Fréttablaðið - 24.12.2014, Síða 36

Fréttablaðið - 24.12.2014, Síða 36
24. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 32 BAKÞANKAR Viktoríu Hermannsdóttur „Þetta var einhver svona aulahúmor á elleftu stundu þegar við vorum að fylla út umsóknir og áttuðum okkur á að við vorum ekki með neitt nafn,“ segir Salka Guðmundsdóttir, sem stofnaði leikhópinn Soðið svið árið 2009 ásamt Aðalbjörgu Árnadóttur. „Það er svona með ákvarðanir sem maður tekur í hláturskasti rétt fyrir miðnætti, þær geta reynst afdrifaríkar,“ segir Salka og hlær. Um síðustu helgi hófust aftur sýningar á barnaleikritinu Hættu- för í Huliðsdal en Salka skrifaði handritið að verkinu og því er leik- stýrt af Hörpu Arnardóttur. Leik- hópinn stofnuðu Salka og Aðal- björg þegar þær voru nýkomnar úr námi en þær langaði til þess að skapa eigin verkefni. „Við Aðal- björg vorum saman í unglinga- leikhóp í Kramhúsinu hjá Hörpu. Við erum því að vinna með gamla „mentornum“ okkar.“ Hættuför í Huliðsdal fjallar um Eyju, ellefu ára stelpu sem er nýflutt út í sveit. Í herberginu hennar opnast töfra- hlið og hún fer inn í Huliðsdal þar sem hún hittir fyrir margar sér- kennilegar verur. Meðal þeirra er franski ruglufuglinn sem leikinn er af Esther Talíu Casey. „Ruglufuglinn er alveg ótrúlega skemmtilegur karakter sem Eyja hittir í Huliðsdal, Esther Talía leik- ur hann og fann sér einhvern innri franskan ruglufugl. Þetta er mjög sannfærandi allt saman og hann er í uppáhaldi hjá okkur öllum,“ segir hún. „Þegar við vorum að vinna verkið hittumst við nokkur úr leik- hópnum og spjölluðum um það sem okkur fannst skemmtilegt þegar við vorum börn. Leiksýningar, bækur og sjónvarpsþætti,“ bætir hún við um hugmyndavinnuna. „Við erum með leikmynd sem leikararnir þurfa svolítið að æfa sig að hreyfa sig í, fólk þarf að ganga blindandi um sviðið vafið í silki og það hefur alveg dottið um koll og um hvert annað,“ segir Salka um æfingaferlið og bætir við: „Það sem var skemmtilegt í fyrra var hvað krakkarnir lifðu sig mikið inn í verkið, hrópuðu á aðalhetjuna og púuðu á vondu kallana. Það er svo skemmtilegt að finna viðbrögðin.“ Sýningar á Hættuför í Huliðsdal fara fram í Kúlunni í Þjóðleikhús- inu og hentar sýningin börnum frá fimm ára aldri. gydaloa@frettabladid.is Franskur ruglufugl Leikhópurinn Soðið svið setur barnasýninguna Hættuför í Huliðsdal aft ur á svið. Leikritið fj allar um ellefu ára stelpu sem kynnist alls kyns furðuverum. SOÐIÐ SVIÐ Salka segir nafn leikhópsins afleiðingu af hláturskasti rétt fyrir miðnætti. