Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.09.2012, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 20.09.2012, Blaðsíða 16
FIMMTUDAGURINN 20. SEPTEMBER 2012 • VÍKURFRÉTTIR16 Helgina 21.-23. september nk. verður haldið Kvennaþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Ásbrú í Reykjanesbæ. Þetta þing er haldið fyrir allar konur í SL, hvort sem þær eru í slysavarna- deildum, kvennasveitum eða björgunarsveitum og er haldið annað hvert ár á mismunandi stöðum um landið. Um 200 konur hafa skráð sig á þingið svo búast má við líflegu og fjörugu þingi þar sem Sirrý (Sig- ríður Arnardóttir) mun fara með þær í gegnum það hvernig á að ná til fjölmiðla til að kynna sig og starfið þeirra og að hafa gaman af því sem þær eru að gera. Á sunnudeginum munu svo stöll- urnar Anna Lóa og Þóranna láta þær vinna saman og velta fyrir sér hinum ýmsu spurningum um starf og verkefni sveitanna. Að sjálfsögðu er líka boðið upp á skemmtun og á föstudeginum eftir setningu þingsins í Listasafni Duushúsanna. Þar geta þátttak- endur notið þeirra listasýninga sem þar eru en einnig munu lista- og handverkssmiðjur bæjarins vera með opið á föstudagskvöldinu fyrir slysavarnakonurnar. Á laugardagskvöldinu er svo boðið upp á skemmtun og ball þar sem þemað er að sjálfsögðu „Hernáms- árin“ og heyrst hefur að sumar sveitirnar hafi lagt helling í að finna réttu fötin til að vera í á þessari skemmtun sem að sjálfsögðu er haldið í Officeraklúbbnum. Í samtali við Víkurfréttir sagði Krist- björg Gunnbjörnsdóttir, formaður kvennasveitarinnar Dagbjargar, að mikill undirbúningur sé búinn að eiga sér stað fyrir Kvennaþingið. Undirbúningurinn hefur staðið allt sl. ár en um undirbúninginn sjá félagskonur í kvennasveitinni Dag- björgu í Reykjanesbæ. Þær hafa víða fengið stuðning og vilja koma á framfæri þakklæti til allra sem lagt hafa þeim lið í undirbúningi Kvennaþingsins sem verður haldið í Keili á Ásbrú um komandi helgi. ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Aðgangseyrir 2.500 kr. og geisladiskurinn fylgir með! Arnór Vilbergsson stjórnar hljómsveit og kór. verða laugardaginn 22. september kl. 16:00 í Stapanum, Reykjanesbæ. Í TILEFNI 70 ÁRA AFMÆLIS KÓRS KEFLAVÍKURKIRKJU OG ÚTGÁFU GEISLADISKS Fundarstjóri Kvennaþings Slysavarnafélagsins Landsbjargar: Olga Björt Þórðardóttir, Njarðvíkurmær, verður með stjórn á öllum málum hjá okkur og mun sjá til þess að dagskráin okkar standist, smalar okkur saman þegar við gleymum okkur í spjallinu við að kynnast betur og ræða saman um okkar hjartans mál og öll þau mikilvægu málefni sem við vinnum að. Fyrirlesarinn okkar á laugardeginum Sigríður Arnardóttir fjölmiðlafræðingur, fyrirlesari og rithöfundur sem allir þekkja undir gælunafninu Sirrý mun fara með okkur í gegnum það hvernig við eigum að ná til fjölmiðla til að kynna okkur og okkar starf, að njóta þess sem við erum að gera, að vera ekki of hógværar og lítillátar heldur láta ljós okkar skína og treysta á okkar eigin krafta og hæfileika og ekki síst að kynnast hvor annarri. Hún mun hvetja okkur til að laða fram það góða til að auðvelda okkur að sinna verkefnum okkar eins og við viljum vinna þau. Veislustjóri kvöldsins: „Það er draumur að vera með dáta“. Hún Mæja er ein af okkur og hefur þann góða hæfileika að geta skemmt öðrum með léttri og glaðlegri fram- komu sinni ásamt því að komast skemmtilega að orði, geta fengið stóran hóp til að finnast hann vera einstakur og gleður svo sjálfa sig og aðra með gítarspili og léttum söng sem fær alla til að vilja taka undir með henni, að sjálfsögðu verður hennar eini og sanni Valli rútubílstjóri með og spilar undir með henni á harmonikuna. Anna Lóa og Þóranna Kristín Þær stöllurnar Anna Lóa og Þóranna Kristín verða með okkur á sunnudeg- inum og munu fá okkur til að kíkja í eigin barm, láta okkur ræða um hvað við viljum, hvernig við viljum og fleira áhugavert. Anna Lóa er náms- og starfsráðgjafi að mennt og starfar sem slíkur hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum. Hún kennir líka sjálfstyrkingu enda er það staðföst trú hennar að gott sjálfstraust sé undirstaða aukinna lífs- gæða. Anna Lóa hefur haldið fyrirlestra um hamingjuna út um allt land og heldur úti Hamingjuhorninu á FB ásamt vikulegum pistlum í Víkur- fréttum. Hún stofnaði SKASS ásamt Þórönnu Kristínu og hafa þær brallað ýmislegt saman í framhaldi af því. Þóranna K. Jónsdóttir er sérfræðingur í markaðsmálum og hefur frá sumrinu 2011 eflt markaðsstarf fjölda fyrirtækja með störfum sínum undir merkjum Markaðsmála á mannamáli. Þóranna er með MBA frá University of Westminster og hefur starfað við markaðs- og auglýsingamál í um áratug, m.a. fyrir Renault á auglýsingastofunni Publicis í London, hjá auglýsinga- stofunni Góðu fólki í Reykjavík og fyrir Sparisjóðinn. Sem verkefnastjóri fyrir Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar lagði Þóranna grunninn að starfs- semi frumkvöðlasetursins í Eldey og sinnti þar ráðgjöf við frumkvöðla og fyrirtæki. Þóranna var leikkona í fyrra lífi, auk þess sem hún hefur starfað í meiri eða minna mæli sem söngkona frá því á unglingsárunum. Þóranna stofnaði SKASS ásamt Önnu Lóu og hafa þær gert ýmislegt kraftmikið og skemmtilegt saman í framhaldinu. Örstutt um Kvennaþingið Um 200 slysavarnakonur stilla saman strengi á þingi í Reykjanesbæ Kvennasveitin Dagbjörg er öflugur bakhjarl Björgunarsveitarinnar Suðurnes. Skiptir þá engu hvort um er að ræða flugeldasölu, eða önnur aðstoð á bak við tjöldin. Þegar björgunarsveitirnar fara í útköll þá eru kvennasveitirnar á bak við tjöldin og sjá um að allir fái nauðsynlega næringu. Á meðfylgjandi mynd eru Dagbjargar-konur að afhenda Björgunarsveitinni Suðurnes góðar gjafir.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.