Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Side 10
10 Fréttir 21.–27. desember 2012 Jólablað
n Nærri 280 milljóna arðgreiðslur á síðastliðnum tveimur árum
Nefbraut lögregluþjón
n Hæstiréttur þyngdi dóm héraðsdóms
H
æstiréttur þyngdi á miðvikudag
dóm yfir karlmanni fyrir sér-
staklega hættulega líkamsárás.
Hæstiréttur dæmdi manninn í
fimm mánaða óskilorðsbundið fang-
elsi. Maðurinn játaði á sig líkams-
árásina og vörslu fíkniefna.
Maðurinn var ákærður fyrir brot
gegn valdstjórninni, líkamsárás og
fíkniefnalagabrot. Hann veittist að lög-
reglumanni við skyldustörf með þeim
afleiðingum að lögreglumaðurinn nef-
brotnaði og hlaut yfirborðsáverka á
höfði. Fíkniefnabrotið snéri að vörslu
4,68 gramma af amfetamíni. Hæsti-
réttur sakfelldi manninn fyrir líkams-
árás en ekki brot gegn valdstjórninni
þar sem hann bar því við að hafa ekki
vitað að um hefði verið að ræða lög-
reglumann þegar hann veittist að hon-
um. Þetta er ekki fyrsta brotið sem um-
ræddur maður er dæmdur fyrir. Síðast
í janúar á þessu ári var hann dæmdur
í héraðsdómi fyrir þjófnað, fíkniefna-
brot og umferðarlagabrot. Sá dóm-
ur hafði þó ekki áhrif á refsinguna þar
sem atvikin sem ákært var fyrir áttu sér
stað fyrir dóminn. Það var hins vegar
litið til annarra dóma gegn honum
þegar refsingin var ákvörðuð. Þegar
héraðsdómur fjallaði um málið kom
fram að málareksturinn hefði komið í
veg fyrir að hann fengi reynslulausn úr
fangelsi vegna annars dóms sem hann
sat inni fyrir á sama tíma.
Samkaup malar gull
V
erslanakeðjan Samkaup
hf., sem á og rekur nokkr-
ar verslanir sem selja mat-
vöru, auk annarra smá-
söluverslana, skilaði
hagnaði upp á nærri 138 milljón-
ir króna í fyrra. Þetta kemur fram í
ársreikningi félagsins fyrir árið 2011
sem skilað var til ársreikningaskrár
ríkisskattstjóra þann 14. nóvember
síðastliðinn. Heildartekjur Sam-
kaupa hf. námu meira en 20 millj-
örðum króna í fyrra og voru starfs-
menn fyrirtækisins 866 að meðaltali.
Samkaup hf. og dótturfélagið Búr
ehf. mynda samstæðu Samkaupa
hf. en fyrirtækið rekur verslanir víða
um land sem heita Samkaup úrval,
Samkaup strax, Nettó og Kaskó. Þá
rekur félagið einnig Krambúðina við
Skólavörðustíg og Hyrnuna í Borg-
arnesi. Félagið Búr ehf. er heildsala
með grænmeti og ávexti.
Í stjórn Samkaupa situr með-
al annars Jón Sigurðsson, fyrrver-
andi formaður Framsóknarflokksins
og fyrrverandi ráðherra. Fram-
kvæmdastjórinn heitir Ómar Valdi-
marsson.
Kaupfélagið stærsti hluthafinn
Stærstu hluthafar Samkaupa eru
Kaupfélag Suðurnesja með 54 pró-
senta hlut, KB framfarafélag með
15 prósenta hlut og Kaupfélag Borg-
firðinga með 13 prósenta hlut. Fjöldi
annarra lögaðila og einstaklinga á
svo minni hluti í Samkaupum en
alls eiga 177 aðilar hlut í keðjunni.
Samkaup átti í lok síðasta árs
eignir upp á nærri 6,4 milljarða
króna en eignirnar í árslok 2010
námu rúmum 6 milljörðum. Á móti
þessum eignum eru skuldir upp á
ríflega 4,8 milljarða. Eiginfjárstaða
Samkaupa var jákvæð um ríflega
1.550 milljónir króna í lok síðasta
árs.
