Lögmannablaðið - 01.06.2011, Page 14

Lögmannablaðið - 01.06.2011, Page 14
14 lÖgmaNNaBlaÐIÐ tBl 02/11 UMfJöllUn þaNN 10. maí sótti ása Ólafsdóttir hrl. fund hjá stækkunar skrif stofu evrópu- sambandsins, fyrir hönd stjórnar lögmannafélags íslands. fundurinn er hluti af óformlegu samráði við félaga- samtök, í tengslum við stækkun esB og var lögmannafélaginu boðið að senda þangað fulltrúa sinn. ása fór með ýmislegt í pokahorninu sem lög- manna blaðinu lék forvitni á að vita meira um. „Í fyrsta lagi vakti ég athygli eSB á að lögmenn hefðu vaxandi áhyggjur af aðgengi almennings að dómstólum, í öðru lagi að stöðu fangelsismála á Íslandi, þriðja lagi leit lögreglu á lögmannsstofum og fjórða og síðasta lagi um stöðu dómara og dómstóla,“ sagði Ása. Ef við byrjum á aðgengi almennings að dómstólum, hvað hafðir þú við það að athuga? „Í fyrsta lagi hefur lögum um meðferð einkamála verið breytt (nr. 7/2005) sem skerða mjög möguleika einstaklinga til þess að fá gjafsókn til höfðunar einkamála. Með 9. gr. reglugerðar nr. 45/2008 var gjafsóknarnefnd enn fremur veitt heimild til þess að fastsetja fjárhæð gjafsóknar í tilteknum málum og dugar til að mynda almennt sú fjárhæð sem ákvörðuð er af gjafsóknarnefnd í forsjármálum skammt. Í öðru lagi benti ég á að ekki er að finna neinar almennar reglur um gjafsókn eða reglur um endurgreiðslu kostnaðar þegar um er að ræða ágreiningsmál á stjórnsýslustigi. Í þriðja lagi voru dómsmálagjöld hækkuð verulega með lögum nr. 130/2009, auk þess sem tekin var upp ný aðferð við útreikning gjaldanna en röksemd fyrir hækkun gjaldanna var meðal annars vaxandi kostnaður dómstóla auk þess sem gjöldin áttu að fækka dómsmálum þar sem hagsmunir voru ekki miklir. að lokum benti ég á að tímagjald verjenda í sakamálum var lækkað (rgl. nr. 715/2009) auk þess sem dómstólar hefðu ítrekað ákvarðað lægri þóknun fyrir störf verjenda og réttargæslumanna en krafa er gerð um, jafnvel þótt hún hefði verið ítarlega rökstudd með tímaskýrslum. Þetta gæti leitt til þess að efnameiri einstaklingar fengju í reynd betri lögfræðiaðstoð en þeir efnaminni við meðferð sakamála. Öll þessi atriði eru til þess fallin að grafa undan réttarríkinu og okkur þótti rétt að benda eSB á það.“ staða fangelsismála veldur áhyggjum Hvað með stöðu fangelsismála? „Fangelsismálayfirvöld á Íslandi búa ekki yfir nægu fangarými til þess að afplánun geti hafist fljótlega í kjölfar dóms. Haldinn er listi yfir þá einstaklinga sem dæmdir hafa verið til refsivistar og á hann er forgangsraðað. Þeir sem lenda neðarlega á listanum þurfa að bíða, svo dæmi sé tekið, allt upp í tvö ár og í einhverjum tilvikum lengur. ekki er útlit fyrir að úr þessu muni rætast á komandi árum þegar mál í kjölfar bankahrunsins flæða yfir. Ég benti fulltrúum eSB einnig á að á Íslandi væru ekki sérstök gæsluvarðhaldsfangelsi og þeir einstaklingar sem úrskurðaðir væru í gæsluvarðhald því oftast vistaðir í almennum fangelsum. Dæmi væru um að einstaklingar í gæsluvarðhaldi hefðu verið vistaðir í fangaklefum lögreglu allt upp í tólf daga þótt slíkt sé í reynd ekki heimilt að lögum. Þessi atriði geta grafið undan réttarríkinu og eru mikilvæg bæði fyrir þann einstakling sem á hlut að máli og fyrir samfélagið í heild.“ Nú hafa stjórnvöld viðurkennt þennan vanda, ekki rétt? „Jú, það hafa þau gert og innanríkis- ráðherra tilkynnti nýlega áform ráðu- neytisins um að byggja nýtt fangelsi. Það mun hins vegar taka langan tíma. auk þess hefur ráðherra einnig mælt fyrir nýju frumvarpi þar sem lagðar eru til rýmkaðar heimildir til samfélagsþjónustu og teknir upp möguleikar á rafrænu eftirliti. Bæði skrefin eru mikilvæg en mun ekki leysa þetta mál eins skjótt og þarf.“ Hugmyndir um hlutverk lög- manna í réttarríkinu „Á fundinum lýsti ég einnig áhyggjum Lögmannafélags Íslands á því að færst hefur í aukana að heimiluð sé leit á skrifstofum lögmanna í tengslum við rannsókn sakamála. einkum og sér í Höfum við efni á að veita afslátt af grundvallarreglum?

x

Lögmannablaðið

Saqqummersitap suussusaa:
Katersaatit:
Gegnir:
ISSN:
1670-2689
Oqaatsit:
Ukioqatigiiaat:
30
Assigiiaat ilaat:
116
Aviisini allaaserineqarsimasut nalunaarsornikut:
699
Saqqummersinneqarpoq:
1995-Massakkut
Iserfigineqarsinnaavoq piffissaq una tikillugu:
2024
Saqqummerfia:
Oqaaseq paasinnissutissaq:
Allaaserineqarnera:
Lögmannablaðið inniheldur greinar um lagaleg málefni, fréttir og tilkynningar frá Lögmannafélagi Íslands og er sent til allra félagsmanna. Útgáfudagar blaðsins eru í mars, júní, október og desember

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link to this issue: 2. tölublað (01.06.2011)
https://timarit.is/issue/384295

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

2. tölublað (01.06.2011)

Actions: