Fréttablaðið - 24.12.2014, Page 34

Fréttablaðið - 24.12.2014, Page 34
24. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 30 Sunna Ben @SunnaBen Rétt upp hönd ef þið voruð ógeðslega skotin í George Michael þegar þið voruð börn *rétt* Bobby Breiðholt @Breidholt Fyrirfram shout out til þeirra sem munu gleyma gjöfum á barnum í kvöld. Atli Fannar @atlifannar Mislas fyrirsögn og berst núna við að búa ekki til brandara um skötuliminn. JÓLATÍST VIKUNNAR SKÖTULIMUR OG SNJÓÝTA Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2 og K100,5. Auk þess er tekið mið af sölu og spilun á Tónlist.is og spilun á Spotify. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, Samkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, Lucky Records, Vefverslun Record Records, N1 og tonlist.is LAGALISTINN TÓNLISTINN 15.12.2014 ➜ 23.12.2014 1 Ýmsir Óskalög þjóðarinnar 2 Skálmöld Með vættum 3 Raggi Bjarna 80 ára 4 Jón Jónsson Heim 5 Páll Rósinkranz 25 ár 6 Helgi Björns Eru ekki allir sexý 7 AmabAdamA Heyrðu mig nú 8 Páll Rósinkranz og Margrét Eir If I Needed you 9 Gissur Páll Aría 10 Ýmsir SG jólalögin 1 Hozier Take Me To Church 2 Amabadama Gaia 3 Ásgeir Trausti Stormurinn 4 Mark Ronson/Bruno Mars Uptown Funk 5 Ed Sheeran Thinking Out Loud 6 Jón Jónsson Gefðu allt sem þú átt 7 Valdimar Ryðgaður dans 8 Nýdönsk Stafrófsröð 9 Máni Orrason Fed All My Days 10 Meghan Trainor Lips Are Movin „Þetta er bara dót sem ég hef átt, ég hef átt svo mikið af dóti í gegn- um árin að ég hef verið að losa,“ segir Kjartan Hjaltason, sem rekur nú antík- og skransöluna Markað- inn okkar í gömlu Fiskhöllinni á Tryggvagötu 10. Þar er hægt að finna ýmislegt en markaðurinn var opnaður fyrir um hálfum mánuði. Húsið brann í janúar 2009 og skemmdist mikið en ein helsta fisk- búð borgarinnar, Fiskhöllin, var þar til húsa á árum áður. „Það er mjög mikil saga í þessu húsi, það er nú svo. Ég málaði hérna inni og gerði upp neðri partinn,“ segir Kjartan. „Það var meira en að segja það.“ Markaðurinn verður opinn þang- að til í sumar en þá stendur til að rífa húsið. „Það á að rífa allan reit- inn í sumar,“ segir hann. - þij Selur frá sér gamalt dót í Fiskhöllinni Antíksala á Tryggvagötu. Reiturinn verður rifi nn í sumar. KJARTAN HJALTASON Rekur antík- og skransöluna Markaðinn okkar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Breski stórsöngvarinn Joe Cocker kvaddi þennan heim í fyrradag af völdum krabbameins, að sögn fréttastofu BBC. Hann fæddist árið 1944 og ólst upp í Sheffield á Englandi. Cocker hóf að láta að sér kveða á sjöunda áratug síðustu aldar og komst í fyrsta sæti breska vinsældalist- ans með flutning sinn á Bítlalag- inu, With a Little Help From My Friends árið 1968. Hann söng einnig þekkt lög á borð You Are So Beautiful eftir Billy Preston og þá vann hann bæði til Óskars- verðlauna og Grammy-verðlauna árið 1983, þegar hann söng lagið Up Where We Belong, í dúett með söngkonunni Jennifer Warner. Cocker sendi frá sér yfir tutt- ugu hljóðversplötur á ferlinum og átti afar glæstan feril. Hann kom meðal annars fram í Laugardals- höll árið 2005. Hans síðustu tón- leikar fóru fram í London í fyrra eftir vel heppnað tónleikaferða- lag. Fjöldi þekktra tónlistarmanna vottaði honum virðingu sína á samfélagsmiðlunum og má þar nefna einstaklinga á borð við Steven Tyler úr Aerosmith, Bryan Adams og Bítilinn Ringo Starr. Hann komst í kynni við nokkra Íslendinga, þar á meðal þá Björg- vin Halldórsson, Einar Bárðarson og Gunnlaug Briem. gunnarleo@frettabladid.is Mikil goðsögn kveður þennan heim Enski stórsöngvarinn Joe Cocker er látinn, sjötugur að aldri. Hann var þekktur fyrir sína einstöku rödd. Fjöldi þekktra einstaklinga hefur heiðrað minningu Cockers á hinum ýmsu samfélagsmiðlum. Fréttablaðið fékk þrjá Íslendinga til að tjá sig um kynni