Nærri 280 milljóna arður
Arðgreiðslur út úr félaginu síðast-
liðin tvö ár til hluthafa nema sam-
tals tæplega 280 milljónum króna. Í
fyrra námu arðgreiðslur til hluthaf-
anna rúmlega 169 milljónum króna
en árið áður námu arðgreiðslurnar
tæplega 108 milljónum króna.
Sögusagnir hafa verið um að
Kaupfélag Skagfirðinga, sem er stýrt
af Þórólfi Gíslasyni, hafi augastað á
Samkaupum. Miðað við ágæta stöðu
á félaginu væri slíkur áhugi ekki
óeðlilegur. Einn af stjórnarmönnum
Samkaupa, Þorvaldur Tómas Jóns-
son, kannast hins vegar ekki við slík-
an áhuga á fyrirtækinu frá Kaupfélagi
Skagfirðinga og segir að málið hafi
ekki verið rætt í stjórninni. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
138 milljóna hagnaður Jón Sigurðsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, er
einn af stjórnarmönnum Samkaupa. Fyrirtækið skilaði nærri 138 milljóna hagnaði í fyrra.
Síbrotamaður Brotasaga mannsins var
höfð til hliðsjónar við dóminn.
15 mánuðir fyrir
kynferðisbrot
Karlmaður var dæmdur í fimmtán
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir kynferðisbrot gagnvart stúlku
þegar hún var tólf og þrettán ára
gömul. Maðurinn var ákærður og
dæmdur fyrir að hafa haft sam-
ræði og önnur kynferðismök við
stúlkuna í bifreið sinni. Maður-
inn neitaði sök fyrir dómnum en
viðurkenndi að hafa séð stúlkuna
þar sem hún væri vinkona yngri
bróður hans. Dómurinn telur að
maðurinn hafi vitað eða mátt vita
hvað stúlkan var gömul þegar
brotin voru framin. Við ákvörðun
refsingar var horft til þess hversu
alvarleg brotin eru og að nokk-
ur aldursmunur er á stúlkunni og
manninum. Maðurinn hafði ekki
áður gerst brotlegur við lög.
Aftur í búðir
Nathan & Olsen, umboðsaðili
General Mills á Íslandi, hefur á
ný hafið innflutning og dreifingu
á Cocoa Puffs frá Bandaríkjun-
um og verður morgunkornið því
aftur fáanlegt í öllum verslunum
fyrir jólin.
Að sögn fyrirtækisins hefur
mikill þrýstingur verið frá við-
skiptavinum um að hverfa aftur
til eldri uppskriftar í stað þeirr-
ar evrópsku sem fyrirtækið hefur
flutt inn á þessu ári. Munu þeir
pakkar hverfa úr búðum samhliða
því að bandaríska Cocoa Puffs-ið
fer í dreifingu.
Ófundinn
„Björgunarsveitarmenn með
leitarhund voru að aðstoða
lögregluna við skoðun á þessu
í dag,“ sagði Arnar Rúnar Mart-
einsson, aðalvarðstjóri lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu,
í samtali við DV um leitina að
Matthíasi Mána Erlingssyni
sem strauk frá Litla-Hrauni á
mánudag.
Björgunarsveitarmenn
skoð uðu spor sem liggja frá
Litla-Hrauni en þau gáfu til
kynna að Matthías hefði farið í
átt að listaverkinu Kríunni sem
er austur af Litla-Hrauni sem er
við gatnamót Eyrarbakkavegar
og Stokkseyrarvegar. Lögreglan
telur yfirgnæfandi líkur á að
Matthías sé enn á landinu.
Meira en 20 milljarða
tekjur Heildartekjur Sam-
kaupa nema meira en 20
milljörðum. Hér sést verslun
Samkaupa í Hafnarfirðinum.
„Heildar-
tekjur
Samkaupa hf.
námu meira en
20 milljörðum
króna í fyrra