Gerðir kirkjuþings - 01.01.1968, Blaðsíða 15
6. Kirkjuþing
7. mál
Tillaqa til þinqsályktunar
um quosþjónustur á helqidöqum
þjoðkirkjunnarT"
Flm. frú Júsefína Helgadóttir.
Kirkju|)ing 1968 ályktar, að hverjum presti þjúðkirkjunnar,
sem hefur embætti á hendi, beri að messa að minnsta kosti
einu sinni á hverjum helgidegi, nema hann sé veikur, ófært
sé til kirkju vegna veðurs eða hann hafi á messudegi verið
kvaddur til^setu á prestastefnu eða öðrum fundum um kirkjuleg
málefni. Þó eru undanskildir þeir helgidagar, sem falla inn
í^orlofstíma prestsins.
Sóknarnefndir og safnaðarfulltrúar skulu gera skýrslur um messur,
á þar til gerðum eyðublöðum, og senda þær ársfjórðungslega til
biskupsskrifstofunnar• NÚ kemur í ljós, að messur hafa fallið
niður, án þess að þær ástæður, sem að framan greinir, séu fyrir
hendi, og skal þá koma hlutfallslegur frádráttur af embættis-
launum prestsins.
Visað til allsherjarnefndar. Nefndin lagði til, að till. yrði
svohljóðandi:
Kirkjuþing, haldið^l968, beinir þeim eindregnu tilmælum til
þjónandi presta þjóðkirkjunnar, sóknarnefnda og safnaðar-
fulltrúa, að helgihald kirkjunnar verði rækt eins ýtarlega og
lög og tilskipanir þar að lútandi mæla fyrir um, enda sjái
kirkjustjórn um, að viðkomandi aðilar fái í hendur fyrirmæli
um starfsvið sitt.
Jafnframt treystir Kirkjuþing því, að prófastar í umboði biskups
sjái til, að helgihaldið só virt og rækt og vandi um, ef út af
er brugðið.
Við 2.umræðu komu fram breytingartillögur um orðalag: í stað
orðsins "helgihald" komi "guðsþjónustuhald", og niðurlag till.
hljoði svo: "----að guðsþjónustur séu ræktar, og vandi um, ef
út af er brugðið".
Þessar breyt.till. voru samþykktar og ályktunin síðan
skv. till. allsherjarnefndar.