Lögmannablaðið - 01.06.2011, Blaðsíða 22
22 lÖgmaNNaBlaÐIÐ tBl 02/11
Á léttUM nÓtUM
af merði lögmanni
Mörður er mikill aðdáandi Árna prófasts Þórarinssonar, sem hann kynntist sem
ungur maður á Snæfellsnesi. Mörður telur sig, eins og Árni forðum, sennilega
eina manninn á jörðinni sem kann að ala upp börn. Mörður tók að vísu mjög
takmarkaðan þátt í uppeldi eigin barna þar sem barnsmæður hans stöldruðu stutt
við í sambúðinni. Mánaðarleg umgengni Marðar við börnin dugði skammt til að
koma þeim almennilega til manns, en mun þó hafa bjargað því sem bjargað varð.
Mörður er ekki mikill aðdáandi fræðimanna almennt og sérstaklega ekki þeirra
sem telja sig sérfræðinga í uppeldi og menntun barna. Síðan sérfræðingar fóru
að kenna barnauppeldi hefur allt farið á verri veg. Í stað þess að halda uppi
normal húsaga er börnunum gefin eiturlyf til að hafa hemil á óþekktinni. Þau
sem ekki eru að drepa alla úr óþekkt eru of feit. Kurteisi og mannasiðir á
undanhaldi meðan sjálfhverfa, frekja og yfirgangur þykir í góðu lagi og sýna
sjálfstæði og styrk. Svo þegar á að reyna að skikka börnin til og kenna þeim
góða siði í kristnum anda veifa þau einhverjum bæklingum um réttindi barna,
sem eru hluti af kennsluefni í grunnskóla. Þá hafa nokkrir undarlegir menn,
sem einhverra hluta vegna eru allir með sítt að aftan og tagl eða sköllóttir,
stofnað til sérstaks félagsskapar til að berjast gegn guðstrú.
Mörður sér í hendi sér að fá börn eiga nú orðið möguleika að komast til
manns. Enda mun það vera svo að þeir sem komast á fullorðinsár eru allir
illa haldnir af alls kyns sjúkdómum. Algengasti sjúkdómurinn er svokölluð
áfengissýki. Nú hefur Mörður aldrei haft ólyst á víni án þess að telja sig
sjúkling. Mörður hefur hins vegar alltaf talið bindindi alvarlegan sjúkdóm
sem virðist arfgengur. Helstu einkenni þess sjúkdóms eru almenn leiðindi og
ólíklegt er að þeir sem eru verst haldnir líti nokkurn tíma glaðan dag.
Annar algengur sjúkdómur er mikill áhugi á kynlífi. Hann leggst á bæði kynin
en birtingarmyndin er mismunandi. Til að reyna að halda sjúkdómseinkennum í
skefjum hjá körlum hafa öll viðskipti með kynlíf verið bönnuð og allir staðir
þar sem sést gæti til fáklæddra kvenna. Gamaldags daður og áreitni að hætti
Marðar er einnig illa séð, eiginlega glæpsamleg. Mörður var talsvert illa
haldinn af þessum sjúkdómi en sjúkdómurinn hefur tilhneigingu til að læknast
af sjálfu sér með aldrinum. Nú er svo komið hjá Merði að sjúkdómseinkenna
verður ekki vart lengur.
Þá er ónefndur sjúkdómur sem herjað hefur á fólk seinustu misseri og nefnist
offita. Líkja má þessum sjúkdómi við faraldur. Mörður hefur einkenni þessa
sjúkdóms sem lýsir sér í miklum ofvexti á vömb og stækkun brjósta. Ef Mörður
hyldi andlit sitt gætu margir haldið að þar væri ólétt kona á ferð. Kannski
ekki glæsileg en kona samt.
Sérfræðingar hafa uppgötvað nýjan sjúkdóm sem felst í tóbaksbrúki. Telst
þessi sjúkdómur bráðdrepandi. Líka fyrir þá sem standa nálægt sjúklingunum.
Ættmenni Marðar í beinan karllegg hafa allir tuggið og reykt tóbak frá
barnsaldri en samt lifað lengur en umhverfinu fannst æskilegt. Kannski er
almættið að reyna fresta komu þess fólks eins og kostur er. Til að hefta
útbreiðslu þessa skæða sjúkdóms hafa nokkrir frjálslyndir stjórnmálamenn lagt
til að tóbak verði aðeins selt samkvæmt læknisráði í apótekum. Sennilega
verður bætt við vörum eins og áfengi, klámblöðum og hamborgurum og frönskum
til að hefta útbreiðslu hinna sjúkdómanna.
Mörður hefur þegar skráð sig í apótekarafræði við HÍ í haust. Kannski verður
Mörður loksins ríkur.
Við öflum fyrir þig
Strandgata 3 600 Akureyri I Sigtún 42 105 Reykjavík
Sími: 460 4700 I www.iv.is I iv@iv.is
Íslensk verðbréf eru sjálfstætt og sérhæft eignastýringarfyrirtæki
sem þjónað hefur einstaklingum og fagfjárfestum frá árinu 1987.
Íslensk verðbréf eru staðsett á Akureyri og jafnframt með skrifstofu
að Sigtúni 42 í Reykjavík sem þjónar viðskiptavinum félagsins á
höfuðborgarsvæðinu og víðar.
Leitar þú að traustum og óháðum aðila
til að ávaxta fjármuni þína?
Kynntu þér málið á www.iv.is eða
hafðu samband við ráðgjafa okkar
í síma 460 4700.
Hver ávaxtar peningana þína?