Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2008, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2008, Qupperneq 31
n Þeir sem stjórnuðu útrásinni fyrir Ísland eiga erfitt ár í vændum. Sumir þeirra standa uppi eignalausir og í ljós kemur að nokkrir útrásarvíkinganna voru ekki sjálfstæðir viðskiptamenn heldur leppar þeirra sem leiddu hóp- inn. Þeir fara verst út úr kreppunni því þegar kreppir að hjá bakhjörlum þeirra standa lepparnir einir á ber- angri. Þorsteinn M. Jónsson, Magn- ús Ármann, Pálmi Haraldsson og fleiri nafntogaðir viðskiptasnilling- ar munu koma fram sem hálfgerðir bónbjargarmenn á árinu og verður útganga þeirra úr viðskiptum heldur snautleg svo ekki sé fastar að orði kveðið. n Jón Ásgeir Jóhann- esson berst til síðustu stundar fyrir fyrirtæki sínu og hlýtur við það nokkra virðingu alþýðunn- ar en í árslok standa hann og faðir hans nánast aftur á sínum byrj- unarreit í Bónus þar sem sigurganga þeirra hófst. Fyrir utan verslunar- rekstur á Íslandi verða nær allar eignir feðganna horfnar í skulda- hítir um allan heim þótt ekki verði um formlegt gjaldþrot að ræða. n Bakkavararbræður verða gjald- þrota á árinu og kjósa að setjast að er- lendis líkt og Hannes Smárason og mun lítið fara fyrir þeim. Völvan sér hins vegar bankamenn sem tengj- ast Baugsfyrirtækjum mikið í sviðs- ljósinu, sérstaklega eru það Sigurjón Árnason og Tryggvi Jónsson sem standa í miðju mikillar orrahríðar snemma á árinu. Birna Einarsdótt- ir, bankastjóri Nýja Glitnis, mun segja sig frá embætti sínu um mitt árið eftir mikinn þrýsting. Elín Sigfúsdóttir, bankastjóri Landsbankans, mun einnig segja sig frá embætti á nýja ár- inu vegna hreinsana sem gerðar verða í bankanum vegna óánægju með skuldaskil við stóra aðila í sam- félaginu. n Bjarni Ármannsson kemur aftur inn í sviðs- ljósið vegna einhvers konar endurkomu í íslenskt viðskiptalíf. Það sama á við um þá Kaupþingsmenn Sig- urð Einarsson og Hreið- ar Má Sigurðsson sem snúa í ein- hverri mynd aftur í viðskipti á Íslandi á árinu. Völvan sér ekki betur en þeir muni gegna stöðu óvinsælustu manna landsins á árinu og sér þá umkringda lífvörðum ef ekki lögregluþjónum. n Björgólfsfeðgar halda áfram að berj- ast fyrir fjárhagslegu lífi sínu. Það tekst fyrir þeim yngri en ekki föður hans en völvan sér hann stríða við vanheilsu á árinu. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2008 31Völvuspá Útrásarvíkingar stjórnmálin n Árið mun einkennast af heiftar- legum átökum á stjórnmálasviðinu. Sjálfstæðisflokkurinn klofnar í kjölfar mik- illa átaka á lands- fundi flokksins. Þar verður sam- þykkt að stefna í aðildarviðræður við ESB. Í kjölfarið segja margir fulltrú- ar útgerðarinnar, bænda og lands- byggðarinnar sig úr lögum við flokk- inn. Geir Haarde situr þó áfram í stóli formanns flokksins en Bjarni Bene- diktsson tekur við sem varaformað- ur því Þorgerður Katrín hverfur af vettvangi stjórnmála vegna mála sem tengjast hruni bankanna. n Samfylkingin gengur einn- ig í gegnum mikla hreinsun á árinu. Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir hættir sem formaður flokks- ins af persónulegum ástæðum og Össur Skarphéðinsson tekur við stjórntaumunum á ný en völvan sér þó Jóhönnu Sigurðardóttur í ein- hverju lykilhlutverki. n Í kjölfar þessara átaka verður nýr stjórnmálaflokkur í framboði sem hefur það helst á stefnuskrá sinni að berjast gegn aðild Íslendinga að ESB. Völvan sér Davíð Oddsson leggja þeim flokki lið en ekki fylgja honum til kosninga. Flokkurinn, eða öllu heldur framboðið, mun í fyrstu laða til sín skipbrotsmenn úr öðrum flokkum, bæði Framsóknarflokki og Vinstri- heryfingunni - grænu framboði, sem fara ekki varhluta af ESB-átökunum en þar verða það helst ungliðar sem flæmast úr flokknum þegar formað- urinn gefur ekkert eftir í andstöðu sinni við ESB. Þegar á líður setja per- sónulegar deilur mark sitt á framboð- ið sem missir flugið. n Ástæða þess að Davíð tekur þátt í stjórnmálum að nýju er að snemma á nýju ári verða kynntar breytingar á yfir- stjórn Seðlabankans. Þær eiga að taka gildi á vor- dögum og fela í sér hvarf allra stjórnenda bankans úr valdastóli en Davíð, einn þeirra, kýs að vinna ekki út upp- sagnarfrestinn. Bankanum verður stjórnað af einum manni í framtíðinni og mun val ríkisstjórnarinnar á hon- um vekja furðu og deilur í fyrstu sem hjaðna síðan. n Jafnframt þessu verður tilkynnt um brotthvarf Árna Mathiesen, Björgvins G. Sigurðssonar og Þorgerðar Katr- ínar Gunnarsdóttur úr ríkisstjórn. Þetta ásamt umskiptum í Seðlabanka verður til þess að auka trú almennings á stjórninni og hún situr á friðarstóli fram að kosningum í vor. Þegar talið verður upp úr kössunum verður stór- sigur Samfylkingar og vinstri-grænna að veruleika og saman mynda þessir flokkar ríkisstjórn undir forsæti Stein- gríms J. Sigfússonar. Framsóknar- flokkurinn geldur mikið afhroð undir stjórn Páls Magnússonar, nýkjörins formanns, og Sjálfstæðisflokkurinn sest í stjórnarandstöðu mikið laskaður og raunamæddur. Hinn nýi fullveldis- flokkur fær alls ekki þann mikla stuðn- ing sem búist var við í fyrstu en völvan sér hann samt fá menn á þing. n Í skiptum fyrir stól forsætisráðherra samþykkir Steingrímur J. Sigfús- son að farið verði í aðildarviðræður við ESB og þær verða til lykta leiddar seint á árinu og í framhaldinu verður boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu í árs- byrjun 2010. n Í tengslum við fyrirhugaðar kosn- ingar koma fram smælingjar sem getið hafa sér gott orð í mótmælum á haustmánuðum. Þetta á við um Hörð Torfason, Gunnar Sigurðsson leikstjóra, Kolfinnu Baldvinsdóttur, Sturlu vörubílstjóra og fleiri en völv- an sér ekkert þeirra á þingi eftir kosn- ingar. Tvísýn framtíð Tveir af ráðherrunum á myndinni munu standa upp úr stólum sínum. Hinir tveir munu rísa til enn meiri metorða. Framhald á næstu opnu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.