Víkurfréttir - 20.09.2012, Side 10
FIMMTUDAGURINN 20. SEPTEMBER 2012 • VÍKURFRÉTTIR10
Ert þú pennavinur?
Menntunar og hæfniskröfur:
• Reynsla af sölu- og þjónustustörfum
• Rík þjónustulund
• Sjálfstæði, frumkvæði og skipulag í starfi
• Góðir samskiptahæfileikar
• Góð almenn tölvukunnátta,
Navision kunnátta er kostur
• Góð íslenskukunnátta
Starfssvið:
• Sér um daglega sölu og þjónustu til viðskipta
vina, ásamt því að afhenda vörur
• Viðhalda núverandi viðskiptatengslum á þessum
tilteknu svæðum
• Öflun nýrra viðskiptavina
• Samskipti við viðskiptavini, sölutilboð og samningagerð
• Önnur tilfallandi verkefni
Umsóknarfrestur er til og með 26.september 2012.
Umsóknir óskast sendar á netfangið atvinna@penninn.is
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál.
Sölumaður í fyrirtækjaþjónustu Pennans
Penninn leitar að öflugum starfskrafti í fyrirtækjaþjónustu í Reykjanesbæ.
Vinnusvæðið er Reykjanesbær og Akranes.
NÁMSKEIÐ UM
UPPELDI BARNA
MEÐ ADHD
Fræðsluskrifstofa Reykjanesbæjar auglýsir námskeið
fyrir foreldra um uppeldi barna með ADHD.
Námskeiðið er hannað til að hjálpa foreldrum að
tileinka sér gagnreyndar uppeldisaðferðir til að takast
á við vandamál sem algeng eru hjá börnum með ADHD.
Æskilegt er að báðir foreldrar sæki námskeiðið.
Námskeiðið er ætlað foreldrum barna á aldrinum 5-12
ára sem greind hafa verið með athyglisbrest með eða
án ofvirkni (ADHD/ADD) og eru ekki með alvarlegar
eða fjölbreyttar fylgiraskanir.
Námskeiðið er 12 klst og skiptist í 6 hluta, í tvo tíma í
senn. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 16. október
kl.19:30-21:30 og kennt verður vikulega í fyrstu fimm
skiptin en tvær vikur eru á milli næstsíðasta og
síðasta tíma sem verður 27. nóvember. Kennt verður í
Holtaskóla. Þátttökugjald er 3000 kr fyrir einstaklinga
og 5000 kr fyrir pör.
Skráning fer fram í síma 421-6700 og
skráningu lýkur 8. október
Leiðbeinendur: Agnes Björg Tryggvadóttir
og Sigurður Þ. Þorsteinsson, sálfræðingar
Keflvíska hljómsveitin Valdi-mar hefur gefið út nýtt lag.
Lagið heitir Sýn og er fyrsta smá-
skífan af plötunni Um Stund sem
væntanleg er í hillur verslana um
miðjan október. Hægt er að hlýða
á lagið í sérstakri forhlustun á
gogoyoko.com.
Hljómsveitina Valdimar stofnaði
Valdimar Guðmundsson ásamt
vini sínum Ásgeiri Aðalsteinssyni
árið 2009. Hægt og rólega bættust
fleiri í hópinn og nú er Valdimar
orðin að 6 manna hljómsveit. Auk
Valdimars og Ásgeirs skipa sveitina
þeir Guðlaugur Már Guðmunds-
son, Þorvaldur Halldórsson, Krist-
inn Evertsson og Högni Þorsteins-
son.
Fyrsta plata hljómsveitarinnar,
Undraland, kom út árið 2010.
Platan fékk góðar viðtökur og
nutu lögin Yfirgefinn, Brotlentur
og Undraland mikilla vinsælda í
útvarpi. Fyrir plötuna hlaut sveitin
tilnefningu sem bjartasta vonin á
Íslensku tónlistarverðlaununum
auk þess sem hún var valin á úr-
valslista Kraums.
Sporthúsið opnaði sl. laugar-dag nýja og glæsilega 2000
fermetra heilsu- og líkamsræktar-
stöð á Ásbrú í Reykjanesbæ.
Mikill fjöldi fólks lagði leið sína
í stöðina þegar hún opnaði, enda
var aðgangur ókeypis á opnunar-
daginn til að gefa fólki tækifæri á
að kynna sér stöðina sem er þriðja
stærsta líkamsræktarstöð lands-
ins.
Það er Suðurnesjafólkið og hjónin
Ari Elíasson og Eva Lind Ómars-
dóttir sem eiga og reka stöðina
ásamt eigendum Sporthússins
í Kópavogi, bræðrunum Þresti
Jóni og Inga Páli Sigurðssonum.
Sporthúsið er vel þekkt fyrirtæki á
þessu sviði og rekur eina stærstu og
öflugustu líkamsræktarstöð lands-
ins í Kópavogi.
Sporthúsið á Ásbrú mun bjóða
allt það helsta í líkamsrækt í dag;
fullkominn tækjasal, einkaþjálfun,
leikfimissali, CrossFit, HotYoga,
skvass, spinning, Fit pilates, ketil-
bjöllur og úrval opinna tíma. Einnig
verður boðið upp á barnagæslu,
veitingasölu og boostbar, auk þess
sem fyrirhuguð er opnun verslunar
í húsnæðinu.
Þá verður Sporthúsið í samstarfi
við íþrótta- og heilsuskóla Keilis.
Meðfylgjandi myndir voru teknar
við opnun stöðvarinnar sl. laugar-
dag.
Það er Suðurnesjafólkið og hjónin Ari Elíasson og Eva Lind Ómarsdóttir sem eiga og reka stöðina ásamt eig-
endum Sporthússins í Kópavogi, bræðrunum Þresti Jóni og Inga Páli Sigurðssonum.
Þriðja stærsta líkamsræktar-
stöð landsins opnar á Ásbrú
Nýtt lag frá strák-
uNum í Valdimar