Fréttablaðið - 24.12.2014, Blaðsíða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014
AÐFANGADAGUR
Sími: 512 5000
24. desember 2014
302. tölublað 14. árgangur
GLEÐILEG JÓLSamkvæmt hátíðadagatali íslensku þjóðkirkjunnar er aðfanga-
dagur jóla ekki sérstakur hátíðisdagur. Hann markar lok aðventu
eða jólaföstu og kl. 18 hefst jóladagur. Ástæða þessa er, að í stað
þess að miða upphaf dags við sólarlag, eins og Gyðingar, fast-
settu kristnir menn upphaf daga við miðaftan.
D agur segir að desember hafi ver-ið annasamur. „Hefðin vill stund-um verða sú að maður sé að gera hlutina á síðustu stundu. Það örlar á því núna en hefur þó verið verra,“ segir hann. „Eitt af því sem fylgir borgar-stjóraembættinu er að opna jólaskóginn þannig að nú var ekkert Þorláksmessu-stress að redda jólatré. Ein af hefðunum úr föðurfjölskyldu minni er að það megi ekki skreyta jólatré fyrr en á aðfanga-dag. Ég held að það séu leifar frá því að jólatré voru lýst upp með kerta-ljósum. Fólk var logandi hrætt við þau. Við hunsum þessa hefð og skreytum á Þorláksmessu.“ Dagur er alinn upp við hamborgar-hrygg á aðfangadag en kona hans, Arna Dögg Einarsdóttir, rjúpur. „Við borðum með foreldrum mínum þessi jól og fáum hinn hefðbundna hamborgarhrygg. Það hefur verið erfitt að fá rjúpur undanfar-in ár svo þær hafa ekki verið á borð-um,“ segir Dagur sem á fjögur börn, Ragnheiði Huldu, Steinar Gauta, Eggert og Móeiði. „Börnin eru mjög spennt yfir öllu jólastússinu og ég er ánægður með jólasveinana í desember, það er heil-mikið gagn að þeim. Það er auðvelt að koma börnunum í háttinn á kvöldin og fram úr á morgnana á meðan skórinn er í glugganum. Þessi jól verða mikil fjöl-skyldujól og nokkur jólaboð, enda marg-ir frídagar sem raðast saman. Arna er læknir á líknardeild og verður á vöktum yfir jól og áramót. Ég og börnin finnumokkur eitthvað til d séð um jólaskreytingar og mér finnstlýsingin sérstakl
HLAKKAR TIL JÓLAFRIÐARINSJÓL Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hlakkar mikið til jólahátíðarinnar og er
bjartsýnn á að næsta ár verði gott og gæfuríkt. Hann heldur í hefðirnar um
jólin og ætlar að nýta tímann vel með fjölskyldunni.
Skartgripalínan Drífa fæst í verslun Aurum, Bankastræti 4.
JÓLASMÁSAGA
EFTIR DIDDU
18
JÓL Á
BARNASPÍTALA
HRINGSINS
20
KOMA MÁ Í VEG
FYRIR ÓTÍMABÆRT
ANDLÁT FÓLKS 10
Rauðhetta í snjónum í Heiðmörk er jólamynd ársins
Jólaljósmyndasamkeppni Fréttablaðsins og Vísis
„Ég lét sauma rauð hettu slá á dóttur mína úr
gömlu stofugardínunum hennar mömmu,“ segir
Kristín Valdemarsdóttir, sigurvegari jólaljós-
myndasamkeppni Vísis og Fréttablaðsins.
Kristín starfar sem íþróttakennari en hefur
síðastliðin ár dundað sér við ljósmyndun og
undirbýr jóladagatal í desember með jóla-
myndum sem hún birtir að morgni hvers dags.
Hún segir dagatalið vera mikilvægan lið í
jólaundirbúningnum. „Ég hef gaman af því að
stilla upp fyrir myndatökur, þróa hugmyndir
og finna leikmuni. Þetta er mín leið til að fá
útrás fyrir ljósmyndaáhugann,“ segir Krist-
ín og bætir við að dætur hennar, Karólína og
Matthildur séu afar þolinmóðar fyrirsætur.
útrás fyrir ljósmyndaáhugann.“ Sjá síðu 16
1 SÉRBLAÐ
Fólk
- Lifi› heil
Opið aðfangadag:
kl. 8-18 í Lágmúla
kl. 8-18 á Smáratorgi
Opið jóladag:
kl. 10-24 í Lágmúla
kl. 9-24 á Smáratorgi
OPIÐ TIL 13 Í DAG
GLEÐILEG JÓL
Opið til 16:00 í dag
í Engihjalla, Vesturbergi
og Arnarbakka
➜ Ég hef gaman af því
að stilla upp fyrir mynda-
tökur, þróa hugmyndir og
finna leikmuni.
SKOÐA NORÐURLJÓSIN UM JÓLIN 6