Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2008, Side 56
ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 200856 Sakamál
Peningana eða lífið Peningar geta fengið margan mann-
inn til að fremja ódæði. Sú var raunin hjá Harold Ingram sem hafði nurlað
saman dávænni upphæð með því að lifa nánasarlegu lífi í fjölda ára, eig-
inkonu sinni til mikillar armæðu. Að lokum fór svo að eiginkonan þoldi
ekki lengur við og sagði skilið við Harold. Samkvæmt skilnaðarsamkomu-
lagi skyldi hún fá dágóða upphæð eða heimili þeirra hjónanna þegar skiln-
aður þeirra yrði frágenginn. Harold ákvað að það skyldi aldrei verða.
Lesið um nánösina Harold Ingram í næsta helgarblaði DV.
Eiginkona, móðir,
morðingi
Öllum sem þekktu Audrey Hilley er hulið hví hún framdi ódæði sín. Frank, eiginmaður hennar, dó úr arsenikeitr-
un og dóttir hennar var við dauðans dyr vegna sams konar eitrunar. Audrey tókst að flýja réttvísina í rúmlega
þrjú ár og var dæmd til lífstíðarfangelsis, en hún hafði ekki hugsað sér að enda líf sitt á bak við lás og slá.
Svikakvendið og morðinginn Au-
drey Marie Frazier fæddist árið
1933 og giftist Frank Hilley árið
1951, þá átján ára að aldri. Þegar
hér er komið sögu er árið 1975 og
Frank gengur ekki heill til skógar.
Í maímánuði leitaði hann læknis
vegna ógleði og kviðverkja. Lækn-
arnir úrskurðuðu að hann þjáð-
ist af veirusýkingu en hann var
síðar lagður inn á sjúkrahús því
ekkert gekk að ráða niðurlögum
verkjanna. Enn síðar kom í ljós að
Frank var með lifrarbólgu.
Árla morguns 25. maí 1975
lést Frank Hilley, og þar sem and-
lát hans hafði borið skjótt að var
framkvæmd krufning. Þá kom í
ljós að bólgur voru í nýrum og
lungum og sýking í maga, en þar
sem einkennin drógu sterklega
dám af einkennum lifrarbólgu var
ekki leitað eiturefna.
Frank Hilley og Audrey höfðu
lifað til þess að gera viðburða-
litlu lífi. Frank var líftryggður fyrir
um 30.000 Bandaríkjadali og um
þremur árum eftir dauða eigin-
manns síns líftryggði Audrey dótt-
ur þeirra, Carol, fyrir 25.000 dali.
Banvæn áhrif 25.000 dala líftrygg-
ingar hófu að gera vart við sig í ág-
úst 1978.
Sálræn veikindi eða eitrun
Um nokkurra mánaða skeið fann
Carol oft og tíðum fyrir ógleði og
var lögð inn á sjúkrahús nokkrum
sinnum. Ári eftir líftrygginguna gaf
Audrey dóttur sinni sprautu sem,
að hennar sögn, myndi draga úr
ógleðinni, en þvert á fullyrðing-
ar Audrey jókst ógleðin til mik-
illa muna auk þess sem Carol fór
að missa tilfinningu í líkamanum.
Hún var lögð inn á sjúkrahús til
rannsóknar.
Læknarnir gátu ekki fundið
ástæðu fyrir ástandi Carol og því
vaknaði sá grunur að það byggðist
á sálrænum vandamálum. Á með-
an Carol var rannsökuð af sálfræð-
ingum var hún í tvígang sprautuð
af móður sinni, sem sagði að eng-
inn mætti fá vitneskju um það;
hún hefði fengið lyfið hjá vini sem
var hjúkrunarfræðingur.
Audrey hafði, líkt og um-
hyggjusamri móður bar, áhyggj-
ur af veikindum dóttur sinnar og
spurði lækni hvað ylli veikindun-
um. Hann sagði að hann héldi að
um væri að ræða vannæringu og
skort á vítamínum, en einnig að
hann grunaði að um væri að ræða
málmeitrun á háu stigi.
Lík Franks grafið upp
Carol var flutt á háskólasjúkra-
húsið í Alabama til frekari rann-
sókna, en móðir hennar var um
þær mundir handtekin fyrir að
falsa ávísanir á tryggingafélag-
ið þar sem Carol var líftryggð. Þar
með féll líftrygging Carol úr gildi.
Á meðan á því stóð kom ýmislegt í
ljós við rannsóknir á Carol.
Hár Carol innihélt fimmtíu
sinnum það magn af arseniki sem
eðlilegt getur talist og þann 3. okt-
óber var úrskurðað að hún væri
fórnarlamb arsenikeitrunar og að
henni hefðu verið gefnir sístækk-
andi skammtar um fjögurra til
átta mánaða skeið. Þann sama dag
var lík Franks grafið upp til frekari
rannsókna og kom í ljós að bana-
mein hans hafði verið arsenikeitr-
un og magn eitursins gaf til kynna
að honum hefði verið gefið það
um margra mánaða skeið fyrir
dauða hans.
Audrey var enn í varðhaldi
vegna ávísanamisferlis þegar hún
var handtekin fyrir morðtilraun
við dóttur sína þann 9. október og
við nánari athugun á veski hennar
fann lögreglan í Alabama sprautu
sem innihélt arsenik. Tveimur vik-
um síðar fann systir Franks krukku
með rottueitri í fórum Audrey.
