Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Blaðsíða 60
„í klæðum framleiddum
af barnaþrælum“
60 Fólk 21.–27. desember 2012 Jólablað
Hvað er að
gerast?
21.–26. desember
Föstudagur21
des
Þorláksmessa23
des
Þriðjudagur26
des
Útgáfutónleikar Hjaltalín
Útgáfutónleikar Hjaltalín vegna nýrrar
plötu, Enter 4, verða haldnir á föstudag.
Þrjú ár eru síðan síðasta plata hljóm-
sveitarinnar kom út en Enter 4 kom eins
og þruma úr heiðskíru lofti fyrir skömmu.
Platan hefur vakið sterk viðbrögð og
hlotið lof gagnrýnenda. Sveitin hefur lítið
látið fyrir sér fara undanfarið og er því
orðin vel hungruð í tónleikahald. Gera má
ráð fyrir að útgáfutónleikarnir verði veisla
bæði fyrir augu og eyru.
Gamla bíó 20.00 og 23.00
Þorláksmessu-
tónleikar Bubba
Þorláksmessutónleikar
Bubba Morthens verða
nú í fyrsta skipti haldnir
í Hörpu. Tónleikar hans
á Þorláksmessu eru orðnir fastur hluti
af jólaundirbúningi margra Íslendinga.
Bubbi hefur haldið þessari hefð í tæp
þrjátíu ár, lengst af á Hótel Borg, síðan á
Nasa, en undanfarin ár hefur hann spilað
og sungið í Háskólabíói.
Harpa 22.00
Árstíðir í
Fríkirkjunni
Árstíðir efna til
árlegra jólatónleika
í Fríkirkjunni á Þor-
láksmessu. Er þetta í
fimmta skipti sem tón-
leikarnir eru haldnir en þeir
verða einstaklega glæsilegir í ár. Tveir
góðir gestir leika með hljómsveitinni, en
það eru Laufey Jensdóttir sem leikur á
fiðlu og Viktor Orri Árnason sem leikur á
víólu. Samkvæmt hefð mun hljómsveitin
flytja nokkur vel valin jólalög í bland við
eigið efni af plötum sínum Svefns og
vöku skil og Árstíðir. Tónleikarnir munu
þá marka endapunkt á viðburðaríku tón-
leikaári, en sveitin hefur komið fram á yfir
30 tónleikum í níu löndum á árinu, m.a.
á tónlistarhátíðum í Berlín, Ostrava og
Kraká, auk þess að leika í tónlistarhöllum
í Pétursborg, Moskvu og víðar.
Fríkirkjan 21.00
Macbeth í
Þjóðleikhúsinu
Hið kynngimagnaða verk Macbeth er
jólasýning Þjóðleikhússins í ár. Það er
hinn margverðlaunaði leikstjóri, Benedict
Andrews, sem glímir við Shakespeare á
íslensku leiksviði. Því er spáð að Macbeth
eigi eftir að verða konungur Skotlands.
Hann er hvattur áfram af eiginkonu sinni,
myrðir konunginn og sest í hásætið.
Ódæðið kallar á fleiri morð og ótti, hatur
og ofsóknaræði skjóta rótum og líkin
hrannast upp í kringum Macbeth. Með
aðalhlutverk fara: Björn Thors, Margrét
Vilhjálmsdóttir, Arnar Jónsson og Atli
Rafn Sigurðsson.
Þjóðleikhúsið 19.30
Hobbitinn
frumsýnd
Kvikmyndin The
Hobbit: An Unex-
pected Journey, verð-
ur frumsýnd á annan í
jólum. Myndin fjallar um
ævintýraför Bilbo Baggins til hins forna
konungsríkis Erbor þar sem drekinn
Smeyginn hefur sölsað undir sig völdin.
Bilbo slæst í för með Gandalfi og þrettán
dvergum undir forystu Þorins. Á ferðalagi
sínu þurfa þeir að fara um víðlendur
sem eru morandi í drýslum, vörgum og
risastórum kóngulóm. Stórkostleg ævin-
týramynd fyrir tólf ára og eldri.
Mörg bíóhús 20.00
Þ
au voru þrjú sem voru rekin
úr lopanum á Alþingi í þessari
viku. Reglur um klæðnað
þingmanna eru strangar, þó
konum leyfist meira hvað það
varðar en körlum. Eftir búsáhalda
byltinguna voru þær breytingar gerðar
á reglum um klæðaburð þingmanna
að þeim var ekki skylt að ganga með
hálstau. En lopapeysan er illa séð og
þykir ekki æskileg á Alþingi að mati
forseta Alþingis.
Lætin með lopann hófust á því
að Oddný G. Harðardóttir, þingmað
ur Samfylkingarinnar, var rekin úr
sinni peysu. Henni þótti að sér vegið
og benti á þau Katrínu Jakobsdóttur
menntamálaráðherra og Árna John
sen, þingmann Sjálfstæðisflokksins,
sem einnig voru klædd í lopapeysu og
var þeim þá gert að klæða sig úr sinni
lopapeysu.
Í alls kyns ljótum bolum
„Ég er mikill lopapeysumaður og
geng í vandaðasta handverki ís
lenskra kvenna, þetta er svo vitlaust
og heimskulegt,“ sagði Árni Johnsen
í samtali við blaðamann um reglur
um klæðaburð. „Hér er fólk í klæðum
framleiddum af barnaþrælum og alls
kyns ljótum bolum og skyrtum. Ég er
alveg sammála því að það eigi að vera
snyrtilegur og ákveðinn klæðaburður
á Alþingi. En mér finnst ómögulegt að
óvirða handverk íslenskra kvenna sem
er á heimsmælikvarða.“
En þarf þá tískulöggu á Alþingi?
