Fréttablaðið - 24.12.2014, Qupperneq 34
24. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 30
Sunna Ben
@SunnaBen
Rétt upp hönd ef
þið voruð ógeðslega
skotin í George Michael þegar
þið voruð börn *rétt*
Bobby
Breiðholt
@Breidholt
Fyrirfram shout out
til þeirra sem munu gleyma
gjöfum á barnum í kvöld.
Atli Fannar
@atlifannar
Mislas fyrirsögn
og berst núna við
að búa ekki til brandara um
skötuliminn.
JÓLATÍST VIKUNNAR SKÖTULIMUR OG SNJÓÝTA
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2 og K100,5.
Auk þess er tekið mið af sölu og spilun á Tónlist.is og spilun á Spotify. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymundsson,
12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, Samkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, Lucky Records, Vefverslun Record Records, N1 og tonlist.is
LAGALISTINN TÓNLISTINN
15.12.2014 ➜ 23.12.2014
1 Ýmsir Óskalög þjóðarinnar
2 Skálmöld Með vættum
3 Raggi Bjarna 80 ára
4 Jón Jónsson Heim
5 Páll Rósinkranz 25 ár
6 Helgi Björns Eru ekki allir sexý
7 AmabAdamA Heyrðu mig nú
8 Páll Rósinkranz og Margrét Eir If I Needed you
9 Gissur Páll Aría
10 Ýmsir SG jólalögin
1 Hozier Take Me To Church
2 Amabadama Gaia
3 Ásgeir Trausti Stormurinn
4 Mark Ronson/Bruno Mars Uptown Funk
5 Ed Sheeran Thinking Out Loud
6 Jón Jónsson Gefðu allt sem þú átt
7 Valdimar Ryðgaður dans
8 Nýdönsk Stafrófsröð
9 Máni Orrason Fed All My Days
10 Meghan Trainor Lips Are Movin
„Þetta er bara dót sem ég hef átt,
ég hef átt svo mikið af dóti í gegn-
um árin að ég hef verið að losa,“
segir Kjartan Hjaltason, sem rekur
nú antík- og skransöluna Markað-
inn okkar í gömlu Fiskhöllinni á
Tryggvagötu 10. Þar er hægt að
finna ýmislegt en markaðurinn var
opnaður fyrir um hálfum mánuði.
Húsið brann í janúar 2009 og
skemmdist mikið en ein helsta fisk-
búð borgarinnar, Fiskhöllin, var þar
til húsa á árum áður. „Það er mjög
mikil saga í þessu húsi, það er nú
svo. Ég málaði hérna inni og gerði
upp neðri partinn,“ segir Kjartan.
„Það var meira en að segja það.“
Markaðurinn verður opinn þang-
að til í sumar en þá stendur til að
rífa húsið. „Það á að rífa allan reit-
inn í sumar,“ segir hann. - þij
Selur frá sér gamalt
dót í Fiskhöllinni
Antíksala á Tryggvagötu. Reiturinn verður rifi nn í sumar.
KJARTAN HJALTASON Rekur antík- og
skransöluna Markaðinn okkar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Breski stórsöngvarinn Joe Cocker
kvaddi þennan heim í fyrradag
af völdum krabbameins, að sögn
fréttastofu BBC.
Hann fæddist árið 1944 og ólst
upp í Sheffield á Englandi. Cocker
hóf að láta að sér kveða á sjöunda
áratug síðustu aldar og komst í
fyrsta sæti breska vinsældalist-
ans með flutning sinn á Bítlalag-
inu, With a Little Help From My
Friends árið 1968. Hann söng
einnig þekkt lög á borð You Are
So Beautiful eftir Billy Preston
og þá vann hann bæði til Óskars-
verðlauna og Grammy-verðlauna
árið 1983, þegar hann söng lagið
Up Where We Belong, í dúett með
söngkonunni Jennifer Warner.
Cocker sendi frá sér yfir tutt-
ugu hljóðversplötur á ferlinum og
átti afar glæstan feril. Hann kom
meðal annars fram í Laugardals-
höll árið 2005. Hans síðustu tón-
leikar fóru fram í London í fyrra
eftir vel heppnað tónleikaferða-
lag.
Fjöldi þekktra tónlistarmanna
vottaði honum virðingu sína á
samfélagsmiðlunum og má þar
nefna einstaklinga á borð við
Steven Tyler úr Aerosmith, Bryan
Adams og Bítilinn Ringo Starr.
Hann komst í kynni við nokkra
Íslendinga, þar á meðal þá Björg-
vin Halldórsson, Einar Bárðarson
og Gunnlaug Briem.
gunnarleo@frettabladid.is
Mikil goðsögn kveður þennan heim
Enski stórsöngvarinn Joe Cocker er látinn, sjötugur að aldri. Hann var þekktur fyrir sína einstöku rödd. Fjöldi þekktra einstaklinga hefur
heiðrað minningu Cockers á hinum ýmsu samfélagsmiðlum. Fréttablaðið fékk þrjá Íslendinga til að tjá sig um kynni sín af Cocker.