Audrey hverfur
Níunda nóvember var Audrey
sleppt gegn tryggingu og einhvern
tímann frá þeim degi til þess 18.
sama mánaðar hvarf Audrey Mar-
ie Hilley. Eina sem fannst var orð-
sending sem gaf til kynna að henni
kynni að hafa verið rænt. Tilkynn-
ing var send út og Audrey var orðin
að flóttamanni.
Þann 19. nóvember var brot-
ist inn hjá frænku Audrey. Bifreið
frænkunnar, fatnaði og ýmsu öðru
var stolið. Í húsinu fann lögreglan
miða sem á stóð: „Ekki hafa sam-
band við lögreglu. Við brennum
ofan af þér ef þú gerir það. Við
fengum það sem okkur vantaði og
munum ekki ónáða þig aftur.“
Ellefta janúar 1980 var Audrey
ákærð, fjarverandi, vegna morðs-
ins á Frank. Þá hafði komið í ljós
að bæði móðir og tengdamóðir
Audrey höfðu haft töluvert magn
arseniks í líkamanum þegar þær
létust, þó ekki banvænt.
En næstu þrjú ár bar leit lög-
reglunnar að Audrey ekki árang-
ur, og var engu líkara en hún hefði
horfið af yfirborði jarðar. En því fór
fjarri.
Hjónaband og tvíburasystir
Audrey hafði lagt land undir fót
og farið til Flórída og kallaði sig
Robbi Hannon. Hún kynntist John
Homan og eftir að þau höfðu búið
saman í meira en ár gengu þau
í hjónaband, í maí 1981. Hjóna-
kornin fluttu til New Hampshire
og engar blikur voru á lofti. Á með-
an á hjónabandi þeirra stóð var
Audrey tíðrætt um Teri Martin, tví-
burasystur sína, sem bjó í Texas.
Síðla sumars 1982 sagðist Au-
drey þurfa að fara frá New Hamp-
shire til að sinna fjölskyldumálum,
auk þess sem hún þyrfti að leita
læknis vegna krankleika sem hún
hefði glímt við. Audrey fór til Tex-
as og Flórída og notaði nafnið Teri
Martin. Á meðan hún var fjarver-
andi hringdi hún í John. Hún sagð-
ist vera Teri Martin og að Robbi
hefði látist í Texas. Það væri þó
engin ástæða fyrir hann að rjúka
af stað því líkami Robbi hefði ver-
ið gefinn til rannsókna í læknavís-
indum.
Rétt fyrir miðjan nóvember
snéri Audrey heim til New Hamp-
shire og hafði þá litað á sér hárið
og grennt sig. Þar hitti hún John
Homan og þóttist vera Teri, tví-
burasystir látinnar eiginkonu
hans.
Minningargrein um Robbi
birtist í einhverju dagblaði í New
Hampshire og fyrir einhverra
hluta sakir fékk lögreglan áhuga
á Robbi Hannon. Þrátt fyrir góðan
vilja virtist ekki með nokkru móti
hægt að staðfesta neinar upplýs-
ingar sem komu fram í greininni.
Einn rannsóknarlögreglumað-
ur fékk á tilfinninguna að maðkur
væri í mysunni og að Teri Martin
væri í raun Robbi Hannon og væri
á flótta undan réttvísinni. Hug-
boð hans sannaðist skömmu eft-
ir að Teri var tekin til yfirheyrslu.
Teri viðurkenndi að hún væri í
raun Robbi, sem væri í reynd Au-
drey Marie Hilley. Hún var send til
Alabama þar sem réttað skyldi yfir
henni.
Einfalt mál og dómur
Mál Audrey Hilley naut vinsælda á
meðal fjölmiðla, en það var í raun
ekki flókið og hún fékk lífstíðardóm
fyrir morðið á Frank og tuttugu ára
dóm fyrir morðtilraun við Carol. Eft-
ir að hún hóf afplánun 1983 var Au-
drey fyrirmyndarfangi og var umb-
unað með því að fá að komast út úr
fangelsinu einn dag í senn, nokkrum
sinnum.
Audrey skilaði sér alltaf til baka,
en í huga sér var hún að skipuleggja
flótta.
Tækifærið kom í febrúar 1987
þegar hún fékk þriggja daga leyfi til
að vera með John, eiginmanni sín-
um, sem hafði sýnt henni tryggð
þrátt fyrir allt.
Eftir að hafa notið samvista í einn
dag á hóteli í Anniston þurfti John
að bregða sér frá og Audrey lét sig
hverfa. En Audrey hafði ekki heppn-
ina með sér og frelsi hennar varð
skammvinnt. Fjórum dögum síðar
fékk lögreglan í Anniston tilkynn-
ingu um grunsamlega manneskju og
við nánari athugun kom í ljós að þar
var Audrey á ferðinni. Hún var illa til
reika eftir að hafa verið á þvælingi í
skóglendi í fjóra daga. Ekki bætti úr
skák að rignt hafði meira eða minna
þessa fjóra daga og líkamshiti Au-
drey var kominn niður úr öllu valdi.
Audrey Hilley fékk hjartaáfall
vegna ofkælingar og lést á leið á
sjúkrahúsið.
UMSJón: koLBEInn ÞoRStEInSSon, kolbeinn@dv.is
Rétt fyrir miðjan nóvember snéri
Audrey heim til New Hampshire,
og hafði þá litað á sér hárið og
grennt sig. Þar hitti hún John
Homan og þóttist vera Teri, tvíbura-
systir látinnar eiginkonu hans.
Audrey Marie Hilley Var dæmd
fyrir morð á eiginmanni sínum.
Fjögur andlit Audrey Þóttist
vera uppspunnin tvíburasystir sín.