Lögmannablaðið - 01.06.2011, Page 25
lÖgmaNNaBlaÐIÐ tBl 02/11 25
Aðsent efni
kosningasigur flokksins árið 1946 varð
auður því bæjarfulltrúi í reykjavík og
sat hún sinn fyrsta fund í bæjarstjórn
reykjavíkur 2. febrúar 1946.
Frami auðar í borgar- og landsmála-
pólitíkinni var engu líkur. auður var
ekki einungis brauðryðjandi í stétt
lögfræðinga heldur einnig í stjórnmálum.
Hún var kjörin forseti bæjarstjórnar
árið 1954, fyrst kvenna, og gegndi því
starfi næstu 16 árin með einungis einu
hléi, þ.e. þegar hún var borgarstjóri.
auður gegndi embætti borgarstjóra fyrst
kvenna frá 19. nóvember 1959 fram
í októbermánuð 1960 en hún deildi
embættinu með Geir Hallgrímssyni. Á
sama tíma var auður kjörin á þing fyrir
Sjálfstæðisflokkinn, eða árið 1959 og sat
hún á alþingi fram til ársins 1974. við
sviplegt andlát Bjarna Benediktssonar
forsætisráðherra á Þingvöllum árið 1970
tók auður sæti í ríkisstjórn sem ráðherra
fyrst kvenna, það var 10. október 1970
eftir að Jóhann Hafstein myndaði nýja
ríkisstjórn. auður var dómsmálaráðherra
og gegndi því starfi fram yfir kosningar
sumarið 1971.
frumkvöðull og fyrirmynd
við undirbúning málþingsins var ég
þeirrar ánægju aðnjótandi að ræða við
nokkrar konur sem voru samtíða auði og
kynntust henni í starfi. Þær eru sammála
um að auður hafi verið fyrirmynd að öllu
leyti. Hún var vinnusöm, klár, dugleg og
traust. Hún hreykti sér ekki af verkum
sínum heldur lét verkin tala. Hún lét
ekki pólitískar skoðanir þvælast fyrir sér
í samstarfi og gat starfað með hverjum
sem er, væri málefnið gott og þarft. Hún
vann ötullega að réttindum kvenna,
m.a. með hjá Mæðrastyrksnefnd, en auk
þess sat hún í stjórn kvenréttindafélags
Íslands í áratugi og var í sendinefnd
Íslands til Sameinuðu þjóðanna á þeim
tíma sem Yfirlýsing SÞ um afnám alls
misréttis gagnvart konum varð til og
kvennaáratugur SÞ leit dagsins ljós. auður
kom jafnframt til leiðar mikilvægum
lagasetningum er vörðuðu rétt kvenna.
Má þar nefna ný hjúskaparlög sem urðu
að lögum 1972 og jöfnuðu rétt kvenna
til jafns við karla til eigna í hjúskap
og hún beitti sér mjög fyrir lögum um
launajöfnuð karla og kvenna.
í lokin
vert er að hafa í huga að LMFÍ var
stofnað árið 1911, sem er einmitt
fæðingarár auðar auðuns. Sem fyrr
segir útskrifaðist auður fyrst kvenna
úr lagadeild Háskóla Íslands árið 1935
en það liðu 14 ár þar til næsta kona
útskrifaðist úr lagadeildinni. Það var
rannveig Þorsteinsdóttir. rannveig
fékk málflutningsréttindi árið 1952 fyrst
kvenna og var þ.a.l. fyrsta konan sem
varð aðili að LMFÍ, rúmum 40 árum
eftir stofnun þess. rannveig stofnaði
eigin málflutningsskrifstofu í reykjavík
1949, fékk réttindi til málflutnings fyrir
héraðsdómi 1952 og fyrir Hæstarétti
1959. Hún var kjörin heiðursfélagi LMFÍ
1979 og er eina konan í þeim hópi.
Það er von undirritaðrar að
konum í LMFÍ, bæði frumkvöðlum og
fyrirmyndum sem og þeim sem nú eru
í félaginu, verði gert hátt undir höfði á
afmælisári félagsins.
Heimild: Björg einarsdóttir: „auður auðuns“
andvari 2004, 11-76.
Þyrí Halla Steingrímsdóttir hdl.
auður auðuns
frá vinstri: guðrún erlendsdóttir, guðrún sesselja arnardóttir, ragna árnadóttir, þóranna
Jónsdóttir, Hanna Birna Kristjánsdóttir og þyrí Halla steingrímsdóttir.