JOE COCKER Cocker var þekktur fyrir skemmtilega sviðsframkomu. NORDICPHOTOS/GETTY
ALGJÖR ÖÐLINGUR OG VINSAMLEGUR VIÐ ALLA
KASTAÐI UPP Í MIÐJU LAGI
ENDAÐI MEÐ SPJALLI TIL 5 UM MORGUNINN
„Joe Cocker kom hingað til Íslands á
mínum vegum og hélt tónleika í Laugar-
dalshöll 1. september 2005. Tónleikarnir
voru frábærir og stóðst hann væntingar
aðdáenda sinna sem margir höfðu beðið
síðan nítján hundruð sextíu og eitthvað
til að berja hann augum.
Mér er minnisstætt frábært viðtal
sem Andrea Róbertsdóttir tók við hann
á 1919 hótelinu fyrir Stöð 2. Hann var,
eins og allar alvöru stjörnur eru, algjör
öðlingur og vinsamlegur við alla hvort
sem hann ræddi við rótarana, tónleika-
haldarann eða aðdáendurna, allir voru
jafnir.
Við töluðum talsvert saman en samt
ekkert meira en gengur og gerist með
samskipti okkar tónleikahaldara við
erlenda listamenn. Maður er til taks og
skrafs og ráðagerða en maður er ekkert
að trufla fólk eða ónáða yfir smáhlutum.
Hann áritaði fyrir mig mynd sem ljós-
myndari Morgunblaðsins hafði tekið dag-
inn fyrir tónleikana með sérstakri kveðju
og þakklæti. Mér þótti vænt um það.
Þessi einlæga auðmýkt og yfirvegun
hafði áhrif á mig. Maður er aldrei of oft
minntur á það að frekja, fordómar og
yfirgangur eru smáborgaraleg hegðun og
sæmir engum.
Það er sannarlega gaman að hafa á
ferlinum fengið tækifæri til að kynnast
svona flottum söngvara og um leið að
gefa Íslendingum tækifæri til að sjá hann
syngja hérna heima. Blessuð sé minning
hans en minningin, eins og rokkið, lifir!“
„Ég var svo heppinn fyrir mörgum árum
að hitta hann í borginni Lyon á ferð
okkar frá Ítalíu. Þar sat hann í horninu á
hótelinu okkar, Cour des loges og dreypti
á vínglasi. Ég gaf mig á tal við hann þarna
um kvöldið sem endaði með skemmti-
legu spjalli til fimm um morguninn
yfir viskíflösku. Við ræddum um allt
milli himins og jarðar. Hann sagði mér
margar sögur af kollegum sínum úr brans-
anum. Ég spurði hann sérstaklega um
handahreyfingar hans sem þóttu mjög
spastískar. Margir héldu að hann væri að
spila á loftgítar, en það var ekki rétt. Hann
byrjaði í bransanum sem trommari og
þess vegna hreyfði hann höndina eins og
hann gerði þegar hann söng.
Hann var ljúfur og skemmtilegur
maður sem var búinn að lifa rokkstjörnu-
lífi frá frægðartíma hans á Woodstock.
Hann var mjög viðkunnanlegur kall og
sagðist vilja halda tónleika á Íslandi.
Hann hafði áhrif á mig eins og allir
þessir náungar frá þessum tíma. Þetta
voru allt áhrifavaldar. Áhrifavaldur hans
var Ray Charles eins og hjá mér. Joe var
ljúflingur og minning hans mun lifa í
gegnum tónlistina sem hann skilur eftir.“
„Joe Cocker og Mezzoforte léku á sama
festivali í Sviss 1985. Það var magnað
að fylgjast með kallinum á sviði sem
baksviðs. Hann var að koma beint úr
fangelsisdvöl fyrir óreglu og þaðan
rakleiðis í gigg. Hann þurfti stuðning
tveggja tröllvaxinna rótara til að komast
inn á svið í gegnum æsta aðdáendur
sem höfðu komist baksviðs, fyrir utan
að vera talsvert við skál. En þegar
Cocker byrjaði að syngja var ekki um að
villast að þarna fór einn flottasti barki
poppsögunnar. Við unglingarnir í Mezzo
fylgdumst svo með þegar goðið vék sér
bak við risa Marshall-magnarastæðu,
kastaði hressilega upp í fötu sem rótari
var með tilbúna, beint inn á svið aftur
og kláraði lagið.
Unaður að sjá svona menn að störfum
eins og Rúnar Júlíusson hefði sagt.“
B
JÖ
R
G
V
IN
H
A
LL
D
Ó
R
SS
O
N
G
U
N
N
LA
U
G
U
R
B
R
IE
M
EI
N
A
R
B
Á
R
Ð
A
R
SO
N
Birta
Ísólfsdóttir
@B_vitamins
Faðir minn var að
kaupa sér annað hljómborð
(skemmtara). Svona eru jólin.
Ólafur Arnalds
@OLAFURARNALDS
Það tók tvo tíma,
fimm manns og
snjóýtu til að leysa bílinn minn
ÚR flugvallarbílastæðinu þar
sem hann var fastur undir
risahrúgu af snjó.
LÍFIÐ