Lögmannablaðið - 01.10.2006, Blaðsíða 23
LÖGMANNABLAÐIÐ – 3 / 2006 > 23
Að frumkvæði lagadeildar Háskól-
ans í Reykjavík og mannréttinda-
nefndar Íslandsdeildar evrópsku
laganemasamtakanna (ELSA), og í
samvinnu við LMFÍ, verður hald-
in alþjóðleg ráðstefna um tjáning-
arfrelsið í byrjun nóvember.
Dagskráin í heild fylgir með
blaðinu.
Umræða um fjölmiðlaumhverfið á
Íslandi og þróun á íslenskum fjölmiðla-
markaði hefur ýtt undir umræðu um
fjölmiðla almennt og hlutverk þeirra
í lýðræðislegu samfélagi. Umræðan
hefur tekið til hlutverks fjölmiðla í
víðum skilningi og til tjáningarfrels-
isins sem hornsteins lýðræðislegs sam-
félags. Þá hefur umræðan einnig beinst
að þeim takmörkunum sem tjáning-
arfrelsið mögulega sætir vegna þeirr-
ar siðferðilegu kröfu sem gerð er til
fjölmiðla um vandaða og málefnalega
umfjöllun, þar sem leitað er jafnvæg-
is milli tjáningarfrelsisins, almanna-
hagsmuna og hagsmuna einstaklinga.
Ráðstefna af þessu tagi hefur það m.a.
að markmiði að leggja þessari umræðu
lið og efla hana.
Umræða um tjáningarfrelsi og
möguleg takmörk þess er ekki
bundin við Ísland. Fjölmargir dómar
Mannréttindadómstóls Evrópu fjalla
um þetta efni. Það er því fengur af því
að freista þess að setja umræðuna um
fjölmiðla og tjáningarfrelsið í samhengi
við þróun mála í öðrum ríkjum og
hjá alþjóðlegum stofnunum og fá til
landsins viðurkennda sérfræðinga
um þessi efni sem hafa engin tengsl
við hagsmunaaðila eða stjórnmálaöfl
á Íslandi, til að ræða þessi efni á
fræðilegan hátt.
Viðburður þessi er sérstakur fyrir þá
sök að skipuleggjendur hafa ákveðið
að teygja arma sína út fyrir Evrópu og
til landa og menningarheima sem eru
okkur á margan hátt framandi. Þess
vegna vísar yfirskrift ráðstefnunnar
síðari daginn til hlutverks tjáningar-
frelsisins í löndum þar sem lýðræð-
isþróun er skammt á veg komin eða
þar sem lýðræði er að festa sig í sessi. Í
þessu samhengi er vert að minnast
þeirra átaka sem urðu vegna mynd-
birtinga danskra blaða af Múhameð
spámanni, en í þeirri umræðu kristall-
aðist m.a. þörfin á því að Vesturlönd
standi fast á kröfu sinni um tjáningar-
frelsið annars vegar og svo hins vegar
þörfina á því að taka tillit til trúar-
sannfæringar og trúartilfinninga mús-
lima. Þessi umræða tengist ennfremur
Tyrklandi, þar sem mikill meirihluti
íbúa er múslimar en utanríkisstefna
landsins miðar að því að festa Tyrkland
í sessi sem vestrænt lýðræðisríki með
aðild að ESB. Í Suður Afríku eru
vandamálin annars eðlis en saga lands-
ins er lituð af aðskilnaði kynþáttanna.
Arfur fortíðarinnar kallar á ráðstafanir
sem miða að því að eyða hatri og tor-
tryggni milli ólíkra kynþátta til að
treysta í sessi lýðræðislega stjórnar-
hætti. Umræða af þessu tagi er til þess
fallin að minna okkur á mikilvægi
tjáningarfrelsisins í lýðræðislegu sam-
félagi og fyrir viðgang þess.
Um leið og ráðstefna þessi fjallar
um efni sem hefur ríka skírskotun
til umræðu um fjölmiða og tjáning-
arfrelsi á Íslandi hin síðari misseri, er
hún einnig liður í viðleitni til að efla
og flytja alþjóðlega umræðu um lög-
fræðilegt eða stjórnmálafræðilegt efni
til Íslands. Ráðstefnan er auglýst víða
í háskólum og stofnunum um Evrópu
og þess þannig freistað að fá til lands-
ins erlenda gesti til að taka þátt í
umræðunni.
Það er von skipuleggjenda að þessu
framtaki verði vel tekið af íslenskum
lögfræðingum og þeir sjái sér sem flest-
ir fært að taka þátt í þessum viðburði.
Davíð Þór Björgvinsson dómari við Mannréttindadómstól Evrópu
Ráðstefna
um tjáningarfrelsið