Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Blaðsíða 61

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Blaðsíða 61
Fólk 61Jólablað 21.–27. desember 2012 Í slendingar spyrja hvar María sé og hvort ég geti breytt vatni í vín. Ég fæ oft að heyra slíka brandara en það er líka allt í lagi því þannig læri ég meira um íslenskan húmor og íslensk séreinkenni, segir Jesús Manuel Loayza D‘Arrigo frá Perú sem verður fertugur á aðfangadag. Jesús hefur búið á Íslandi í sex ár og er kvæntur íslenskri konu. Hann er myndlistarmaður og heldur þessa dagana sýningu í Há- skóla Íslands í VR-3. Hann ætlar að eyða jólunum hérna líkt og hann hefur gert undanfarin ár. „Mér finnst betra að vera hérna á jólunum en í mínu heimalandi. Þar eru allir svo stressaðir, vilja eyða miklum peningum í gjaf- ir og halda stórar veislur. Kannski er það líka svoleiðis hjá Íslending- um en ég finn ekki fyrir því. Ég nýt jólanna með fjölskyldu minni og við ætlum að vera hjá foreldrum konunnar minnar í mat. Hér eru jólin mjög notaleg. Ég nenni engu stressi.“ Jesús segist þó ekki kunna að meta þann íslenska sið að elda skötu. „Tengdamamma eldar sköt- una og ég reyni alltaf að borða hana en get það ekki. Ég bið frekar um gasgrímu,“ segir hann hlæjandi og bætir við að í Perú sé jólahaldið að líkjast því sem tíðkast í Banda- ríkjunum. „Í Perú eru allir farnir að apa eftir Bandaríkjamönnum og vilja borða kalkún á jólunum. Ég skil það ekki. Við eigum okkar gömlu menningu og okkar eigin mat. Ég vil frekar halda í gömlu hefðirnar.“ Jesús verður fertug- ur á aðfangadag Oft spurður hvort hann geti breytt vatni í vín S æll Siggi Hall … ég heiti Guð- rún, þú þekkir mig ekkert – en ég varð bara að fá að hringja í þig. Málið er að ég er með heilan kalkún … hvernig er best að eld‘ann? Fyrirgefðu að ég sé að hringja í þig á Þorláksmessu. Á þessum orðum hefst formáli nýrrar matreiðslubókar Sigga Hall sem nefnist Jólaréttir. Eins og nafnið gef- ur til kynna þá inniheldur bókin upp- skriftir að fjölbreyttum og gómsætum réttum sem henta vel á veisluborðið yfir hátíðarnar. Aðspurður segist Siggi hafa fengið óteljandi símtöl í þessum dúr í gegn- um tíðina. Hann hefur þó ávallt gam- an af þeim og er með svörin á reiðum höndum. „Maður tekur bara vel í það, maður verður að gera það. Ég gaf þjóð- inni sjálfan mig á sínum tíma,“ segir hann léttur í lund. Fólk hefur jafnvel gengið svo langt að hringja í hann á aðfangadag. „Það er mér minnisstætt þegar það hringdi í mig kona sem var í stresskasti því endurnar voru ennþá frosnar. Hún var að byrja að elda og fólkið að koma. Hún sagðist hafa tekið þær út en þær þiðnuðu ekki nógu vel.“ Jólaveislan eins og fermingarveisla Nú hefur Siggi hins vegar tekið saman uppskriftabók þar sem húsmæður og -feður landsins geta einfaldlega flett svörunum upp í stað þess að hringja í meistarakokkinn sjálfan á ögurstundu. „Þetta eru svo margar spurningar og bókin er í raun eitt stórt jólahlaðborð. Ef þú ætlar að gera voðalega grand og flott jólahlaðborð þá byrjarðu bara á byrjuninni og endar á síðustu blað- síðunni. Þá ertu kominn með mjög flott hlaðborð sem þú getur ver- ið virkilega stoltur af og selt dýrum dómi,“ segir hann hlæjandi. Allir réttirnir í bókinni eru á boðstólum hjá honum sjálfum ein- hverja daga yfir jólin en það er hefð hjá fjölskyldunni að borða hrein- dýr og rjúpur á aðfangadagskvöld. „Það eru svo margar jóla- og fjöl- skylduveislurnar sem eru haldnar á milli jóla og nýárs. Þetta er nú orðið þannig að jólaveisla fjölskyldunn- ar er orðin eins og fermingarveislan var fyrir 15 árum, hún er svo marg- menn.“ „Eiga bara nóg af mat“ Aðspurður hvort það lendi ekki alltaf á honum að sjá um matseldina svar- ar hann játandi, en segist þó fá góða hjálp frá konunni, Svölu Ólafsdóttur, sem aðstoðaði hann einnig við gerð bókarinnar. „Ég svona þykist vilja ráða þó ég geri það nú kannski ekki.“ En hvaða lykilráð getur meist- arakokkurinn gefið lesendum DV fyrir jólamatseldina? „Að vera búin að undirbúa matinn vel og gera sér þetta ekki of erfitt. Þá er um að gera að prófa eitthvað aðeins nýtt en fylgja þessu hefðbundna þó að mestu leyti og ekki breyta of mikið til. Svo gef ég það ráð að fólk eigi að vera sallarólegt á jóladag og borða allan daginn, helst í náttfötunum. Eiga bara nóg af mat,“ segir Siggi að lokum. n n Siggi Hall gefur út matreiðslubók sem er í raun jólahlaðborð Mælir með afslöppun og áti á jóladag Borðar rjúpur og hreindýr Siggi ætlar að halda í þá hefð að borða villibráð á aðfangadagskvöld. Jesús Jesús er frá Perú en hefur búið á Íslandi í sex ár. Friðarmáltíð Spessa n Haldin í sextánda sinn L jósmyndarinn Spessi stendur í ströngu þessa dagana við að undirbúa friðarmáltíð Spessa sem haldin verður á Gló í ár. Af hverjum miða renna 1.000 krónur til Konukots, sem er næturathvarf fyrir heimilislausar konur. Spessi, sem er grænmetisæta til 30 ára, mun á þessu kvöldi elda jólamat eins og heima hjá sér og að þessu sinni ætlar Solla vinkona hans og Elli, maður hennar, að leggja honum lið. „Þetta byrjaði á Á næstu grösum hjá Gunnhildi vin- konu minni og seinna hjá Sæma og Dóru sem keyptu Grösin af Gunn- hildi. Og tvenn jól á Veitingastaðn- um Písa í Lækjargötu þegar Magga Rósa réði ríkjum þar. Á síðasta ári var ég með Friðarmáltíðina á Veitingastaðnum 2nd Street í litlum bæ sem heitir Frankfort Kansas. Þá fékk ég hjálp frá vini mínum Frið- geiri Helgasyni sem ég sótti til New Orleans,“ segir Spessi. Hann leggur mikið upp úr góðri tónlist á Friðarmáltíðinni og hefur Óskar Guðjónsson saxófónleikari séð um hana og fengið til liðs við sig alla helstu djass-snillinga landsins. Að þessu sinni ætlar hljómsveitin ADHD að spila undir borðhaldi en sveitina skipa þeir Óskar Guðjóns- son, Davíð Þór Jónsson, Ómar Guð- jónsson og Magnús Tryggvason El- íassen. Solla og Spessi Spessi fær aðstoð frá Sollu vinkonu sinni við eldamennskuna. ÍTALSKT JÓLABRAUÐ Sími: 561 1433 mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunudaga 8.00 -16.00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.