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Það er svona með ákvarðanir sem maður tekur í hláturskasti rétt fyrir miðnætti, þær geta reynst afdrifaríkar. Gleðileg bíójól Miðasala á: THE HOBBIT 3 3D KL. 2 – 5.45 – 6.45 – 9 – 10 NIGHT AT THE MUSEUM 3 KL. 2 – 4.30 –6.45 – 10.45 EXODUS KL. 9 MOCKINGJAY– PART 1 KL. 5 – 8 DUMB AND DUMBER TO KL. 2 MÖRGÆSIR ÍSL TAL KL. 2 - 4.30 THE HOBBIT 3 3D 48R KL. 1 – 4.30 – 6 – 8 – 9.30 – 11 THE HOBBIT 3 LÚXUS 3D 48R KL. 1 – 4.30 – 8 – 11 NIGHT AT THE MUSEUM 3 KL. 1 – 3.30 – 5.45 – 8 EXODUS KL. 6 – 9.30 MOCKINGJAY – PART 1 KL. 10.20 BIG HERO 6 ÍSL TAL KL. 1 – 3.30 MÖRGÆSIR ÍSL TAL KL. 1 – 3.30 JÓ LAMYND FJÖ LSKYLDUNNAR SÝNINGARTÍMAR GILDA FRÁ OG MEÐ 26. DESEMBER - EMPIRE HOBBIT 3 3D (48R) 2, 4, 5, 7, 8, 10, 11 NIGHT AT THE MUSEUM 1:50, 5, 8 NIGHTCRAWLER 10:10 BIG HERO 6 2D 2 Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu. sýnd í 3d 48 rammaS R BÍÓUPPLIFUN ÁRSINS GLEÐILEG JÓL 5% KRINGLUNNI SPARBÍÓ AKUREYRI KEFLAVÍK ÁLFABAKKA EGILSHÖLL HOLLYWOOD REPORTER Jólamyndin 2014 Jólamyndin 2014 VILLAGE VOICE NEW YORK POSTEMPIRE Vinsælasta teiknimy d allra tíma Aftur í bíó um jólin Það gerist mjög reglulega að ég missi trú á mannkynið. Yfirleitt gerist það þegar ég les athugasemdakerfi vefmiðlanna eða stöðuuppfærslur misgáfaðra besservissera á Facebook. Ekki misskilja mig, ég elska kom- mentakerfin og þau geta svo sannarlega stytt manni stundir. En fólk röflar bara svo alltof mikið þar að það kemur reglulega fyrir að ég missi trú á allt og alla eftir lestur þeirra. Á öld samskiptamiðlanna hafa nefnilega allir rödd. Það er auðvitað gott en stundum er bara aðeins of mikið öskrað. Ég gæti auð- vitað bara sleppt því að lesa þetta en það er skemmtilegra að pirra sig á því og gerast meðlimur röflkórsins. Svo birtir til og maður fær aftur trú á mannkynið. Og það gerðist hjá mér í vikunni. Síðustu dagar hafa verið óvenju snjóþung- ir í borginni og bílar verið fastir í sköflum út um allt. SAMHUGURINN sem mynd- ast þegar fólk hefur fest sig í snjósköflum er nefnilega oft og tíðum ótrúlegur. Ég var vakandi eftir miðnætti eitt kvöldið í vikunni þegar ég heyrði bíl spóla í götunni hjá mér. Sem meðlimur röflkórsins ætlaði ég að reyna að leiða spólið hjá mér en sam- viskan leyfði það ekki þar sem ég sá fram á að hlusta á bílinn spóla þarna alla nóttina. Ég dreif mig því í úlpu og skó. Ég komst ekki einu sinni alla leið út því þegar ég opnaði hurðina voru fjórir aðrir nágrannar mættir út á náttfötunum með skóflur og bíllinn komst sína leið. Þarna var sko sannur sam- hugur að verki. Og þetta sá ég gerast úti um allt í vikunni, einn fastur og allir út að ýta. ÞEGAR eitthvað bjátar á þá hættir nefni- lega röflkórinn að röfla og allir hjálpast að. Fyrir jólin gerist það á hinum ýmsu vígstöðvum. Til dæmis voru fjölmargar Facebook-síður stofnaðar á síðustu vikum þar sem fólk bauðst til þess að hjálpa þeim sem eiga erfitt með að halda góð jól. Fólk fór og keypti í jólamatinn fyrir bláókunnugt fólk og rétti hjálparhönd á ýmsan hátt. Þarna sýnir þjóðarsálin sínar bestu og fallegustu hliðar. OG þannig er andi jólanna. Þegar allt kemur til alls skipta gjafirnar og hvort allt sé hreint ekki máli. Heldur það að standa saman og sýna kærleik í verki. Gleðileg jól! Kærleiksandi röfl kórsins

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.