Öldrun - 01.02.2001, Blaðsíða 11
11ÖLDRUN – 19. ÁRG. 1. TBL. 2001
félagsstarf aldraðra, skammtímavistun, umsókn um
vistun á öldrunarstofnun með gerð vistunarmats.
Aðdragandi að gerð könnunar
Ýmsar vangaveltur hafa vaknað um afdrif sjúklinga
eftir að þeir útskrifast. Í flestum tilfellum er reiknað
með að allt gangi samkvæmt áætlun. Í öðrum tilfellum
er útskrift til reynslu og óvíst hvernig til tekst. Til-
drögin að gerð könnunarinnar var að fá svör við spurn-
ingum um það hvort úrlausnirnar sem ákveðnar voru
og bent var á hafi dugað og staðist.
Tilgangur
A. Að fá ábendingar um á hvern hátt við getum betur
undirbúið útskrift og metið getu einstaklings til þess
að vera heima við sem bestar aðstæður.
B. Að meta hvort lausnir sem ákveðnar voru fyrir
útskrift og bent var á hafi dugað og staðist. Eins og:
i. Hvort þjónusta frá heimahjúkrun og heimilishjálp
sem sótt var um samræmist þeirri þjónustu sem
sjúklingur fékk eftir að heim var komið.
ii. Hvort hjálpartæki hafi komist til skila og verið
notuð.
iii. Hvort þær breytingar sem stungið var upp á hafi
verið gerðar.
Inngangur
Ástæða innlagna sjúklinga á öldrunarlækninga-
deild er margvísleg og margir þeirra sjúklinga sem eru
innlagðir eiga við fjölþættan heilsufarsvanda að stríða
ásamt færnitapi og félagslegum vanda. Undirbúningur
að útskrift sjúklings skipar stóran sess í starfi deildar-
innar og koma margir þar að máli.Teymisvinna með
teymisfundum er meiri en almennt gerist á bráða-
deildum sjúkrahússins.Undirbúningur útskriftar felst
m.a. í heimilisathugun, fjölskyldufundi og/eða útskrift-
arfundi þar sem auk sjúklings, aðstandenda og teymis
koma stundum fulltrúar frá heimahjúkrun og heimilis-
hjálp og leggja á ráðin. Í heimilisathugun er metið
hvort sjúklingur geti búið áfram heima án nokkurra
breytinga; hvort þörf er á hjálpartækjum og þá hvaða;
komið með tillögur um framkvæmdir sem eiga að auka
öryggi sjúklings á heimili og/eða létta umönnun sjúk-
lings. Niðurstaðan er líka stundum sú að ekki þykir for-
svaranlegt að sjúklingur útskrifist heim aftur vegna
andlegrar og/eða líkamlegrar fötlunar og einnig vegna
aðstæðna á heimilinu. Þá þarf að leita að viðeigandi
vistunarúrræði. Helstu úrræði fyrir þá sem útskrifast
heim eru: Eftirlit hjá lækni, heimahjúkrun, heimilis-
hjálp, aðstoð frá maka/ættingjum, hjálpartæki, heim-
sendur matur, dagvistun, dagspítali, sjúkraþjálfun,
Könnun
um notagildi úrræða
sem mælt er með
fyrir útskrift af öldrunarlækningdeild
Karítas Ólafsdóttir sjúkraþjálfari
Sara Hafsteinsdóttir sjúkraþjálfari
Jóna Eggertsdóttir félagsráðgjafi
Öldrunarlækningadeild
Landspítali Háskólasjúkrahús Fossvogi