Fréttablaðið - 24.12.2014, Side 16
24. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| JÓL | 16
VERÐLAUNIN
Í verðlaun
fyrir bestu
myndina
hlýtur Kristín
glæsilega
Nikon 1S1
myndavél
frá Heimilis-
tækjum.
Sigurmynd Kristínar Valde-marsdóttur heitir Ævintýra-skógur og er af dóttur henn-ar, Karólínu Ágústsdóttur, sem er sex ára. Kristín lenti í þriðja sæti í ljósmynda-
keppni Fréttablaðsins í fyrra en sú
mynd var af báðum dætrum hennar.
„Þær eru voða duglegar að sitja
fyrir. Fyrir þessa myndatöku lét ég
sauma rauðhettuslár á þær úr gömlu
stofugardínunum hennar mömmu.
Mér fannst svo jólalegt að hafa rauða
slá í snjónum og fann svo fallegan
stað í Heiðmörk þar sem snjórinn
lá ofan á trjánum í byrjun desemb-
er,“ segir Kristín sem hefur gaman
af því að stilla upp fyrir myndatök-
ur og er oft lengi að undirbúa þær.
„Ég hef síðastliðin tvö ár verið með
jólamyndadagatal í desember og birti
eina mynd á dag á Facebook og blogg-
inu mínu. Jóladagatalið er mín leið til
að fá útrás fyrir ljósmyndaáhugann.“
Kristín er íþróttakennari í Varm-
árskóla og er ljósmyndun eingöngu
áhugamál. „Ég viðurkenni að ég bý
til svolitla pressu á mig í desemb-
er. Ofan á allan jólaundirbúning og
vinnu þá er ég á fullu í að finna flotta
staði, leikmuni og þróa hugmyndir.
En það er svo skemmtilegt og orðið
hluti af jólaundirbúningnum.“
Þátttakendur í samkeppninni hlóðu
upp myndum sínum á vef Vísis. Þar
gátu lesendur kosið myndir og hafði
dómnefnd keppninnar kosninguna
til hliðsjónar. Dómnefndin var
skipuð þeim Pjetri Sigurðssyni og
Stefáni Karlssyni, ljósmyndurum
Fréttablaðsins, Silju Ástþórsdóttur
útlitshönnuði og Andra Ólafssyni
aðstoðarfréttastjóra.
Mér fannst
svo jólalegt að
hafa rauða slá í
snjónum og
fann svo fal-
legan stað í
Heiðmörk þar
sem snjórinn lá ofan á
trjánum í byrjun desember,
Kristín Valdemarsdóttir, sigurvegari
í jólaljósmyndasamkeppni Fréttablaðsins
ÆVINTÝRASKÓGUR Mynd Kristínar Valdimarsdóttur þykir sú besta
sem send var inn í jólaljósmyndakeppni Fréttablaðsins og Vísis.
Gerir dagatal með jólamyndum
Ljósmyndin Ævintýraskógur sem Kristín Valdemarsdóttir sendi inn í jólaljósmyndasamkeppni Vísis og Fréttablaðsins var
valin sú besta af lesendum og dómnefnd. Ljósmyndin er hluti af jóladagatali sem Kristín býr til árlega í desembermánuði.
TUNGLSETUR Fred Schalk á myndina í 2. sæti
JÓLASNJÓR Birkir Pétursson á myndina 4. sæti.JÓLASLEÐAFERÐ Iðunn Silja Svansdóttir á myndina
í 3. sæti.
VOÐMÚLASTAÐAKAPELLA Jón Sigurðsson á myndina sem
valin var vinsælasta myndin af lesendum Fréttablaðsins og
Vísi.