Gerðir kirkjuþings - 1983, Qupperneq 147
139
Skýrsla Kirkjufræðslunefndar,
ábendingar og tillögur haustið 1983.
A. Skýrsla og ábendingar.
1. Starf nefndarinnar undanfariö ár:
Haustið 1982 fjölgaði kirkjufræðslunefndarmönnum úr þremur i fimm
við þaó, að biskup tilnefndi tvo nýja menn til setu i nefndinni.
Eiga þar nú sæti þessir fulltrúar:
Séra Heimir Steinsson, Þingvallaprestakalli, formaður nefndarinnar.
Séra Ingólfur Guðmundsson, farprestur Þjóðkirkjunnar, féhiróir nefnd.
Séra Þorvaldur Karl Helgason, Njarðvikurprestakalli.
Séra Bernharður Guðmundsson, fréttafulltrúi þjóókirkjunnar.
Séra Árni Pálsson, Kársnesprestakalli.
Veturinn 1982-1983 kom nefndin saman til fundar i fundarsal Biskups-
stofu einn dag i mánuði hverjum, og stóðu fundir frá kl. 13.00 til
16.30.
í upphafi vetrar tók Kirkjufræðslunefnd fram fyrri tillögu sina um
sérstakan starfshóp vegna fermingarfræóslu (sjá greinargerð nefnd-
arinnar til Kirkjuþings haustið 1980), en viðbrögð við þeirri hug-
mynd höfðu ekki borizt frá Kirkjuráði. Kirkjufræðslunefnd fól
séra Árna Pálssyni að stýra starfshópi um fermingarfræðslu.
Hópinn skipa aó öðru leyti þau séra Tómas Sveinsson og séra Auður
Eir Vilhjálmsdóttir, tilnefnd af Æskulýðsnefnd þjóðkirkjunnar, og
séra Bjarni Sigurðsson og Helga Steinunn Hróbjartsdóttir, tilnefnd
af Menntamálanefnd þjóðkirkjunnar. Nánar verður vikió aö verkefnum
starfshóps um fermingarfræðslu aftar i þessu máli.
Á fundum sinum siðastliðinn vetur undirbjó Kirkjufræöslunefnd
einnig myndun sérstaks starfshóps um fulloróinnafræðslu. Fyrir
þeim hópi mun séra Ingólfur Guðmundsson ráða. Þetta mál þarfnast
þó frekari athugunar, enda hefur ekki fariö fram á vegum nefndar-
innar nein sú athugun á fullorðinnafræðslu, er jafnað veröi til
könnunar á fermingarstörfunum, sbr. áður nefnda skýrslu.
Kirkjufræðslunefnd ræddi á fundum sinum ýmis þau mál, er að höndum
bar i lifi þjóðar og kirkju og varða kirkjulega fræóslu, svo sem
uppeldi til frióar og nýjar leiðir við biblíulestra. Þessarar
umræðu sér væntanlega nokkurn stað i þáttum nefndarmanna i „Við-