Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Blaðsíða 47
Lífsstíll 47Jólablað 21.–27. desember 2012 Reynir Traustason Baráttan við holdið Í næstum ár hef ég nær vikulega gengið með hart­ nær 100 manns um fjöll og firnindi. Þessi góði hópur hafði það mark­ mið að ganga á 52 fjöll á árinu. Og nafn hans er í samræmi við það, 52 fjalla klúbbur Ferðafélags Íslands. Það er óhætt að segja að árið hafi verið viðburðaríkt. V ið höfum geng­ ið hálfnakin í steikjandi stól og blíðviðri. Og við höfum staulast um kappklædd með skíða­ gleraugu í blindhríð. Reyndar var það svo að fyrstu göngur ársins voru þannig að maður sá ekki fram­ an í nokkurn mann og sáralítið frá sér. Það var ekki fyrr en í mars að maður fór að kynnast samferðafólk­ inu. Hver blindgangan af annarri var farin á fjallstinda þar sem farar­ stjórarnir héldu eins konar skyggni­ lýsingar á því sem ekki sást. Þannig var farið yfir fjallahringinn án þess að maður væri miklu nær. Sam­ hljómur var um að gönguklúbb­ urinn ætti að heita Slagveðurs­ klúbburinn. Það var nefnilega sama hversu blítt veðrið var fyrir göngu. Veðrið versnaði gjarnan þegar hjörðin þrammaði af stað. H ápunktur ársins var gangan á Hvannadalshnjúk. Siggi stormur spáði sólskini og tak­ markalausu skyggni hálfum mánuði fyrir stóra daginn. Og eftir því sem dagurinn nálgaðist herti á blíðviðrisspánni. Nóttina sem lagt var upp í gönguna blakti varla hár á höfði. Þegar komið var í þúsund metra hæð var sólin komin upp í öllu sínu veldi. Reyndir farar­ stjórar höfðu á orði að þeir hefðu ekki í annan tíma séð annað eins skyggni. Það bókstaflega sást allt. En svo kom stormur. Slagveðurs­ klúbburinn var samur við sig. Við vorum líklega komin í 1.500 metra hæð þegar gerði kafaldsbyl með hörkufrosti. Hópurinn átti í mestu erfiðleikum með að brjótast að há­ tindinum. Og sumir týndust. Á end­ anum varð að snúa við þegar aðeins var eftir 200 metra hækkun. Seinna fréttum við af öðrum og óskyld­ um hópi sem var í lífsháska efst á Hnjúknum. Og þegar niður kom var okkur sagt að óveðursbakkinn hefði haldið sig eingöngu yfir Hvanna­ dalshnjúk. Annars staðar á landinu var blíðuveður. Þ egar gengið var á Kerhóla­ kamb Esjunn­ ar kom í ljós að stórviðri var í 800 metra hæð en sól og blíða neðra. Tveir fótbrotnuðu í ferðinni. Næsta stóróhapp sem mætti okkur var á Vatnshlíðarhorni þegar á hópnum skall skyndilega hvassviðri. Nokk­ ur úr hópnum köstuðust tugi metra niður hjarnið. Tveir göngugarpar meiddust en sluppu samt ótrúlega vel frá aðstæðum sem voru hrika­ legar. Þetta fjall er eitt það lægsta á dagskránni og engin leið að sjá fyrir það sem gerðist. N ú er að baki 51 fjall. Á gaml­ ársdag mun hópurinn ganga á Öskjuhlíð og síðan útskrif­ ast. Að baki er ár sem hlaðið er ævintýrum og svaðilförum sem ég hefði ekki fyrir nokkurn mun vilj­ að missa af. Hver ferðin var annarri betri. Blindgöngurnar eru ekki síð­ ur minnisstæðar en hinar. Nú hefst nýtt ár með enn stærri áskorunum. Framundan er Hvannadalshnjúkur og síðan Mont Blanc. Svo kom stormur É g ætla að borða hreindýr og ætla að nota uppskriftina sem er í bókinni minni Hollt og hátíðlegt,“ segir Guðrún Jó­ hannsdóttir, höfundur bókar­ innar sem kom út nú fyrir jólin. Að­ spurð telur hún það á allra færi að töfra fram dýrindishreindýrasteik. „Lykilatriðið í sambandi við hrein­ dýrakjötið, eins og annað kjöt, er að leyfa því að jafna sig í einhverja daga í ísskáp áður en maður eld­ ar það. Þá tekur það sig og meyrn­ ar betur.