„Ég veit ekki hvað þarf, það er fullt af
sýndarmennsku og hégóma sem ræð
ur þessu að mínu mati. Ég er ekkert
hættur að nota lopapeysu. Ég fer bara
í hana þegar mér hentar og í mitt sel
skinn eða hvað sem er.“
Fékk lánaðan jakka
Árni þurfti þó að láta í minni pokann
á miðvikudag og þótti það súrt í brot
ið. Hann var svo lánsamur að fá lánað
an jakka í Verslun Guðsteins svo hann
gæti haldið áfram þingstörfum. „Þetta
var falleg og vönduð peysa, prjónuð
af prjónakonu í Garðinum. Ég var svo
bara í skyrtu innanundir. Svo þegar
þessi athugasemd kom, þá nennti ég
ekki að standa í þessu og fór fram og úr
peysunni. Fór svo upp í Verslun Guð
steins og þeir lánuðu mér jakka svo ég
gæti nú greitt atkvæði í fjárlögum án
þess að liðið færi á taugum.“
Röfl, rugl, þrugl og óvirðing
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem deilt er
um klæðaburð á okkar háa Alþingi. Fyr
ir nokkrum árum lenti Hlynur Halls
son, fyrrverandi varaþingmaður VG, í
rimmu við þáverandi forseta Alþingis,
Halldór Blöndal. Lyktir þess máls urðu
að Hlyni var gert að sækja bindi eft
ir að hafa mætt í pontu án þess. Mik
il umræða skapaðist á Facebook um
lopapeysumálið á Alþingi. Guðmundi
Andra Thorssyni fannst vegið að lopa
peysunni og sagði: „Þeir hafa röflað og
ruglað og þruglað og þvaðrað þing
mennirnir mánuðum saman og sýnt
ræðustól alþingis þá mestu óvirðingu
sem hugsast getur án þess að forseti
þingsins hafi gert við það athugasemd
ir en þegar menntamálaráðherrann
sýnir sig í sjálfri þjóðar peysunni þá er
forseta nóg boðið.“
Lopapeysan er einkennisbúningur
Kristján B. Jónasson bókaútgefandi
tjáði sig einnig um lopapeysumálið
og sagðist halda að nú væri andi bús
áhaldabyltingar endanlega kveðinn í
kútinn. „Við erum að hefja nýtt flott
ræflaskeið. Farmers Market og Geysir
og allir lopasokkar þessa heims. Pakk
ið saman. Krútttímabilinu er lokið.“
Hann bætti um betur og sagðist
halda að það væri vísindalega sann
að að það flýtti fyrir efnahagsbata að
halda sig við jakkafötin. „Því meira tri
bal look, því augljósara að menn eru
að skera á böndin við alþjóðafjár
málakerfið. Lopapeysan er eins og
einkennisbúningur. Um leið og sjeik
arnir mæta í sínum kirtlum vita allir að
þeir eru kannski ríkir en þeir eru „the
other“. Framandgerving Íslendinga
sem lopaþjóðar hefði endanlega
bundið þá í stóran hnykil gjaldeyris
haftanna og svæft þá þjóðernislegum
kæfisvefni í hlýjunni. Það er ástæða
fyrir því að borgaraöflin hræðast lopa
peysur meira en nokkuð annað. Lopa
peysan er lúmskasta vopn vinstri
mannsins.“
kristjana@dv.is
Úr peysunni
Menntamálaráð-
herra var íklædd
þjóðlegri lopapeysu
en var skipað úr.
Árni í selskinnsjakkanum
Árni ætlar ótrauður að mæta
áfram í lopapeysum og selskinni
á þing. Hann fékk þó lánaðan
jakka hjá Verslun Guðsteins á
miðvikudag svo hann gæti greitt
atkvæði í fjárlögum.
n Mér finnst ómögulegt að óvirða handverk íslenskra kvenna
Rugl og óvirðing Guðmundi finnst nóg um
ruglið á Alþingi og furðar sig á því að þegar
menntamálaráðherrann sýnir sig í sjálfri
þjóðarpeysunni þá sé forseta nóg boðið.
Bréfin og símtölin mikilvægust
n Ingibjörg hefur fengið góð viðbrögð frá fjölda manns
Þ
að er voða gaman að Ís
lendingar hafi svona mikinn
áhuga á þessu,“ segir Ingi
björg Reynisdóttir, höfundur
bókarinnar um Gísla á Uppsölum
sem er á toppi metsölulista Rann
sóknaseturs verslunarinnar. Bók
in fékk slæma útreið í Kiljunni á
miðvikudag en Ingibjörg tekur það
ekki nærri sér. „Það þarf hver að
hafa sína skoðun og maður verður
að geta tekið gagnrýni. Ég er fyrst
og fremst þakklát fyrir viðbrögð
landsmanna og velgengni bókar
innar.“ Hún segir að fallegustu og
skemmtilegustu dómarnir sem
hún hafi fengið séu í þeim bréfum
og símtölum sem hún hefur fengið
frá fólki. „Þetta er fólk af Vestfjörð
um og einnig fólk sem þekkti Gísla
ekki en þykir vænt um persónu
hans,“ segir hún. Hún segir að hún
hafi skrifað bókin af virðingu við
Gísla og byggt hana á heimildum.
„Gísli skildi eftir sig skrif, hans eig
in þanka og ég byggði bókina á því
og heimildum frá öðru fólki. Ég
reyndi að byggja bókina algjörlega
á þessum heimildum og að vera
sem trúust honum.“ Aðspurð hvort
fleiri bækur séu væntanlegar frá
henni segist hún vera með eitt og
annað í huga sem hún muni setjast
yfir eftir áramót.
Ingibjörg
Tekur gagn-
rýninni vel.