héldum“ verði nokkurs konar
einkennisorð ársins sem í hönd fer.
DV nýtti sér í fyrsta sinn um síðustu áramót þjónustu völvu nokkurrar sem virðist sjá skýrar inn í framtíðina en margar aðr-
ar. Þetta ár sem nú er að verða liðið bar marga óvænta atburði í skauti sér og segja má að sérstaklega hafi atburðir haustsins
komið þjóðinni allri í opna skjöldu. En hvað sagði völvan þegar hún sat við kristalskúlu sína í góðærinu á aðventu 2007?
RaungeRving völvuspáR
viðskiptalífið:
n „Þetta verður þungur
vetur og erfiður fyrir
þá sem skulda mikið
og margir sem áður
bárust mikið á munu
þurfa að draga mjög
saman seglin.
Persónuleg gjaldþrot
nokkurra þekktra einstaklinga í
viðskiptalífinu í kjölfar þessa samdráttar
mun vekja töluverða athygli fjölmiðla
og áður umsvifamikill viðskiptajöfur,
nánar tiltekið Hannes Smárason, mun
flytja af landi brott eftir skipbrot af því
tagi snemma árs.“
stjóRnmálin:
n „Þegar líður á vor og sumar fara að
sjást verulegir brestir í samstarfi
núverandi borgarmeirihluta og það er
spá völvunnar að Dagur B. Eggertsson
verði borgarstjóri á nýju ári í jafnmarga
daga og liðirnir eru í hári hans …“
n „Björn Ingi mun hverfa af vettvangi
stjórnmálanna á nýju ári og hasla
sér völl í viðskiptalífinu …“
n „Ólafur F. Magnússon
verður mikið í sviðsljósinu í
tengslum við upplausn
borgarmeirihlutans en
hverfur svo af sjónarsviðinu.“
listiR, menning og
fjölmiðlaR:
n „Magnús Geir Þórðarson verður
ráðinn leikhússtjóri Leikfélags
Reykjavíkur.“
n „Völvan sér Einar Má Guðmundsson
mikið í kastljósinu á nýju ári …“
n „Sérstaklega mun harðna í ári hjá
Árvakri sem berst við taprekstur og á
nýju ári verður útgáfu 24 stunda
hætt …“
n „Útgáfu Nyhedsavisen sem
Baugur gefur út í Kaupmanna-
höfn verður hætt snemma á árinu.“
Þegar þessi brot eru lesin verður ekki
séð annað en að völvan hafi séð fyr-
ir ýmsa óvænta hluti eins og harka-
legan samdrátt í viðskiptalífinu þótt
hún hafi ekki beinlínis spáð því hruni
sem raunin varð.
Hún hefur greinilega séð marga
leiki fram í tímann í því flókna spili
sem borgarpólitíkin varð og sérstak-
lega er spáin um fjölda valdadaga
Dags Eggertssonar áhugaverð. Spá
hennar um Nyhedsavisen, lokun 24
stunda og vandræði Árvakurs hefur
einnig komið fram.
Magnús Geir var ráðinn til LR og
Einar Már hefur verið
mikið í sviðsljósinu
sem ræðumaður
á mótmælafund-
um í tengslum við
bankahrunið.
n „Dv mun hjaRa við haRðan kost
en útgáfa þess gæti bReyst á
áRinu og útgáfuDögum fækkað.“
Þetta er dæmi um spá sem ekki gekk
eftir en Viðskiptablaðið breyttist í
helgarblað svo líklega hefur verið
frekar dimmt í kristalskúlunni þegar
þessi spádómur var gerður.
viðskiptalífið sveitaRstjóRnaRmál
n Á nýju ári verður meiri frið-
ur um borgarstjórn Reykja-
víkur en oft áður. Hanna
Birna Kristjánsdóttir get-
ur sér gott orð sem sköru-
legur borgarstjóri og völvan
sér hana í mjög jákvæðu ljósi
vegna mannúðlegra viðbragða
borgarinnar í kreppunni þegar líð-
ur á veturinn.
n Völvan sér hins vegar vandræði
í flestum nágrannasveitarfélögum
Reykjavíkur. Gunnar Birgisson flæk-
ist í spillingarmál, Hafnfirðingar berj-
ast í bökkum vegna skulda og völv-
an sér Árna Sigfússon bæjarstjóra
í Reykjanesbæ stíga til hliðar vegna
mikilla deilna sem tengjast fyrirhug-
uðu álveri í Helguvík.
n Völvan sér Ísafjarðarbæ segja
sig til sveitar vegna fjárhags-
vandræða og hið sama
hendir stórt sveitarfélag á
Norðurlandi.
n Á árinu frestast enn
ákvörðun um byggingu álvers
á Bakka við Húsavík og
missa margir trúna á
að af því verði yfirleitt
og völvan sér mikla
ókyrrð og flutninga
kringum Húsavík á
árinu. Harðar deilur
verða heima í héraði
meðal Þingeyinga vegna
fyrirhugaðrar virkjunar í Skjálfanda-
fljóti sem kemst á dagskrá á nýju ári
en mætir mikilli andspyrnu.