Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Síða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Síða 39
S lökkviliðið fundar á stóra sviði Þjóðleikhússins þegar blaðamaður kemur til fund- ar við leikstjórann ástralska Benedict Andrews. Verið er að skera úr um hvort leikmyndin uppfylli öryggiskröfur. Leikmynda- hönnuðurinn, Börkur Jónsson, fylgist með og ræðir við slökkvi- liðsmenn. Leikmyndin er í anda naumhyggju. Allt sviðið er klætt ljósum birkikrossviði – gólf, loft og veggir. Á einum veggnum er stál- vaskur. Í fyrsta sinn sem leikmyndin – birkikrossviður og ál – var tekin niður og Dýrin í Hálsaskógi sett upp þá tók það átta menn tíu tíma að skipta um leikmynd. Vegna þess hversu stór og fyrirferðarmikil leik- myndin er verður sýningafjöldi tak- markaður. Í lok janúar þarf að rýma fyrir nýrri sýningu og því verður að- eins sýnt út janúar. Leikmunadeildin í hagnýtri blóðframleiðslu Macbeth er eitt magnaðasta leikrit heimsbókmenntanna, harmleikur sem jafnan er talinn meðal blóðug- ustu og áhrifaríkustu verka Williams Shakespeare. Það er því strax ljóst að gerviblóðið fær að fossa á jólafrum- sýningu Þjóðleikhússins í ár. Kynn- ingarstýra Þjóðleikhússins, Sigur- laug Þorsteinsdóttir, hefur gaman af að segja blaðamanni frá því að leik- munadeild hússins framleiði allt það blóð sem þarf að nota í sýninguna og í hverja sýningu fara að minnsta kosti 30 lítrar og að minnsta kosti tveir tímar fara alltaf í að þrífa blóð af leikmyndinni eftir hverja sýningu. „Blóðið þarf að vera hægt að þvo auðveldlega úr fötum, líta út eins og blóð og helst vera ætt,“ segir Sigurlaug frá. „Sviðsblóð sem hægt er kaupa erlendis frá sem býr yfir þessum eiginleikum kostar á milli 5 og 10 þúsund krónur lítrinn og var því ekki möguleiki að notast við slíkt. En leikmunadeildin fann upp uppskrift sem uppfyllir öll skilyrðin og kostar aðeins brot af því sem „alvöru“ sviðsblóð kostar.“ Fræið sem varð lafði Macbeth Benedict sest með blaðamanni í notalegan sófa undir málverki af Helgu Thorberg. Það er nota- leg kyrrð í leikhúsinu þegar það er mannlaust, ekkert bólar á meintri bölvun sem sögð er hvíla á leik- húsinu vegna uppsetningarinn- ar. Kannski er þetta lognið á und- an storminum? Benedict fær sér kaffisopa og segir svolítið frá sjálf- um sér. Hann hefur verið á miklu flandri starfs síns vegna og óskar sér að festa rætur. Hann og eigin kona hans, Margrét Bjarnadóttir dansari, leita sér að fallegu húsnæði á Ís- landi. Hann kann vel við sig hér en þau hjón hafa um skamma hríð haft aðsetur í Vesturbænum. „Ég hef eiginlega búið í ferða- tösku í langan tíma,“ segir hann og brosir hæglátlega. „En ég vil það í raun ekki. Ég vil festa rætur einhvers staðar og helst hér.“ Benedict leikstýrði Lé konungi á síðasta ári og hitti þá leikkonuna Margréti Vilhjálmsdóttur. „Macbeth er eitt af best skrifuðu leikritum heims og mig hefur lengi langað til að setja það upp. Ég hef líka unun af því að vinna með góðum leikur- um og ég vildi halda áfram að vinna með íslenskum leikurum á íslenskri tungu, og þá var Macbeth, að mér fannst, rökrétt framhald. Persónu Gunnhildar hef ég alltaf séð eins og fræið sem seinna varð lafði Macbeth. Þessi leikrit eru tengd. Eitt sinn þegar við vorum að æfa eitt atriðið úr Lé konungi og Mar- grét var í hlutverki Gunnhildar, þá sá ég þetta skýrt. Hún er fædd í hlutverk lafði Macbeth. Ég man að ég renndi yfir sviðið til hennar við þessa uppljómun og spurði hana hvort hún hefði einhvern tímann farið með hlutverk lafði Macbeth. Ég vildi sjá hvað Magga gæti gert í hlutverki lafði Macbeth, það var hún sem vakti áhuga minn á því að setja upp verkið. Hún er frábær leikkona. Hvar sem er í veröldinni væri hún stjarna. Hún hefur greið- an aðgang að tilfinningum sínum, erfiðum tilfinningum en líka gleði og býr yfir kynngimögnuðum krafti og kynorku. Allt þetta er nauðsyn- legt í hlutverk lafði Macbeth. Svo þar byrjaði vegferðin,“ segir Bene- dict. „Björn Thors er líka algjörlega frábær í sínu hlutverki og samspil hans og Margrétar er magnað. Þetta er frábært tækifæri fyrir hann. Hann hefur ekki leikið stórt Shakespeare- hlutverk áður og ég hef fulla trú á honum í hlutverkið.