Lögmannablaðið - 01.06.2002, Page 23

Lögmannablaðið - 01.06.2002, Page 23
23L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð New York september 2002 Námsferðin til New York hefur fengið frábærar viðtökur. Ríflega 50 manns hafa ákveðið að fara og er hópurinn blanda af lögmönnum og lögfræðingum á öllum aldri. Tilboð bárust frá Flugleiðum og Úrval Útsýn en tilboði Flugleiða var tekið. Í boði var gisting á tveimur hótelum: Hotel Beacon og The Stanhope Park Hyatt Hotel. Verðmunur var tölu- verður á herbergjum en Hyatt er öllu íburðarmeira. Flug og gisting í tveggja manna herbergi á mann á Beacon er kr. 92.000.- og kr. 116.000.- á Hyatt, en í báðum verðum eru skattar og forfallagjöld innifalin. Auk þess bætist við kostnaður við far- arstjórn, rútur og fleira ca. kr. 5.000.- 10.000.- á mann. Nær allir hafa valið að dvelja á Beacon. Á heimasíðu LMFÍ er að finna allar frekari upplýsingar um ferðina, hótelin og fleira. Slóðin er www.lmfi.is/félagsdeild/námskeið fyrir lögmenn Dagskráin er enn í vinnslu en staðfest er heimsókn til Sameinuðu þjóðanna fimmtudag- inn 5. september. Þar verður boðið upp á fyrir- lestra frá lögfræði- og mannréttindadeild auk þess sem boðið verður upp á kynnisferð um húsakynnin. Þórdís Ingvadóttir lögfræðingur, sem starfar í New York, mun væntanlega halda fyrirlestur um alþjóðasakamáladómstólinn en samningur um hann tekur gildi 1. júlí 2002. Gréta Gunnarsdóttir, varafastafulltrúi Íslands hjá SÞ, hefur verið sérlega hjálpleg við alla skipulagningu á heimsókninni til Sameinuðu þjóðanna. Verið er að kanna möguleika á heimsókn í kauphöllina á Wall Street föstudaginn 6. sept- ember en Kaupþing í New York hefur aðstoðað við þá skipulagningu. Eftir 11. september 2001 hefur verið lokað fyrir heimsóknir almennings í kauphöllina en verðbréfafyrirtæki hafa fengið undanþágu. Kaupþing hefur einnig boðið hópnum til móttöku seinni part föstudagsins. Heimsóknir í dómstól, lögmannafélag og til lögmannsstofu eru einnig fyrirhugaðar. Verður það vænanlega staðfest í maí. Laugardaginn 7. september verður boðið upp á kynnisferð um borgina fyrir þá sem vilja fá allan pakkann á fjórum tímum. Verður hægt að ganga frá ferðinni og greiða hér heima með milligöngu Flug- leiða. Væntanlega verður m.a. siglt út í Frelsisstyttuna, farið í China Town og að rústum World Trade Center. Bóksafn LMFÍ – bækur hverfa Allt frá því að bókasafn félagsins var opnað hefur verið haldið fast í þá reglu að lána ekki út bækur. Boðið hefur verið upp á ágæta vinnuaðstöðu fyrir þá sem þurfa lengri tíma til dæmis vegna undirbúnings málflutnings. Ekki virðist sem öllum hafi verið kunnugt um tilvist þessara reglu þar sem því miður hefur það brunnið við að bækur hafa horfið af safninu. Það er mjög bagalegt þar sem lögmenn eiga að geta gengið að þeim á vísum stað. Hvetur félagsdeild alla sem gætu legið með bók eða bækur í sínum fórum að senda þær hið fyrsta til síns heima. Hægt er að setja þær í umslag og stinga inn um bréfalúgu á skrifstofu félagsins eða senda í pósti. Netaðgangur á bókasafninu. Aðgangur að Réttaríkinu. Lengi hefur staðið til að nettengja tölvur á bóksafni félagsins. Hefur því verki nú verið lokið og eru tölvurnar nú tvær og hægt að net- tengja fartölvur við vinnuborðin. Aðgangur að dómasafni Réttarríkins hefur verið veittur fyrir bókasafnið og er hægt að leita í dómum Hæsta- réttar frá árinu 1940 til dagsins í dag. Til skoð- unar er frekari aðgangur að gagnaskrám Réttar- ríkisins. Til stendur að kaupa Karnov og UfR með raf- rænu formi en þannig eru uppfærslur alltaf nýjar. Á heimasíðu félagsins hefur verið bætt við nýjum lið „Nýjar bækur“ en þar eru skráðar allar nýkomnar bækur sem berast félaginu. Einnig er þar að finna nýjan aðfangalista bóka- safins í Lögbergi. Jóna K. Kristinsdóttir Fréttir frá félagsdeild

x

Lögmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.