Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Qupperneq 38
38 Jól 21.–27. desember 2012 Jólablað
Með Iceland hangikjöt, KEA hamborgarhrygg
og Steðja jólabjór í ísskápnum, nýbakaðar
amerískar smákökur, geisladisk í jólapakkann
og bókina ð ævisaga í hönd, gætir þú jafnvel
verið kominn með uppskrift að fullkomnum
jólum. Hægt er að komast að þessari niður-
stöðu ef tekið er mið af bragðkönnunum og
dómum DV og ef efnisleg gæði eru mælikvarði
á það hversu góð jólin geta orðin.
Neysluvara og gjafir
DV hefur lagt mat á gæði
nokkurra algengra neysluvara
sem Íslendingar neyta um jólin,
í ítarlegum bragðkönnunum en
einnig dæmt nokkrar af þeim
bókum sem komu út fyrir jólin.
Auk þess gefur Rannsóknasetur
verslunarinnar árlega út hver jóla-
gjöf ársins er. DV hefur hér tekið
saman hvað hefur staðið upp úr í
þessum könnunum og sett saman
nokkurs konar fullkomin jól.
Besta hangikjötið
Hin árlega jólakjötssmökk-
un DV var haldin fyrir
skömmu þar sem þaul-
reyndir matreiðslumenn
voru fengnir til að smakka
hangikjötið í ár. Það var ný-
liðinn í hópnum, hangikjöt-
ið frá Iceland-versluninni,
sem bar sigur úr býtum.
Könnunin var framkvæmd
þannig að dómarar vissu
ekki hvaða kjöt þeir smökk-
uðu hverju sinni og gáfu
einkunn. Iceland hangi-
kjötið fékk 8,7 af 10 mögu-
legum í meðaleinkunn.
Þess má geta að Tvíreykt
Húsavíkurhangikjöt varð í
öðru sæti og Fjallalamb frá
Hólsfjalla í því þriðja.
Besti hamborgar-
hryggurinn
Jólakjötssmökkun DV á
hamborgarhryggjum, sem
framkvæmd var á sama hátt
og smökkunin á hangi-
kjötinu, leiddi í ljós að
KEA hamborgarhryggur-
inn frá Fjarðarkaupum væri
sá besti, annað árið í röð.
Fimm matreiðslumenn
voru í dómnefnd og brögð-
uðu á ellefu hryggjum. KEA
hryggurinn fékk 7,6 í meðal-
einkunn. Það var hryggur-
inn frá Ali sem lenti í öðru
sæti og Kjarnafæðishryggur-
inn í því þriðja.
Besti jólabjórinn
Þó Egils malt og appel-
sín sé vinsæl blanda
með jólamatnum kjósa
sumir að drekka dýr-
indis jólabjór. Steðji
var valinn besti bjór-
inn í hinni árlegu
jólabjórsmökkun DV
en þessi nýi bjór frá
Brugghúsi Steðja hf.
í Borgarfirði fékk 8,1
í meðaleinkunn. Í
öðru sæti lenti Jóla-
kaldi með 7,1 og Jóla
Bock frá Víking varð
í þriðja sæti með
6,7 í meðaleinkunn.
Ellefu tegundir af ís-
lenskum jólabjór voru
smakkaðar og dæmdar. Það er
athyglisvert að nýr bjór á markaði
fái hæstu einkunn. Fimm manna
dómnefnd valdi besta bjórinn
meðal þess sem þeir settu í um-
sögn um bjórinn var; „Þessi er
ótrúlega góður. Algjör eðal, gæti
nærst á honum yfir jólin.“
n Besta kjötið, bjórinn og bækurnar n Sigurvegarar í bragðkönnunum og dómum DV
Jólagjöf ársins
Jólagjafirnar eru órjúf-
anlegur hluti af jólunum
en það er þó ómögu-
legt að benda á hvaða
gjöf sé besta jólagjöfin í
ár. Það fer að sjálfsögðu
eftir því hverjum á að
gefa og hvaða áhuga-
mál viðkomandi hefur.
Rannsóknarsetur versl-
unarinnar hefur útnefnt
jólagjöf ársins undan-
farin ár en í ár er það ís-
lensk tónlist sem varð
fyrir valinu. Það er afar mikið framboð af góðri íslenskri tónlist um þess-
ar mundir og eins og segir í rökstuðningi valnefndar þá hefur gróska í ís-
lenskri tónlist aldrei verið meiri en nú og því muni algengasti jólapakkinn í
ár innihalda íslenska tónlist. Jólagjöfina í ár er hægt að gefa á ýmsu formi, á
geisladisk, á rafrænu formi auk þess sem vinsældir vínilplatna hafa aukist að
nýju og tónlist er nú ósjaldan gefin út á því gamla og góða formi.
Bestu bækurnar
Jólafríið er góður tími til að hella sér í bókalestur en DV
hefur birt dóma um bækur eins og venjulega fyrir jólin.
Það skal tekið fram að einungis hluti af þeim bókum sem
kom út fyrir jólin fékk dóm í DV en af þeim eru tvær bæk-
ur sem fengu fimm stjörnur í ár. Það eru ð ævisaga eftir
Anton Kaldal Ágústsson, Gunnar Vilhjálmsson, Stefán
Pálsson og Steinar Inga Farestveit og bókin Nonni eftir
Gunnar F. Guðmundsson. Þá fengu bækurnar Boxar-
inn eftir Úlfar Þormóðsson, Appelsínur frá Abkasíu eftir
Jón Ólafson og Milla eftir Kristínu Ómarsdóttur fjórar og
hálfa stjörnu. Vert er að taka fram að í verðkönnunum
sem DV framkvæmdi kemur fram að ódýrast er að kaupa
bækurnar í lágvöruverðsverslunum.
Smákaka ársins
DV hélt fyrir skömmu smákökukeppni en það var í annað sinn sem
slík keppni var haldin. Fengin var fimm manna dómnefnd til að
smakka yfir 50 tegundir smákaka sem sendar voru inn í keppnina.
Það var svo amerísk smákaka Ingibjargar Sunnu Þrastardóttur sem
þótti best í ár.
Uppskrift:
n 2 bollar haframjöl
n 1½ bolli hveiti
n 2 bollar sykur
n 1 bolli rúsínur
n 250 gr smjörlíki
n ½ tsk. natrón
n ½ tsk. hjartarsalt
n ½ tsk. ger
n 2 egg
Hin fullkomnu jól
Fagmenn að störfum
DV hefur í desember staðið
fyrir bragðkönnunum á því
helsta sem fólk neytir um
hátíðarnar. Vandað var til
verka í hvívetna.