“ Nauðsynleg rannsókn á ofbeldi Benedict er hugleikið að skoða myrka þætti mannlegrar tilveru. Hvern- ig mannssálin höndlar völd og illsku. „Stór hluti af vinnu minni með verk Shakespeare, er að horfa á tengsl mannsins við völd og hverju hann kostar til til þess að komast yfir þau. Macbeth er greining á því hvað gerist þegar glæpur er framinn. Rannsókn á ofbeldi. Það er farið djúpt í sálina og undirmeðvitundina, þar til komið er að því hulda sem ekki er ekki hægt að bæla. Við erum að bæla svo mikið nið- ur sem síðan vill ryðja sér leið. Stund- um í draumum okkar eða martröðum. Í leikhúsið förum við til að dreyma með augun galopin. Það er örugg- ur staður þar sem við getum kannað mannlega tilveru.“ Benedict segir nauðsynlegt að kanna myrkar hliðar tilverunnar til þess að skilja tilvistina betur. „Já, ég held að hrifning okkar í bókmenntum og kvikmyndum á hinu illa sé sprottin af nauðsyn. Hið fagra – ástin, vináttan og fjölskyldutengsl – er hluti mann- legrar tilveru en það eru líka morð og ofbeldi. Þetta er raunveruleikinn.“ Umrædd er bölvunin sem sögð er fylgja leikritinu. Benedict segir um- fjöllunarefni leikritsins fela í sér sátt- mála við hið illa. „Þú horfir á þessa sýkingu breiðast út og niðurbrot manns í dýr og siðblindingja. Að takast á við efni eins og þetta er dimm veg- ferð, leikritið hefur sáttmála við hið illa. Þetta er leikrit sem í sjálfu sér er bölvun.“ Svolítið um óhöpp í húsinu Benedict kveður og enn rík- ir kyrrð í húsinu. Sem verður rof- in brátt þegar leikhúsgestir fá að dreyma með augun opin og ferðast að mörkum mannlegrar tilveru. Frumsýning er á annan dag jóla eins og vant er í Þjóðleikhúsinu. Sigurlaug kynningarstýra verður fyrir svörum hvað varð- ar meinta bölvun og óhöpp inn- an veggja Þjóðleikhússins. Þarf að grípa til þess ráðs að blessa húsið? „Það hefur nú ekki komið til tals að bregðast sérstaklega við þeirri bölvun sem sögð er fylgja verkinu – en það hefur samt verið svolítið um óhöpp í húsinu undanfarið. Sem sumir tengja bölvuninni – en þau óhöpp hefðu nú alveg get- að átt sér stað við æfingar á öðru verki.“ n 30 lítrar af blóði Stuð milli stríða Björn Thors, Margrét Vilhjálmsdóttir og Benedict Andrews taka Macbeth alvarlega upp að vissu marki fyrir æfingu. Nógu dimm er vegferðin. Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is Viðtal Menning 39Jólablað 21.–27. desember 2012 „Ég hef eiginlega búið í ferðatösku í langan tíma Hrifinn af aðalleikurunum „Hvar sem er í veröldinni væri hún stjarna,“ segir Benedict um Margréti og segist enn fremur hafa fulla trú á Birni Thors í krefjandi hlutverki Macbeths. n „Illskan er smitandi drápsvírus“ n Hagnýt blóðframleiðsla í Þjóðleikhúsinu Í Jólafrumsýning Þjóðleik- hússins í ár er Macbeth eftir Shakespeare í leik- stjórn hins margverðlaun- aða leikstjóra Benedicts Andrews sem leikstýrir Birni Thors í hlutverki Macbeths og Margréti Vilhjálmsdóttur í hlut- verki lafðinnar grimmu. Verkið er eitt hið allra blóðugasta í leikverka- sögunni og á hverri sýn- ingu verða notaðir 30 lítrar af blóði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.