Fréttablaðið - 24.12.2014, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 24. desember 2014 | SKOÐUN | 13
Ég man eftir gamalli frétt,
þegar pabbi einn í Bítla-
borginni skírði son sinn
nöfnum allra leikmanna
Liverpool. Það var langt
nafn. Þeir höfðu víst unnið
einhvern titil. Velti þá
fyrir mér hvort það væri
engin mannanafnanefnd í
Englandi? En við á Íslandi
erum sérfræðingar í að
hafa vit fyrir öðru fólki.
Höfum meira að segja
nefnd sem ákveður hvað annarra
manna börn mega ekki heita.
Hér er líka fólk við stjórnvölinn,
sem vill ráða því hvað annað fólk
borðar. Innfluttur matur er skatt-
lagður þangað til hann verður
vondur á bragðið.
Sagt er að útlendur matur sé
óhollur og því velt upp hvort fólk
geti tekið stökkbreytingum við
það eitt að borða innfluttar mat-
vörur. Stjórnvöld vilja að þú borð-
ir það sem Þórður bóndi framleið-
ir, já eða Guðríður, hvort sem það
er gott eða vont, dýrt eða ódýrt.
Þórður og Guðríður eru örugg-
lega flottir bændur, en þú mátt
ekki hafa valkosti, né skoðun á því
hvað er best fyrir þig. Þínu eigin
sjálfsaflafé skaltu verja á þann
hátt sem stjórnvöld ákveða. Allt
í nafni matvælaöryggis, þar sem
meira en tvö kíló af innfluttu korni
þarf til framleiðslu á einu kílói af
heimabrugguðum kjúklingi.
Þó kemur það fyrir að útlenskt
smjör er í lagi. Sérstaklega ef það
er framleitt af Patreki á Írlandi
fyrir þá sem stýra íslenska
kerfinu og er blandað út í
íslenskar vörur án þess
að það komi sérstaklega
fram á umbúðum, að inn-
lenda mjólkurvaran inni-
haldi erlent smjör. Líklega
er óþarfi að neytendur átti
sig á því að Írar geta fram-
leitt smjör sem er jafngott
því íslenska.
Það fyrirkomulag sem
meirihluti þingmanna
hefur valið fyrir okkur í þessum
málum kostar heimilin yfir 15
milljarða króna árlega. Þingmenn
segja að það sé til þess að vernda
íslenska bóndann, líklega Þórð og
Guðríði. Mannanafnanefnd gerði
líklega engar athugasemdir þegar
þau voru skírð.
Bændur í skattaskjólum
Það kom mér því á óvart, þegar
frétt birtist í Viðskiptablaðinu
nýlega þar sem fram kom að eig-
andi eins stærsta kjúklingafram-
leiðenda á landinu væri Cold-
rock Investments Limited. Af
þessu má skilja að stærsti íslenski
kjúklingabóndinn heiti Coldrock
Investments Limited. Það er ekki
íslenskt nafn og hefði líklega
aldrei verið heimilað hjá manna-
nafnanefnd að bóndi héti þessu
nafni. Þessi íslenski bóndi sem
Alþingi sér um að verja með óhóf-
legri skattlagningu á almenning
heitir það nú víst samt. Það sem
vakti ekki síður athygli mína í
þessari frétt var að þessi íslenski
bóndi býr víst ekki lengur í Bisk-
upstungum, né heldur í Eyjafirði.
Hann er fluttur til Möltu í svokall-
að skattaskjól.
Því er eðlilegt að spurt sé: Getur
verið að kerfið sem kostar íslenska
neytendur yfir 15 milljarða árlega
sé til þess eins að vernda bændur
í skattaskjólum? Getur virkilega
verið að meirihluti Alþingis verji
svo þrönga sérhagsmuni á kostnað
almannahagsmuna?
Trúverðugleiki þingmanns sem
talar um hag heimilanna en styður
fyrirkomulag sem þetta í landbún-
aðarmálum er enginn. Það er kom-
inn tími á breytingar. Þingmenn
sem styðja óbreytt kerfi eru allir
í sama flokknum, FAN flokknum,
flokki andstæðinga neytenda.
Íslenski bóndinn og mannanafnanefnd
Norrænir for-
feður Íslendinga
tignuðu sín goð
og héldu sín jóla-
blót fram til árs-
ins 1000 þegar
Alþing ákvað að
taka upp nýjan
sið, kristni, sem
þótti taka hinum
eldri fram. Það
voru siðaskipti
hin fyrri.
Kristnin með sín Jesújól hefur
nú runnið sín þúsund ár og fram
undan eru siðaskipti hin síðari. Rétt
eins og þau fyrri hafa þessi síðari
siðaskipti verið að gerast á nokkr-
um áratugum og jafnvel öldum.
Á þröskuldi nýs árþúsunds er
það raunsæ og óhlutdræg rödd
skynsemi og skilnings á manni og
náttúru, frá hinu smæsta til hins
stærsta, sem verður einkenni hins
nýja siðar.
Í árdaga mannkyns, löngu fyrir
tíma þeirra trúarbragða sem nú
vilja eigna sér öll svör, tóku athug-
ulir og skynsamir menn og konur
eftir því að gangur sólar, tungls
og stjarna laut ákveðnum lög-
málum. Tveir tímapunktar ársins
urðu vörður á leið mannkyns til sið-
menningar, sólstöður á sumri og
vetri. Sólstöður á vetri urðu, eðli
málsins samkvæmt, tilefni til ein-
lægs fagnaðar því þá tók daginn að
lengja og fyrirheit vorsins um fæðu
og frjósemi urðu raunverulegri.
Við nútímamenn njótum þess for-
skots á þessa skynsömu forfeður
okkar að gangur himintungla og
orsök árstíðaskipta eru ekki hulin
neinum leyndarhjúpi. Því er engin
þörf á neins konar tákngervingu
eða trúarhjúpi á þessum árlegu og
gleðilegu tímamótum sólargangs-
ins. Við getum einfaldlega fagnað á
einlægan og ærlegan máta að vegna
möndulhalla jarðar og stöðu hnatt-
arins á sporbaug um sólu eru bjart-
ari og hlýrri dagar fram undan.
Því ætti kveðjan á þessum myrk-
asta tíma ársins að vera há og
snjöll: Gleðilega sól!
Gleðilega sól !
LANDBÚNAÐUR
Finnur Árnason
forstjóri Haga
SÓLSTÖÐUR
Lárus Jón
Guðmundsson
verkefnisstjóri
➜ Við nútímamenn njótum
þess forskots á þessa skyn-
sömu forfeður okkar að
gangur himintungla og
orsök árstíðaskipta eru ekki
hulin neinum leyndarhjúpi.
➜ Stjórnvöld vilja að þú
borðir það sem Þórður
bóndi framleiðir, já eða Guð-
ríður, hvort sem það er gott
eða vont, dýrt eða ódýrt.
www.or.is - við aðstoðum þig líka á facebook.com/Orkuveitan
Við erum til taks til að tryggja þér birtu og yl um hátíðirnar.
Þjónustuvakt okkar er opin allan sólarhringinn í síma 516 6000.
Gleðilega hátíð!
Við erum til taks
um hátíðirnar