Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.12.2014, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 24.12.2014, Qupperneq 6
24. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hvað hefur mörgum starfsmönnum fjármálafyrirtækja verið sagt upp frá hruni? 2. Hvað unnu Snæfellskonur marga af deildarleikjum sínum í körfubolta í ár? 3. Hvað voru mörg svínaræktarbú starfandi á landinu í lok árs 2013? SVÖR: MENNTAMÁL Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt ályktun þar sem framlag Sjávarútvegsskóla stofnunarinnar á Íslandi er þakkað. Viðurkenningin beinist einkum að framlagi skólans í þágu smárra eyþróunarríkja. Sjávarútvegsskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna er rekinn sem hluti af framlagi Íslands til þróunarmála og hefur verið starfræktur síðan 1998. Þar hafa um 300 sérfræðingar í sjávarútvegsmálum í þróunarlönd- um hlotið sex mánaða þjálfun hérlendis og hafa yfir þúsund manns tekið þátt í námskeiðum sem skólinn hefur þróað og haldið í samstarfslöndunum. Skólinn er rekinn samkvæmt þríhliða samningi Hafrannsóknastofnunar og utanríkisráðuneytisins við SÞ. Hafrannsóknastofnunin hefur umsjón með starfi skólans í samstarfi við Matís, HÍ og Háskólann á Akureyri. Einnig er samstarf við Háskólann á Hólum sem og fjölda innlendra sjávarútvegsfyrirtækja. - shá Sameinuðu þjóðirnar viðurkenna mikilvægt þróunarstarf í menntamálum: Sjávarútvegsskólanum þakkað ÚTSKRIFT 300 sérfræðingar hafa verið útskrifaðir frá upphafi. MYND/HAFRÓ ÖRYGGISMÁL Heimilt verður að nota fé úr ofanflóðasjóði til að taka þátt í kostnaði við hættu- mat eldgosa, en um framlengingu þeirrar heimildar er að ræða með lagabreytingu frá Alþingi. Eins er nú heimilt að ráðstafa fé sjóðsins til að taka þátt í greiðslu kostnaðar við hættumat vegna vatnsflóða og sjávarflóða. Tilefn- ið er umbrotin í Bárðarbungu og Holuhrauni og mikilvægi þess að geta brugðist rétt við eldgosavá sem og annarri náttúruvá. - shá Kostar hættumat flóða: Ofanflóðasjóð- ur nýtist víða Ferðamönnum sem dvelja á Íslandi um jólin hefur farið fjölgandi undanfarin ár. Ástæðan er helst rakin til aukins framboðs á flugi, einkum á milli Íslands og Banda- ríkjanna. Valgerður Ómarsdóttir, sölu- og markaðsstjóri á Hótel Sögu, segir að staðan sé mjög góð þar fyrir jólin og það sé töluverð aukning frá því í fyrra. „Jólin eru alltaf að verða vinsælli og vinsælli og komin flott nýting yfir jólahá- tíðina. Það er mikil breyting frá því fyrir tveimur árum. Það jókst töluvert í fyrra og svo enn meira í ár. Áramótin eru með hefðbundnu sniði. Þá er fullbókað og búið að vera það í töluverðan tíma,“ segir hún í samtali við Fréttablaðið. Valgerður segir að aukið fram- boð af flugi verði einfaldlega til þess að fólk komist frekar til landsins. „Það er heilmikil mark- aðssetning búin að eiga sér stað. Reykjavík er að markaðssetja sig sem jólaborg og ansi margt að eiga sér stað,“ segir hún. Ísland sé að komast á kortið sem jólaland. Valgerður segir að ferðamenn- irnir komi víða að. Frá Banda- ríkjunum og Evrópu en einnig frá Asíu. „Og sama um áramótin. Við erum með mikið af Norður- landabúum, mikið af Bretum og svo líka með ansi marga Japana hjá okkur. Rússarnir hafa verið stór hópur en þeir eru að detta út núna, út af ástandinu þar,“ segir Valgerður. Rússar hafi alltaf verið sterkur hópur en hann sé núna eðlilega að minnka. „Ferðaþjónustan er að bjóða upp á fjölbreyttari dagskrá þannig að þetta er að verða svolítið gott seas- on hjá okkur, jól og áramót,“ segir Valgerður. Hún segir að gestir fái mikla aðstoð við að undirbúa tíma sinn hér á helgidögum. „Við ráð- leggjum þeim að vera rosalega vel undirbúnir og vera búnir að bóka sínar ferðir og vera klárir í það því framboðið er minna en venjulega,“ segir hún. Icelandair Group rekur þrjú hótel í Reykjavík. Það er Hilton, Reykjavík Natura og Reykja- vík Marina. Hildur Ómarsdóttir, sölu- og markaðsstjóri, segir að bókunarstaðan sé góð hjá þeim fyrir