Lögmannablaðið - 01.10.2003, Blaðsíða 28
28
1. gr.
Form tryggingar
1. Dómari ákveður form málskostnaðartryggingar og
metur hvort taka eigi tryggingu gilda.
2. Að jafnaði er rétt að leggja málskostnaðartryggingu
fram í formi reiðufjár eða bankatryggingar.
2. gr.
Meðferð málskostnaðartryggingar í reiðufé
1. Málskostnaðartryggingu sem afhent er í reiðufé skal
dómstóll leggja inn á vörslureikning sinn og auð-
kenna færsluna með viðkomandi málsnúmeri. Vextir
sem á slíkt reiðufé fellur bætast við trygginguna.
3. gr.
Gildistími bankatryggingar
1. Rétt er að setja það skilyrði að bankatrygging, sem
lögð er fram sem málskostnaðartrygging, haldi fullu
gildi þar til viðkomandi héraðsdómstóll staðfestir að
hún sé úr gildi fallin en þó ekki lengur en í þrjú ár frá
því að trygging var tekin. Slík trygging ber hvorki
vexti né verðtryggingu nema dómari ákveði annað.
4. gr.
Bókun um málskostnaðartryggingu
1. Hafi málskostnaðartrygging verið sett skal bókað í
þingbók, um hvers konar tryggingu sé að ræða og
hversu háa og skilríki um tygginguna lögð fram í
málinu.
5. gr.
Afhending málskostnaðartryggingar
1. Málskostnaðartrygging skal fylgja beiðni um endur-
upptöku en að öðrum kosti verður beiðnin endur-
send.
2. Í öðrum tilvikum skal málskostnaðartryggingin
afhent dómara.
3. Sá sem setur málskostnaðartryggingu á rétt á því að
frá kvittun fyrir afhendingu tryggingarinnar og eins
sá sem hana varðveitir og lætur af hendi.
6. gr.
Greiðsla tryggingarfjár
1. Nú er sá sem málskostnaðartryggingu setur í formi
reiðufjár dæmdur til að greiða málskostnað eða gerir
sátt þar um og greiðist dæmdur, úrskurðaður eða
umsaminn málskostnaður þá af tryggingarfé þegar
fyrir liggur yfirlýsing um að ekki komi til áfrýjunar
málsins, þegar áfrýjunarfrestur er liðinn án áfrýjunar
en ella þegar endanlegur dómur er genginn í málinu.
Innstæða, svo og vextir sem hún hefur borið, skal
greidd þeim sem á að fá tryggingarféð. Tryggingar-
hafi fær greiðslu þó aðeins að því marki sem nauð-
synlegt er til þess að málskostnaður verði að fullu
greiddur og er þeim sem greiðslu innir af hendi rétt
að ganga eftir upplýsingum um stöðu kröfu. Sömu
skilyrði og að framan greinir gilda um endurgreiðslu
tryggingarfjár til þess sem trygginguna setti.
2. Nú er málskostnaðartrygging sett í formi banka-
tryggingar og skal þá viðkomandi héraðsdómstóll,
þegar fyrir liggur yfirlýsing um að ekki komi til
áfrýjunar málsins, þegar áfrýjunarfrestur er liðinn án
áfrýjunar en ella þegar endanlegur dómur er genginn
í málinu, gefa út yfirlýsingu um að banka sé heimilt
að greiða tryggingarhafa allt tryggingarféð eða þann
hluta sem samsvarar dæmdum, úrskurðuðum eða
umsömdum málskostnaði, eða eftir atvikum um að
trygginguna megi fella niður.
3. Aðili máls, sem telur sig eiga rétt til tryggingarfjár,
skal gera reka að því að fá það greitt út með því að
krefja viðkomandi dómstól um greiðslu þess eða afla
yfirlýsingar dómstólsins um að banka sé heimilt að
greiða honum það.
7. gr.
Gildistaka, gildissvið o.fl.
1. Sé tryggingarfjár, sem afhent hefur verið í formi
reiðufjár, ekki vitjað gilda um það almennar fyrning-
arreglur.
2. Um skilyrði fyrir setningu málskostnaðartryggingar
fer samkvæmt 133. gr. og 3. mgr. 137. gr. laga um
meðferð einkamála nr. 91/1991.
3. Reglur þessar gilda, eftir því sem við getur átt, um
tryggingu fyrir greiðslu þóknunar til matsmanns, skv.
63. gr. laga nr. 91/1991, tryggingu vegna ástæðu-
lausrar kæru skv. 3. mgr. 146. gr. sömu laga og um
tryggingar sem settar eru vegna reksturs dómsmála í
öðrum málaflokkum en almennum einkamálum.
Reglurnar gilda þó ekki um tryggingu fyrir skipta-
kostnaði samkvæmt 2. mgr. 67. gr. gjaldþrotalaga nr.
21/1991.
4. Reglur þessar, sem samþykktar voru á fundi Dóm-
stólaráðs 18. júlí 2003, öðlast gildi 1. september
2003 og skulu héraðsdómstólar þegar fyrst reynir á
reglurnar stofna vörslureikning til að leggja inn á
málskostnaðartryggingu í formi reiðufjár.
Þannig samþykkt í Dómstólaráði
18. júlí 2003
Sigurður Tómas Magnússon
formaður Dómstólaráðs
3 / 2 0 0 3
TILKYNNING DÓMSTÓLARÁÐS NR. 1/2003
Reglur um málskostnaðartryggingar
fyrir héraðsdómi