Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Blaðsíða 23
Börnin fá ekki gjafir um jólin Fréttir 23Jólablað 21.–27. desember 2012 Enn fátækari en áður n Hjá Hjálparstarfi kirkjunnar fá um 1.400 manns hjálp fyrir jólin Þ að er mjög erfið staða hjá þeim sem voru fátækir fyrir, þeir eru enn fátækari. Þetta er meira en efnisleg fátækt þannig þú eigir ekki fyrir mat. Þetta er orðið félagslegt líka og þetta hef- ur áhrif á allt þeirra líf. Þau geta ekki tekið þátt í þessu samfélagi sem við búum í, einangra sig og eru jafnvel þunglynd,“ segir Vilborg Oddsdóttir félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkj- unnar. Um 1.400 manns þiggja að- stoð hjá þeim fyrir jólin í formi inn- eignakorta og fatagjafa. Ekki er langt síðan inneignarkortin voru tekin til notkunar en áður útdeildi stofnun- in matargjöfum. „Ég myndi aldrei vilja fara til baka. Kortin eru hluti af breytingunni sem varð hjá okkur. Við höfum verið að bjóða upp á fjár- mála-, einstaklings- og fjölskyldu- ráðgjöf. Einnig höfum við verið með sjálfstyrkingarnámskeið, matreiðslu- námskeið og svo ætlum við að vera með saumanámskeið. Þetta er bara algjör breyting á starfinu,“ segir Vil- borg. „Kortin gera það að verkum að fólk getur valið hvað það vill hafa í matinn. Þú færð ekki eitthvað af- hent í poka sem kannski enginn í fjölskyldunni borðar. Maður held- ur meiri virðingu fyrir sjálfum sér,“ segir hún og segir kortin hafa mælst vel fyrir. Sumir fá kort allt árið og upphæðin er mismunandi eftir því hversu mikla hjálp fólk þarf. Vilborg segir fleiri þurfa hjálp í ár heldur en í fyrra og hópurinn sé fjölbreyttur. Sumir koma allan ársins hring en aðrir bara fyrir jólin. „Evrópuumræðan einstaklega vitlaus“ n Eiríkur Bergmann Einarsson telur að Ísland sé nánast jafn mikið inni í ESB og Bretland og Danmörk upptöku samningsins um Evrópska efnahagssvæðið árið 1994. „Viða- mikil nýleg norsk fræðiskýrsla sýn- ir svo kristalskýrt að enginn þarf að velkjast í vafa um það að við erum nú þegar að þremur fjórðu hlut- um komin undir evrópskan rétt. Við erum næstum því jafn sam- þætt Evrópusambandinu og bæði Danmörk og Bretland sem hafa viðamiklar undanþágur frá reglu- verki ESB. Samt snýst umræðan um það hér á landi hvort við eigum að ganga í ESB, líkt og við stæðum þar fyrir utan,“ segir Eiríkur Bergmann. Spurningin um hvort ganga eigi í Evrópusambandið eða ekki sé því ekki sérstaklega áhugaverð. „Málið snýst um hvaða tengingu við ætl- um að hafa. Mér þætti til að mynda miklu áhugaverðara að ræða hvort ekki sé kominn tími til að ganga út af Evrópska efnahagsvæðinu – en EES-samningurinn er einhver sá ólýðræðislegasti sem nokkurt full- valda ríki hefur sjálfviljugt undir- gengist,“ segir hann að lokum. n Náið samband við ESB Að mati Eiríks Bergmanns Einarssonar, dósents í stjórnmálafræði, er Ísland nánast jafn samþætt Evrópusambandinu í dag og Bretland og Danmörk. Margir fá aðstoð Hjá Hjálparstarfi kirkjunnar fá um 1.400 manns aðstoð fyrir jólin. É g kvíði því að segja þeim það en við eigum bara ekki pening fyrir gjöfum handa þeim fyrr en eftir áramót. Ég veit ekkert hvernig þau taka því, ég er að reyna að geyma að segja þeim frá því,“ segir þriggja barna faðir sem vill ekki láta nafns síns getið en verður hér kallaður Jón. Hann kvíðir jólun- um en hann og eiginkona hans eru bæði öryrkjar og vegna veikinda og óvæntra áfalla á undanförnum árum standa þau illa fjárhagslega. Svo illa að þau hafa ekki efni á að gefa börn- unum sínum jólagjafir. Röð áfalla „Það má ekkert koma upp á hjá okk- ur, bæturnar eru svo lágar. Núna bil- aði hjá okkur hitagrindin í húsinu og yngsti sonur okkar þurfti að fara í að- gerð og þessu fylgdi mikill kostnað- ur. Í kjölfarið er þessi mánuður sem átti að vera sá besti orðinn sá versti,“ segir hann. Hjónin voru þó búin að kaupa í jólamatinn en þurfa að láta staðar numið þar og flestar gjafirnar þurfa að bíða betri tíma. Röð áfalla hefur dunið yfir fjöl- skylduna undanfarin ár og lífið ekki verið auðvelt. Jón þurfti