Fréttablaðið - 24.12.2014, Page 2

Fréttablaðið - 24.12.2014, Page 2
24. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2 HARMÓNÍKUSPIL Margt var um manninn í miðbæ Reykjavíkur í gær þegar lands- menn luku við síðustu verk sín fyrir jólin. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR LÖGREGLUMÁL Íslenska konan, sem var handtekin á Schiphol-flug- velli í síðustu viku, var með efnin falin innan klæða. Konan situr nú í gæsluvarðhaldi en hún var með 300 grömm af MDMA í duftformi falin á sér. Konan var handtekin á Schiphol-flugvellinum í Amster- dam, höfuðborg Hollands á sunnu- daginn í síðustu viku. Konan hafði dvalist stutt í Hollandi og var á leið aftur til Íslands. Hún var leidd fyrir dómara 17. desember síðast- liðinn þar sem hún var úrskurðuð í gæsluvarðhald. Konunni hefur verið úthlutað lögmanni þar í landi sem mun sjá um mál hennar. Borgaraþjónusta utanríkis- ráðuneytisins er að aðstoða kon- una og ættingja hennar við málið. Konan á tvö börn sem urðu eftir hér á landi en samkvæmt upplýs- ingum Fréttablaðsins mun konan ekki koma heim til Íslands yfir hátíðarnar. Lögreglan vildi ekki tjá sig um hversu langan dóm konan gæti fengið vegna smygls- ins. - fbj, vh Íslensk kona situr enn í gæsluvarðhaldi fyrir smygl á MDMA í duftformi: Með efnin falin innanklæða TEKIN Á FLUGVELLINUM Konan var handtekin á Schiphol-flugvelli í Amster- dam í síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Björgvin stefnir þú á toppinn? Já, stefni alltaf á stuð og toppurinn er bónus. Björgvin Hilmarsson er leiðsögumaður og umsjónarmaður fjallaleiðangra. Íslenskir fjallaleiðsögumenn bjóða upp á ferðir á suðurpólinn. NEYTENDUR Aldrei hafa jafn margir staðir verið opnir yfir hátíðarnar eins og verður í ár. Þetta kemur fram á yfirliti sem Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Aðalstræti hefur tekið saman. Í yfirlitinu kemur fram að opið er á nokkrum veitingastöðum á aðfangadagskvöld. Í tilkynningu frá Höfuðborgarstofu er bent á að mikil aukning hefur verið í ferðamannafjölda hér á landi í jólamánuðinum. Árið 2011 voru ferðamenn rúmlega 20 þúsund en í ár sé búist við því að þeir verði um 60 þúsund. - ak Aldrei fleiri staðir opnir: Víða opið SPURNING DAGSINS ht.is og farsælt komandi ár Gleðileg Jól REYKJAVÍK • SELFOSS • REYKJANESBÆR • AKRANES • HÚSAVÍK • AKUREYRI • EGILSSTAÐIR 7 VERSLANIR UM LAND ALLT RANNSÓKNIR „Það er því miður engin mannanna verk sem hefðu staðist náttúruöflin í þessum ham. Mér sýnist að allt að tveir metrar séu farnir framan af strandlengjunni þar sem mest hefur gengið á, og það segir sig því sjálft að þetta hefði tapast algjörlega óháð fornleifaupp- greftrinum á svæðinu,“ segir Lilja Björk Páls dótt ir, forn leifa- fræðing ur við Fornleifastofnun Íslands, um miklar skemmdir á fornminjum við Gufuskála á Snæfellsnesi þar sem ágangur sjávar að undanförnu hefur stór- skemmt stórt svæði við strönd- ina. Haraldur Sigurðsson eldfjalla- fræðingur skrifar um fornminj- arnar og missi þeirra á bloggi sínu í gær og er gagnrýninn. Hann vill meina að uppgröft- urinn hafi afhjúpað minjarnar og þær hafi verið skildar eftir óvarðar. „Ef aldrei hefði verið ráðist í þessar aðgerðir þá hefðu þessar minjar varðveist í jörðu. Jörðin geymir best. Það er algjör- lega á ábyrgð fornleifafræðing- anna að þessar minjar spilltust og fóru í hafið,“ skrifar Haraldur. Lilja Björk segir að skemmd- irnar séu fjarri því bundnar við blettinn sem rannsóknin nær til. Skemmdirnar séu á svæðinu öllu og því séu fornminjar tap- aðar sem eru órannsakaðar með öllu. „Þetta er á svo stóru svæði og vegna fjárskorts er það tak- markað sem hefur náðst að rann- saka minjar á ströndinni. Rann- sóknir til þessa benda til að um verbúðir frá 15. öld sé að ræða, en við höfum þurft að velja hvar við berum niður. Við vitum hins vegar af minjum þarna úti um allt sem eru að brotna í sjóinn, og mikið er farið í þessum veðrum í vetur,“ segir Lilja Björk og bætir við að landrof á staðnum sé ein stærsta ástæðan fyrir því að ráð- ist var í uppgröft og rannsóknir á Gufuskálum til að byrja með. svavar@frettabladid.is Strandlengjan farin og fornminjar með Fornleifar við Gufuskála eru stórskemmdar eftir að hafrót braut stóra spildu úr strandlengjunni. Fullyrt er að minjarnar hefðu ekki tapast ef ekkert hefði verið grafið á staðnum. Stenst ekki skoðun, segir aðstandandi rannsóknarinnar. STÓRSKEMMDAR MINJAR Myndirnar sýna hvernig gengið var frá eftir að vinnu lauk 2013 og hvernig hóllinn leit út eftir illviðrið. Allur neðri hluti hólsins upp í um meters hæð hefur brotnað af vegna ágangs sjávar, þ.