Landshagsskýrslur fyrir Ísland - 01.02.1912, Page 47

Landshagsskýrslur fyrir Ísland - 01.02.1912, Page 47
ÍS7 ekki svo mikið, að stjórnin fengi fyrir það of mikið fje undir höndur, og þó hún gæli um nokkurn tíma fengið lán (af þessu fje) fyrir 4°/o, þá væri landið ekki verr statt en er nú fyrir þá sök, út af fyrir sig. þegar þessu máli var hreyft áður (um 1880) þá var mesta þörf á póst- sparisjóðum, en mótbáran var sú, að póslafgreiðslumenn gætu ekki reiknað vextina af uppliæðunum. Það liefur ávalt verið álitið sjálfsagt, að öll form, vaxtalöflur og hækur yrðu lagðar upp í höndurnar á þeim, svo mótbáran var ekki svo mikils virði, og er það því síður nú. Hin mótbáran er þyngri á melunum, að fjeð yrði eins og nú er komið, svo lítið, að það tæki því ekld að ná því saman. Það yrði svo 1., 2. og 3. árið, en allir sem þekkja til sparisjóðanna vita það líka, að þær 50,000 kr., sem eru komnar inn í þá, verða oftast kyrrar, og vaxa upp í 100,000, þaðan í 200,000 kr. o. s. frv., og það er ekki nema í einstöku neyðarárum að inn- lög í sparisjóðum minka. Það yrði alveg eins með póstsparisjóðina, þó landsjóður kæmi þeim á fót. Síðasta mótbáran, sein þarf að svara, er aðfinslan að liinni lágu rentu, sem lijer er stungið upp á. Margur mun liugsa, að fyrir 3% vilji enginn sjá af skild- ingunum sinum. Ekki hefur reynslan á Bretlandi sannað það, og þar var spari- sjóðsrentan í póstsparisjóðum 2°/o, eða jafnvel lægri. Það er ekki vaxtahæðin, sem innieigendur leggja mesta áherslu á, heldur vissan um að gela fengið peningana sina aflur, hvenær sem þeir vilja, og í því ættu póstsparisjóðir að standa framar öllum öðrum sparisjóðum á landinu, því þeir mundu taka við peningum og borga út peninga, á öllum póstafgreiðslustöðum á landinu. I.tlSK 1011. 18

x

Landshagsskýrslur fyrir Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Landshagsskýrslur fyrir Ísland
https://timarit.is/publication/509

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.