Lögmannablaðið - 01.06.2002, Page 14

Lögmannablaðið - 01.06.2002, Page 14
14 SKYLDUAÐILD að Lögmannafélaginu ersíður en svo sjálfsögð. Helstu rökin fyrir henni hafa verið talin eftirlits- og agahlutverk félagsins, sem veitir umbjóðendum lögmanna tvímælalausa vernd. Félagið hefur því lagt áherslu á að fara sjálft með þetta vald, þótt framkvæmd hafi verið með misjöfnu sniði. Án eftirlits- og agavaldsins yrði ugglaust erfitt að verja einkarétt lögmanna til tiltek- inna starfa, sem yfirgnæfandi meiri- hluti félagsmanna er fylgjandi, sam- kvæmt könnun. Sú afstaða hlýtur af rökbundinni nauðsyn einnig að þýða að lögmenn séu almennt fylgjandi skylduaðildinni. Skylduaðild tryggir hins vegar engan veginn að félagsmenn láti sig málefni félagsins einhverju varða. Vegna þess var það mikið gleðiefni hversu vel nýafstaðin árshátíð félagsins var sótt, annað árið í röð, eftir stöðugt minnkandi aðsókn árin áður. Fyrir þetta ber vitaskuld fyrst og fremst að þakka þeim sem hátíðina sóttu og nutu, en öfl- ugri hátíðarnefnd og starfsfólki ber einnig að þakka vel unnið verk. Aðrir nýafstaðnir viðburðir á félagsins vegum hafa verið síður sóttir, en eru þó fyrir sitt leyti síst ómerkilegri en árshátíðin. Á aðalfundi félagsins leifði engu af því að almennir fundar- menn væru fleiri en þeir sem sátu í eða voru í framboði til stjórnar. Á fundi sem haldinn var um aukið samstarf félagsdeildar við önnur félög lögfræðinga, aðallega lögfræðingafélagið, voru fundarmenn ríflega tuttugu. Á fund, sem hald- inn var nýlega undir yfirskriftinni „Opinber um- fjöllun um dómsmál“, þar sem m. a. var að því spurt hvort nýlegur dómur Hæstaréttar fæli í sér aðför að tjáningarfrelsi lögmanna, voru fundar- menn úr hópi félagsmanna nánast vandræðalega fáir. Löggjafinn hefur skipað lögmönnum að hafa með sér félag og þeir einir geta kallað sig lög- menn, sem eru félagsmenn. Félaginu er, að skipan löggjafans og eigin samþykktum, ætlað hlutverk sem miklu varðar um störf allra lög- manna. Lögmenn ættu því að láta sig málefni félagsins varða, jafnvel þótt einungis væri af eigingjörnum hvötum. Sem fæddur Kennedy aðdáandi teldi ég þó enn betra að félagsmenn spyrðu hvað þeir gætu gert fyrir félagið, ekki einungis hvað félagið geti gert fyrir þá. Stjórn félagsins ætlar ekki að láta mótbyr, sem döpur aðsókn að nefndum viðburðum kann að virð- ast, draga úr sér kjark. Þvert á móti er beinlínis að því stefnt að fjölga félagsfundum, m. a. í því skyni að stjórnin skynji betur hug félags- manna til ýmissa málefna, sem fé- lagið þarf að fást við. Þannig er t. d. fyrirhugað að funda um það hvort rétt sé að á félagsins vegum starfi föst siðareglnanefnd. Forveri minn einn í starfi telur „að til séu algild sannindi og kröfur til siðlegrar hegðurnar breytist ekki í neinum meginat- riðum“, en engu að síður þurfi að taka tillit til breytinga sem verða kunni. Um þetta er ráð evr- ópskra lögmannafélaga, CCBE, honum sam- mála. Á vegum þess eru siðareglur í sífelldri skoðun. Vegna aðildar okkar að ráðinu verðum við að laga okkur að því sem þar gerist. Mér hefur líka sýnst sem full þörf sé á því að menn haldi vöku sinni, ekki síst í málum þar sem leik- ast á trúnaðarskylda annars vegar og eftirlits- hlutverk stjórnvalda hins vegar. Fleiri fundir eru þegar fyrirhugaðir, enda til- efnin mörg. Má þar t. d. nefna hvort og þá með hvaða hætti félagið geti stuðlað að því að al- menningi verði auðveldað að leita réttar síns fyrir stjórnvöldum, t. d. með einhvers konar gjafsóknarheimild og auknum heimildum til ákvörðunar málskostnaðar fyrir stjórnsýslu- nefndum og hvort þörf sé á að skylda lögmenn til endurmenntunar, sem víða tíðkast. Fleira mætti tína til og verður gert, að því gefnu að menn sinni því herkalli til betri fundarsóknar, sem þessum orðum er ætlað að vera. Jakob R. Möller, hrl. og fyrrum formaður, barðist hvatskeytlega gegn svokölluðu fjöl- greinasamstarfi, eða því sem hann sagði til- raunir endurskoðunarstofa til þess að stofna til lögmannsrekstrar. Fyrir það uppskar hann mis- P I S T I L L F O R M A N N S : Gunnar Jónsson hrl.

x

Lögmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.