á.m. sandpokar sem settir höfðu verið til varnar. Annað rof hefur einnig aukist. MYNDIR/FSÍ/ÞÓR MAGNÚSSON ■ Víkingaaldarminjar sem koma fyrst fyrir í ritheimildum árið 1274. ■ Ein af stærstu verstöðvum landsins. Umfangsmiklar fiskveiðar fram á 18.öld. ■ Búseta til miðrar 20. aldar. ■ Landbrot gríðarlegt á svæðinu. Mjög virkt brot við ströndina. Mannvirki og mannvistarlög hafa horfið hratt á undanförnum árum. Vindrof 5 til 9 metrar á milli 1984 og 2013. ■ Rannsóknin á Gufuskálum var hugsuð sem björgunarrannsókn ver minja. ■ Fjölmargir hlutir hafa þegar fundist á Gufuskálum sem hver og einn segir sína sögu. Má nefna hvalbein, taflmann, lýsislampa eða ausu, hníf, beinnálar og fleira smálegt. Hugsað sem björgunarrannsókn verminja STJÓRNSÝSLA Elín Sigurðardóttir, varaformaður vel- ferðar ráðs, segir að öryrkjar sem nýti yfir áttatíu ferðir á mánuði með ferðaþjónustu fatlaðra séu flestir í vinnu og hafi úr meiru að spila en örorkubótum. En fram kom í fréttum Stöðvar 2 í fyrradag að fatlað- ir sem fara áttatíu til hundrað ferðir með ferðaþjónustu fatlaðra horfi fram á að aksturskostnaður þeirra hækki um tugi þúsunda mánaðarlega vegna gjaldskrárhækk- ana hjá borginni. Elín segir að talsmenn fatlaðra hafi misskilið breyt- ingarnar og ekki standi til að vísa þeim á leigubíla geti þeir rökstutt þörf sína fyrir ferðir umfram lögboðið hámark. Hún segir breytingarnar vera til þess að gæta jafn- ræðis. Talsmenn öryrkja segja að það hindri ferðafrelsi þeirra að takmarka ferðirnar. Elín segist telja að ekki sé verið að skerða ferðafrelsi líkt og talsmenn fatlaðra haldi fram. Það sé markmiðið að fatlað fólk komist allra sinna ferða hindrunarlaust en stundum þurfi að taka erfiðar ákvarðanir eins og í þessu tilfelli. Þarna sé líka verið að auka þjónustu þannig að fólk geti pantað sér ferðir sam- dægurs og það megi segja að það auki ferðafrelsi. - þká Varaformaður velferðarráðs telur talsmenn fatlaðra hafa misskilið breytingar: Ekki verið að skerða ferðafrelsi BREYTINGAR Talsmenn fatlaðra hafa gagnrýnt gjaldskrár- breytingar hjá borginni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON JÓL Það var hátíðarstemning á Laugavegi í gær þegar vegfarendur luku við síðustu jólainnkaup sín. Margt var um manninn og mikið um að vera. Þessi jólasveinn og tónlistarmaður varð á vegi Ernis Eyjólfs- sonar, ljósmyndara Fréttablaðsins, og létti lund stressaðra vegfarenda með harmonikkuspili. Í dag eru flestar verslanir miðborgarinnar opnar frá tíu til tólf, fyrir þá sem eru á allra síðasta séns. Matvöruverslanir eru margar hverjar opnar lengur. Þá má sjá afgreiðslutíma helstu stofnana sem opnar eru yfir hátíðarnar á síðu 22. - fbj Mikil jólastemning var á Laugavegi á Þorláksmessu í gær: Síðustu skref jólaundirbúnings TRÚ Stöð 2 og Vísir munu sýna beint frá aftansöng úr Grafar- vogskirkju í kvöld. Útsendingin hefst á slaginu 18. „Þetta hefur mælst vel fyrir. Áhorfendur á Vísi hafa verið frá hátt í 40 mismunandi löndum og getað fengið jólastemninguna beint í æð,“ segir Gísli Berg, framleiðslustjóri Stöðvar 2. Egill Ólafsson og kór Grafarvogskirkju koma fram auk fleiri listamanna. Útsendingin ætti að ganga vel fyrir sig en sami hópurinn er nú að senda út messuna í áttunda sinn í röð. - jhh Útsending hefst klukkan sex: Aftansöngur verður í beinni VIÐSKIPTI Veitingastaðurinn Caruso var opnaður í gær, Þor- láksmessu, á nýjum stað í Austur- stræti 22. Caruso neyddist til að loka í Þingholtsstræti 1 í síðustu viku eftir að leigusali hússins meinaði eigendum og starfsfólki Caruso aðgang að húsinu. Staðurinn var opnaður í hádeg- inu og haft hefur verið samband við þá gesti sem áttu pantað borð eða gjafakort og geta þeir mætt á nýja staðinn. „Þetta er búið að vera hrikalega löng vika,“ sagði Þrúður Sjöfn Sigurðardóttir, eigin kona eiganda Caruso. - ktd Farsæll endir á deilumáli: Caruso opnaði á nýjum stað

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.