sín af Cocker. JOE COCKER Cocker var þekktur fyrir skemmtilega sviðsframkomu. NORDICPHOTOS/GETTY ALGJÖR ÖÐLINGUR OG VINSAMLEGUR VIÐ ALLA KASTAÐI UPP Í MIÐJU LAGI ENDAÐI MEÐ SPJALLI TIL 5 UM MORGUNINN „Joe Cocker kom hingað til Íslands á mínum vegum og hélt tónleika í Laugar- dalshöll 1. september 2005. Tónleikarnir voru frábærir og stóðst hann væntingar aðdáenda sinna sem margir höfðu beðið síðan nítján hundruð sextíu og eitthvað til að berja hann augum. Mér er minnisstætt frábært viðtal sem Andrea Róbertsdóttir tók við hann á 1919 hótelinu fyrir Stöð 2. Hann var, eins og allar alvöru stjörnur eru, algjör öðlingur og vinsamlegur við alla hvort sem hann ræddi við rótarana, tónleika- haldarann eða aðdáendurna, allir voru jafnir. Við töluðum talsvert saman en samt ekkert meira en gengur og gerist með samskipti okkar tónleikahaldara við erlenda listamenn. Maður er til taks og skrafs og ráðagerða en maður er ekkert að trufla fólk eða ónáða yfir smáhlutum. Hann áritaði fyrir mig mynd sem ljós- myndari Morgunblaðsins hafði tekið dag- inn fyrir tónleikana með sérstakri kveðju og þakklæti. Mér þótti vænt um það. Þessi einlæga auðmýkt og yfirvegun hafði áhrif á mig. Maður er aldrei of oft minntur á það að frekja, fordómar og yfirgangur eru smáborgaraleg hegðun og sæmir engum. Það er sannarlega gaman að hafa á ferlinum fengið tækifæri til að kynnast svona flottum söngvara og um leið að gefa Íslendingum tækifæri til að sjá hann syngja hérna heima. Blessuð sé minning hans en minningin, eins og rokkið, lifir!“ „Ég var svo heppinn fyrir mörgum árum að hitta hann í borginni Lyon á ferð okkar frá Ítalíu. Þar sat hann í horninu á hótelinu okkar, Cour des loges og dreypti á vínglasi. Ég gaf mig á tal við hann þarna um kvöldið sem endaði með skemmti- legu spjalli til fimm um morguninn yfir viskíflösku. Við ræddum um allt milli himins og jarðar. Hann sagði mér margar sögur af kollegum sínum úr brans- anum. Ég spurði hann sérstaklega um handahreyfingar hans sem þóttu mjög spastískar. Margir héldu að hann væri að spila á loftgítar, en það var ekki rétt. Hann byrjaði í bransanum sem trommari og þess vegna hreyfði hann höndina eins og hann gerði þegar hann söng. Hann var ljúfur og skemmtilegur maður sem var búinn að lifa rokkstjörnu- lífi frá frægðartíma hans á Woodstock. Hann var mjög viðkunnanlegur kall og sagðist vilja halda tónleika á Íslandi. Hann hafði áhrif á mig eins og allir þessir náungar frá þessum tíma. Þetta voru allt áhrifavaldar. Áhrifavaldur hans var Ray Charles eins og hjá mér. Joe var ljúflingur og minning hans mun lifa í gegnum tónlistina sem hann skilur eftir.“ „Joe Cocker og Mezzoforte léku á sama festivali í Sviss 1985. Það var magnað að fylgjast með kallinum á sviði sem baksviðs. Hann var að koma beint úr fangelsisdvöl fyrir óreglu og þaðan rakleiðis í gigg. Hann þurfti stuðning tveggja tröllvaxinna rótara til að komast inn á svið í gegnum æsta aðdáendur sem höfðu komist baksviðs, fyrir utan að vera talsvert við skál. En þegar Cocker byrjaði að syngja var ekki um að villast að þarna fór einn flottasti barki poppsögunnar. Við unglingarnir í Mezzo fylgdumst svo með þegar goðið vék sér bak við risa Marshall-magnarastæðu, kastaði hressilega upp í fötu sem rótari var með tilbúna, beint inn á svið aftur og kláraði lagið. Unaður að sjá svona menn að störfum eins og Rúnar Júlíusson hefði sagt.“ B JÖ R G V IN H A LL D Ó R SS O N G U N N LA U G U R B R IE M EI N A R B Á R Ð A R SO N Birta Ísólfsdóttir @B_vitamins Faðir minn var að kaupa sér annað hljómborð (skemmtara). Svona eru jólin. Ólafur Arnalds @OLAFURARNALDS Það tók tvo tíma, fimm manns og snjóýtu til að leysa bílinn minn ÚR flugvallarbílastæðinu þar sem hann var fastur undir risahrúgu af snjó. LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.