Gerðir kirkjuþings - 1983, Page 145
137
Lagt er til aó kirkjuþing samþykki og vinni að ráóningu
biskupsféhiróis, en ráðning hans sé takmörkuð við ákveðinn
tima og aldrei lengur en viðkomandi biskup situr. Sömuleiöis
er bent á aó eðlilegt sé aó vinna að því að biskupsritari sé
ráðinn meó sama fyrirkomulagi, þannig að þessir tveir aóilar
séu hverju sinni sérstakin fulltrúar og trúnaóarmenn biskups.
Lagt er til að núverandi fréttafulltrúa og núverandi fram-
kvæmdastjóra Hjálparstofnunar kirkjunnar veröi falið á næsta
ári aó vinna að þessari samræmingu nefndastarfa og annars
kirkjulegs starfs i samráði við aðila og i samráói við biskup
og kirkjuráð. Ljóst er að endurskipuleggja þarf nefndaskip-
anir, skipulagsskrár og fá lagagreinum breytt i samræmi vió
þær breytingar sem aóilar myndu telja réttar. í upptalningu
málaflokka og starfsmanna er reynt að höfða til alls þess
sem skoða þarf og huga að, en ekki gerð tilraun til að setja
fram endanlegan starfsramma. Eðlilegt er talió, aó áfram
séu einstakir málaflokkar og stofnanir meó þá uppbyggingu og
umgjörð eins og i dag er og sæki sinn stuðning og aðhald frá
kirkjunni, frjálsu leikmannastarfi og starfi þjóökirkjunnar,
svo sem nefndum, kjörnum frá sóknarnefndum eða héraósfundum
eóa þá með tilnefningu frá biskupi eða kirkjuráði. Einstökum
málaflokkum og aðilum eigi að vera mögulegt að aólagast aó
starfsgrundvelli innan þessa ramma sem hér er bent til i
grófum dráttum.
Lagt er til aó deildarstjórar verði i framtiðinni embættis-
menn þjóðkirkjunnar i lögbundnum embættum.
c) Breyting á starfsskipulagi samkvæmt b-lið, nái þriggja biskupa
frumvarp kirkjuþings 1982 fram aó ganga.
1) 1 stað árlegs. prófastafundar komi án lagabreytinga árlegur
prófastafundur hvers biskupsdæmis með sömu viðfangsefni og
áður eru nefnd, og þvi ekki sýnd nein mynd gagnvart þeirri
breytingu. Hins vegar er hér sýnd mynd af þeirri breytingu,
sem álit Starfsháttanefndar gerir ráð fyrir, þ.e.a.s. kirkju-
stefnu sem komi saman annað ’nvert ár og er með sinu biskups-
dæmisráði þar sem viókomandi biskup situr meó presti og leik-
manni. Kirkjustefna hefði likt hlutverk og árlegur prófasta-