að hætta að vinna vegna bakveiki og mikillar gigtar og konan hans er einnig ör- yrki. Fyrir nokkrum árum missti fjöl- skyldan hús sitt í bruna. „Við misst- um allt í bruna árið 2007. Við vorum nýkomin úr ferðalagi og strákarnir fóru upp í rúm að sofa. Aldrei þessu vant sofnuðum við inni í stofu, ég rumskaði og það var allt fullt af reyk. Ég tók konuna og strákana og henti þeim út. Við sluppum með fötin sem við vorum í og tvær sængur. Við vor- um ekki tryggð og þurftum að byrja alveg upp á nýtt. Bjuggum í sumar- bústað fyrst um sinn og keyrðum börnin í skólann. Síðan fengum við íbúð til leigu hér í bænum sem við búum í núna,“ segir Jón. Mikil veikindi Þá fór aðeins að birta til hjá fjöl- skyldunni og rétt fyrir hrun, árið 2008, keyptu þau sér sitt eigið hús- næði. „Við náðum að kaupa og vor- um ánægð með það. Síðan kom hrunið og lánin hækkuðu upp úr öllu valdi, samt eru þetta ekki erlend lán. Lánin hækkuðu og allt annað líka nema bæturnar sem duga engan veginn fyrir öllu. Númer eitt, tvö og þrjú er alltaf hjá manni að borga skuldir og þá er ekkert eftir“ segir hann. Elsta barn þeirra hjóna er með- al annars greint með einhverfu, þroskaröskun og ADHD, miðbarnið er með kvíðaröskun og þunglyndi og það yngsta, sem er þriggja ára, hef- ur verið mikið veikt frá fæðingu. Auk þessa er Jón, eins og áður sagði, sjálf- ur mikið bakveikur og með gigt og konan hans hefur einnig verið mik- ið veik, meðal annars þunglynd. „Ég get ekkert unnið. Ég er 100 prósent öryrki og er bara misslæmur. Ef það er til dæmis kalt í veðri þá get ég ekki farið út og þegar ég er sem verstur verð ég bara að liggja fyrir.“ Annað áfall dundi svo yfir fjölskylduna í síð- ustu viku þegar Jón fékk fyrir hjartað. „Ofan á þetta allt fékk ég fyrir hjart- að og það þurfti að flytja mig á spít- ala fyrir helgi,“ segir hann og greina má brest í röddinni. Erfiðasti tíminn Veikindum þeirra fylgir einnig tölu- verður lyfjakostnaður en þau hafa reynt að skera niður öll útgjöld eins mikið og þau geta. „Við þurfum samt að reka bíl því við þurfum að geta komist til lækna,“ segir hann en fjöl- skyldan þarf að leita læknisaðstoð- ar út fyrir sinn heimabæ. Hann segir þau oft brotna saman en séu þó, eins sorglegt og það er, farin að verða vön áföllum og reyni að standa saman sem fjölskylda og vona það besta. Að það fari að birta til. „Maður fær kvíða- hnút í magann þegar síminn hringir, maður býst alltaf við því versta. Mað- ur brotnar náttúrulega niður stund- um, en það er bara þannig að þegar annað okkar er niðri þá reynir hitt að styrkja það. Þannig höldum við okkur gangandi. En þetta er erfiðasti tíminn; jól og nýár,“ segir hann. Fordómar gagnvart öryrkjum Jón segir þau hjónin reyna gera það besta úr hlutunum þó að vissulega kvíði þau jólunum og þau verði ekki tilkomumikil í ár. „Við gerum ekki mikið,“ segir hann og tekur fram að verst sé þó að þetta bitni á börnum þeirra. Þau fengu ekki hjálp frá hjálp- arsamtökum fyrir jólin. „Við höfum stundum fengið aðstoð en það kostar líka sitt að keyra í bæinn til þess að fá aðstoðina. Síðan er líka alltaf þetta að af því að við erum gift þá höfum við rétt á miklu minna en margir aðrir. Við erum fjölskylda og látum hlutina ganga upp sem fjölskylda og þá er manni bara refsað fyrir það.“ Hann segir ættingja þeirra ekki vera í stöðu til að létta undir með þeim og þar að auki séu þau ekki mikið fyrir það að vera að barma sér yfir stöðu sinni. „Það eru alltaf þessir blessuðu fordómar gagnvart öryrkjum. Að maður sé bara í ársáskrift að launum og geri ekki neitt. Svo er það líka bara þannig að það er erfitt hjá öllum og því erfitt að hjálpa til,“ segir hann. n n Þriggja barna faðir kvíðir jólunum n Röð áfalla hefur dunið yfir fjölskylduna Hjartaáfall og bruni Fjölskyldan missti húsið sitt í bruna skömmu eftir að það var keypt. Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is „Ég fæ kvíðahnút í magann þegar sím- inn hringir, maður býst alltaf við því versta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.