Öldrun - 01.02.2001, Side 7
7ÖLDRUN – 19. ÁRG. 1. TBL. 2001
veld orðapör innihalda orð sem tengjast merkingarlega
og reyna því síður á minni.
Ekki var munur á hópunum á öðrum taugasálfræði-
legum prófum sem athuguðu einbeitingu, hugrænan
hraða, sjónræna skynjun og úrvinnslu, mál eða lestur
og skilning. Þó systkinahópurinn skori lakar en við-
miðunarhópurinn á minnisprófunum er ekki þar með
sagt að hann hafi það mikla minnisskerðingu að hún
samsvari skerðingu þeirra sem hafa greiningu um
minnissjúkdóma. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að þau
minnispróf sem systkinahópurinn skoraði lakar á
miðað við viðmiðunarhópinn hafa fylgni við þróun
Alzheimerssjúkdóms síðar (Elias o.fl., 2000; Fox o.fl.,
1998; Reid o.fl., 1996; Rubin o.fl., 1998; Schmitt o.fl.,
2000).
Niðurstöður benda til að systkina- og viðmiðunar-
hópurinn hafi verið mjög líkir og raunar aðeins tvennt
sem greini þá í sundur. Fyrst ber að nefna forsendur
rannsóknarinnar, að einstaklingar í rannsóknar-
hópnum eiga eitt eða fleiri systkini með Alzheimers-
sjúkdóm. Einstaklingar í viðmiðunarhópunum eiga
hins vegar, svo vitað sé, hvorki foreldri né systkinin
með minnissjúkdóm. Seinna atriðið er að systkinahóp-
Tafla 1.
Samanburður á systkinum Alzheimers-
sjúklinga og viðmiðunarhóps á aldri,
skólagöngu og kyni.
Systkini Alzh. Viðmiðunar-
Systkini Alzh. hópur
fjöldi = 73 fjöldi = 43
Aldur (ár):
Meðalaldur 70,4 69,6
Staðalfrávik 5,6 6,2
Aldursbil 55-79 55-79
Skólaganga:
Barna- og gagnfr. 41 (57,7%) 24 (61,5%)
Framhaldsmenntun 30 (42,3%) 15 (38,5%)
Kyn:
Karlar 41 (56,2%) 17 (39,5%)
Konur 32 (43,8%) 26 (60,5%)
Mynd 2. Frammistaða systkina Alzheimerssjúklinga og
viðmiðunarhóps á tafarlausu- og töfðu minni á Rey Ost-
errieth flókinni mynd. Systkini skora marktækt lægra en
viðmiðunarhópur á töfðu minni.
Mynd 4. Frammistaða systkina Alzheimerssjúklinga og
viðmiðunarhóps á auðveldum og erfiðum orðapörum á
Wechsler Memory Scale prófinu. Systkini skora mark-
tækt lakar en viðmiðunarhópur á erfiðum orðapörum
en ekki auðveldum orðapörum.
Mynd 3. Frammistaða systkina Alzheimerssjúklinga og
viðmiðunarhóps á tafarlausu- og töfðu minni á endur-
segja sögu úr Wechsler Memory Scale. Systkini skora
marktækt lakar en viðmiðmunarhópur á bæði tafar-
lausu- og töfðu minni.