“ Guðrúnu segir í raun lítið mál að matreiða sjálft kjötið en henni þykir sjálfri gaman að nostra vel við sós­ una og gefa sér góðan tíma í að út­ búa hana. Áður var hefð hjá Guðrúnu og fjölskyldu hennar að hafa rjúpur í matinn á aðfangadagskvöld en eftir að framboð minnkaði af rjúpu hef­ ur hreindýr eða lambakjöt orðið fyrir valinu. Hún segir villibráðina þó vera í miklu uppáhaldi. Gott að gera hlutina í tíma Í forrétt ætlar Guðrún að hafa humarrétt, líkt og undanfarin ár. Hefðin er ekki eins ríkjandi þegar kemur að eftirréttinum, en hann er breytilegur frá ári til árs. „Mér finnst gott að fá eitthvað frískandi þegar maður er búinn að belgja sig út af kjöti og humar,“ segir Guð­ rún sem vill endilega gefa lesend­ um einstaklega frískandi og ein­ falda uppskrift af ambrósíu. „Þetta er hálfgert ávaxtasalat, rosalega frískandi og létt og dásamlega gott.“ Hún segir það skipta svo miklu máli á jólunum að standa ekki endilega ráðþrota yfir flóknum uppskrift­ um, enda séu þær einföldu oft al­ veg jafn góðar, sérstaklega ef hrá­ efnið er gott. „Svo er gott að vera búinn að gera hlutina svolítið áður svo maður geti notið þess um jólin að hvíla sig, slaka á og skemmta sér.“ n n Gott að fá léttan eftirrétt eftir allt kjötátið n 800 gr hreindýrakjöt, skorið í fjórar 200 gr steikur n 2 stilkar rabarbari n ½ fennikka n 1 msk. púðursykur Sósa n 300 gr sveppir n Smjör til steikingar n 4 skalotlaukar n 1 dl rauðvín n 700 ml grænmetissoð úr lífrænum krafti n 1 msk. villibráðarkraftur n 1 dl rjómi n 1 msk. gráðaostur n 1 msk. berjasulta Aðferð Sneiðið sveppina og brúnið í smjöri á pönnu, setjið þá síðan í sósupott. Bætið smjöri á pönnuna, skerið skalotlaukinn gróft og mýkið á pönnunni, bætið honum í sósupottinn. Hellið rauðvíni á pönnuna, hleypið upp suðu, skafið pönnuna og hellið öllu í sósupottinn. Látið suðuna koma upp, lækkið hitann og látið sveppi og lauk krauma í rauðvíninu. Hellið grænmetissoðinu út í ásamt kraftinum. Lækkið hitann og látið sósuna malla á vægum hita í 1–2 klukkustundir. Ef sósan sýður of mikið niður búið þá til meira soð og hellið út í. Skerið rabarbara og fennikku í strimla og steikið í smjöri. Setjið þá púðursykur á pönnuna og brúnið grænmetið. Setjið til hliðar. Saltið og piprið steikurnar og steikið á vel heitri pönnu í 2 mínútur á hvorri hlið, látið þær á fat og bakið við 180°C í 5–7 mínútur. Hellið rjómanum á pönnuna og skafið hana. Hellið svo rjómanum út í sósupott- inn. Látið malla og setjið gráðaost og sultu út í. Saltið og piprið. Skreytið steikurnar með brúnaðri fennikku og rabarbara og berið fram með sósunni. Hreindýrasteikur með sveppasósu, brúnuðum rabarbara og fennikku Hollt og hátíðlegt Guðrún, höfundur bókarinnar Hollt og hátíð- legt, ætlar að hafa dýrindis hreindýr á boðstólum á aðfangadagskvöld. Ambrósía n 1 ferskur ananas n 4 appelsínur n 150 gr kókosflögur n 2 msk. fljótandi akasíuhunang Afhýðið ávextina og skerið í bita. Setjið í skál og blandið hunanginu og kókosflögunum saman við. Berið fram með þeyttum rjóma. Einföldu uppskriftirnar geta verið jafn góðar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.