jólin. Ívið betri en fyrri ár. Aðspurð segir hún að að ein- hverju leyti megi þakka Íslandi allt árið þessa stöðu. „Veturinn er miklu betri núna en hann hefur verið. En það er ekki bara það. Það er svo margt annað og ég held að það sé nú fyrst og fremst að þakka því að Icelandair hefur lagt mjög mikið í markaðssetn- ingu á Íslandi. Ísland er að festa sig í sessi sem vinsæll áfangastaður á jólunum Ferðamönnum sem koma til Íslands og dvelja hér á jólum fer fjölgandi segja markaðsstjórar Icelandair-hótela og Hótels Sögu. Ferðamenn- irnir koma víða að. Ferðaþjónustan býður upp á fjölbreyttari dagskrá og gestir fá mikla aðstoð við að skipuleggja tíma sinn á helgidögum. VIÐ HALL- GRÍMSKIRKJU Fjölmargir ferðamenn leggja leið sína að Hallgríms- kirkju með myndavélina með sér. FRÉTTABLAÐIÐ / ERNIR Jón Hákon Halldórsson jonhakon@frettabladid.is Gary Amy og Becky Amy eru frá Eng- landi og komu hingað til lands á mánudaginn. Gary segir að þau ætli að vera á Íslandi í viku og aðalmálið sé að njóta lífsins. Þau ætla að skoða norðurljósin, skoða hvali og fara Gullna hringinn. „Við hlökkum til alls,“ segir Becky aðspurð um það hvað þau hlakki mest til að gera. Gary segir að þau séu hér í fyrsta skipti. ➜ Skoða hvali og Gullna hringinn Ryan Donelly frá Ástralíu var einn að spóka sig á Lofti hosteli þegar Fréttablaðið hitti hann. „Ég verð hérna í tvær vikur,“ segir Ryan en hann kom hingað á mánudaginn. Hann ætlar að fara aftur þann 4. janúar. Ryan var að skoða kort af landinu og átta sig á því hvert hann ætti að fara þegar Fréttablaðið talaði við hann. „Ég er að hugsa um að leigja bíl og fara á einhverja staði þar sem eru gistiheimili og skoða það sem er þess virði að skoða,“ segir hann. Hann muni keyra um landið í rúma viku. Svo ætlar hann að vera í Reykjavík um áramótin. ➜ Verður í Reykjavík um áramótin Vinirnir Austin og Javier eru komnir alla leið hingað frá Hong Kong, en þeir lentu á mánudaginn. Þeir fara síðan aftur úr landi á jóladag. Þeir segja að þeir myndu gjarnan vilja fara út fyrir Reykjavík en þeir hafi ekki aðgang að bíl. Þeir fari því ekki langt. Þeir verði því meira og minna í bænum. „Já, að mestu leyti. Við ætlum bara að ganga um borgina og kíkja á það sem okkur líst best á,“ segir Austin og Javier bætir því við að þeir ætli að taka mikið af myndum. ➜ Ætla að halda sig í Reykjavík Matt og Kat Hellens eru frá Kent í Englandi og ætla að vera hér í fjóra daga. „Við ætlum að sjá norðurljósin í kvöld, fara síðan Gullna hringinn á morgun, á jóladag förum við svo í Bláa lónið og svo förum við heim daginn eftir,“ segir Matt í samtali við Fréttablaðið. Kat segir að þau hlakki til alls. „Við erum búin að hlakka til svo lengi,“ segir Kat og Matt tekur undir „Já, okkur hefur alltaf langað til að koma,“ segir hann. ➜ Markmiðið að sjá norðurljósin Aileen Kelly and John Kelly frá Boston komu hingað til lands í gær. „Ég hef notið mín mjög vel. En ég hef ekki sofið lengi,“ segir John við Fréttablaðið. Hann segir að fólkið hérna sé mjög vinalegt og dásamlegt. Hann tekur það sérstaklega fram að hann sé mjög öruggur hérna á Íslandi. „Það er gaman að versla hérna og við ætlum að reyna að sjá norður- ljósin í kvöld,“ segir Aileen. Þau Aileen og Kelly komu hingað til lands í fyrradag og fara aftur úr landi á föstudaginn. ➜ Fólkið hér vinalegt Ricky og Carla Reese komu til landsins á mánudag, en þau eru frá Austin í Texas. Þau ætla að vera hérna til 6. janúar. „Við ætlum að leigja bíl og fara til Víkur á morgun. Svo ætlum við að fara lengra,“ segja þau. Þau ætla síðan að halda áfram. „Við erum fyrst og fremst hérna til að skoða norðurljósin.“ Þau ætla svo að vera hérna í Reykjavík yfir áramótin og skoða Bláa lónið ef þau hafa tíma til. Ricky og Carla Reese hafa einu sinni áður komið til landsins. ➜ Á Íslandi í annað sinn VINSÆLT AÐ SKOÐA NORÐURLJÓSIN VEISTU SVARIÐ? 1. Rúmlega tvö þúsund. 2. 27 leiki af 28. 3. 15.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.