Gerðir kirkjuþings - 1983, Blaðsíða 22
16
20 og 21. mál. Um sóknarprest á Seltjarnarnesi og um ráðningu
sjúkrahúsprests.
ítrekaðar tilraunir hafa verið gerðar til þess að fá þessi og
fleiri embætti, en ekki tekist. Á Seltjarnarnesi er verið að
reisa kirkju. Það er eini kaupstaður landsins, sem ekki hefur
prest, en nýtur þjónustu sóknarpresta i Nessókn. Það er sárt
til þess að vita, að ekki hefur i meir en áratug verið hægt aó
nota heimild i lögum til að ráða sjúkrahúsprest. Það verður
haldió áfram að knýja á hvað þessi mál varðar, og við verðum
aó trúa því, að „fyrir yður mun uppiokið verða."
23. mál. Um Kirkjuhús i Reykjavik.
Kirkjuhúsnefndin hefur meó höndum framgang þessa máls. Nefndina
skipa séra Jónas Gislason, formaður. Hermann Þorsteinsson,
ritari, séra Guðmundur Óskar Ólafsson, Ottó Michelsen og Páll
Bragi Kristjónsson. Hugsjónin er aó kirkjuhús risi á Skólavöróu-
hæö við Hallgrimskirkju á horni Eiriksgötu og Mimisvegar. Hins
vegar er það i bráð talin heppileg lausn, að kirkjan geti eign-
ast húsakynni Krabbameinsfélagsins við Suóurgötu 22 og 24, þegar
þau verða til sölu, og að þar verði starfsmiðstöð, biskups-
embættið og skrifstofur fyrir stofnanir kirkjunnar,þar til kirkju-
húsið rís á Skólavörðuhæó. Nefndin hefur kynnt sér aðstæður og
að athuguðu máli lagt áherslu á þessa lausn bæði við fyrrverandi
og núverandi rikisstjórn. Ennþá er ekki hægt að segja, hver
árangurinn verður. Markvisst er unnið að máli þessu i samræmi
vió tillögu kirkjuþings.
24. mál. Um deild við 3iskupsstofu er sinni öldrunarmálum.
Mál betta var kynnt Öldrunarnefnd kirkjunnar, en þá nefnd skipa:
Séra Tómas Guðmundsson formaður, Margrét Hróbjartsdóttir safn-
aðarsystir, ritari, Esra Pétursson læknir, séra Ólafur Skúlason
vígslubiskup og séra Sigurður H. Guðmundsson. Hjálparstofnunin
fékk einriig málið til athugunar, svo og „nefndanefndin" - eins
og fram kemur i greinargerð hennar.
25. mál. Um stöðu Strandarkirkju.
Samkvæmt ákvörðun kirkjuþings skipaði Kirkjuráð 3ja manna nefnd
til þess að kanna það mál, en staða Strandarkirkju er sérstætt
mál og vandasamt. Nefndina skipa: Séra Eiríkur J. Eiríksson
fyrrv. prófastur, Jón Guómundsson bóndi og dr. Páll Sigurðsson
dósent.