Lögmannablaðið - 01.06.2002, Page 5
L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð 5
Innanhúsmót í
knattspyrnu 2002
FÖSTUDAGINN 3. maí s.l. var haldið hið árlega
mót LMFÍ í innanhúsknattspyrnu. Sem áður var
mótið haldið í íþróttarhúsi Fram í Safamýrinni.
Mættu 6 lið til leiks og var leikið með því fyrir-
komulagi að allir léku við alla og réði saman-
lagður árangur því hvert liðanna teldist meistari.
Skipuðu menn sér í lið með kunnuglegum
hætti, utan þess að fótfimustu lögmenn bankageir-
ans mættu gráir fyrir jakkafötum og með þjón-
ustufulltrúa á hliðarlínunni. Kom leikur þeirra
öðrum liðum í opna skjöldu. Var sem þeir hafa
ótakmarkaðar úttektarheimildir í fyrstu leikjum,
en þegar á leið kom í ljós að ekki var innstæða
fyrir gengi liðsins sem féll hraðar en íslenska
krónan og endaði liðið í 3ja sæti.
Mörkin reyndist öðrum liðum betri að þessu
sinni og vann sannfærandi sigur. Kom í ljós að
hinn léttfætti formaður félagsins hefur slíkt að-
dráttarafl að það hrífur ekki aðeins nærstadda,
heldur virðist annað lauslegt einnig festast við
hann og eru boltar þar engin undantekning. Aðrir
í liðinu fylgdu formanninum eins og tungl fylgir
jörðu og saman varð þetta óvinnandi vígahnöttur.
Ekki verður þó við skilið án þess að minnast á
leynivopn þeirra Markarmanna, Óttar Pálsson,
sem kom sterkur til leiks.
Úrslit mótsins urðu annars þessi:
Röð: Nafn: U J T Mörk Stig
1. Mörkin 4 1 0 15:7 +8 13
2. RogL 3 0 2 20:9 +11 9
3. Bankó FC 3 0 2 10:9 +1 9
4. Þruman 2 0 3 7:11 –4 6
5. Grínarafélagið 1 1 3 11:11 4
6. FC 2002 1 0 4 4:20 –16 3
Íþróttafréttaritari.